Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Side 6
4 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2 . tbl. 99. árg. 2023
Næsta kröfugerð
í undirbúningi
Þegar þetta er skrifað standa samningaviðræður enn yfir
við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu en skammtíma-
kjarasamningar við ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélög
hafa verið samþykktir. Vinnan er hafin fyrir næstu samninga
og er hún samkvæmt tímasettri verkáætlun en hana má sjá
betur í hverjum samningi fyrir sig. Ríkið þarf t.d. að rýna með
okkur verkefni hjúkrunarfræðinga með tilliti til ábyrgðar
og launa. Fyrir lok þessa árs verða starfshópar búnir að
yfirfara starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga hjá ríkinu og
endurskoðun á mati starfa stéttarinnar hjá Reykjavíkurborg og
sveitarfélögum. Vinnan samkvæmt verkáætlun samninganna
er þegar hafin, fyrstu fundir bókaðir og strax farið að undirbúa
næstu kröfugerð. Einnig erum við að óska eftir fundum með
heilbrigðisstofnunum til að endurskoða stofnanasamningana.
Að mínu mati verður það að gerast, enda kalla niðurstöður
kosninga á samningunum við ríki og Reykjavíkurborg á það.
Í viku hjúkrunar stóð félagið fyrir viðburði í Smárabíói þar sem
framleiðendur þáttanna Stormur sýndu hjúkrunarfræðingum
áður óséð myndefni sem tekið var upp í Covid-faraldrinum.
Svöruðu þeir svo spurningum um þættina, sína reynslu og
upplifun af þessu stóra verkefni. Við gerð þáttanna var tekið
upp ógrynni af myndefni sem vonandi nýtist rannsakendum
framtíðarinnar þegar rýnt verður í þetta erfiða tímabil í
sögu þjóðarinnar. Óhætt er að segja að viðburðurinn hafi
vakið ánægju á meðal þeirra sem mættu í bíóið eða horfðu
á í streymi og frábært hvað sköpuðust góðar umræður í
kjölfarið. Jóhannes Kr. Kristjánsson, einn framleiðendanna,
laumaði hugmynd að okkur en hann benti á að nánast allir
sem klæddust hlífðarbúnaði tóku sjálfu af sér. Ef öllum
þeim myndum yrði safnað saman yrði til risastórt listaverk
til heiðurs heilbrigðisstarfsfólki. Þar er ég viss um að
hjúkrunarfræðingar létu ekki sitt eftir liggja.
Ný vefsíða félagsins var formlega opnuð á alþjóðlegum degi
hjúkrunarfræðinga 12. maí. Einn af stóru lærdómum í Covid-
faraldrinum var notkun tækninnar. Á aðeins nokkrum árum
hefur notkun hjúkrunarfræðinga á vefnum, fjarfundarlausnum
og rafrænum lausnum aukist til muna og sjáum við það
á aukningu á notkun vefs félagsins, sem og fylgni og
samskiptum á samfélagsmiðlum. Við sjáum líka breytingu
á því hvernig vefurinn er notaður en í dag er leitað að mun
sértækari upplýsingum en áður og á sama tíma eru kröfurnar
orðnar meiri. Með nýjum vef gefst tækifæri til að bæta enn
frekar þjónustu við félagsfólk og má þar helst nefna nýja
viðbót þar sem auðvelt er að fletta í gegnum kjarasamninga
og leita eftir einstökum atriðum. Ég hvet ykkur til að skoða
vefinn vel og láta okkur einnig vita ef það er eitthvað sem
þarfnast lagfæringar því svona vefur er stöðugt í endurskoðun
og lifandi afl.
Með nýjum vef myndast tækifæri til að kynna betur út á við
störf hjúkrunarfræðinga til að almenningur átti sig á því
hversu öflugt og fjölbreytt starfið er í raun. Í maímánuði fór
til dæmis af stað ímyndarherferð sem miðaði að því að sýna
almenningi fjölbreytnina og ábyrgðina sem felst í starfinu.
Auglýsingum var komið fyrir á strætisvagnaskýlum um alla
höfuðborgina sem og skiltum við fjölfarna vegi á Akureyri,
Selfossi, Reykjanesbæ, Reykjavík og víðar.
Að lokum minni ég á að skráning er hafin á vísindaráðstefnuna
Hjúkrun 2023 sem fram fer í lok september. Ráðstefnan verður
haldin á Hilton Reykjavík Nordica líkt og í fyrra. Boðið verður
upp á mörg áhugaverð erindi og vinnustofur. Mikill fjöldi
hjúkrunarfræðinga lagði leið sína á ráðstefnuna í fyrra þar sem
þeir gátu einbeitt sér að faginu og komið saman sem stærsta
fagstéttin í heilbrigðisþjónustunni.
En nú er enn eitt sumarið komið og styttist í langþráð
sumarleyfi. Ég þreytist ekki á að minna hjúkrunarfræðinga á
að þeir eiga rétt á meira jafnvægi milli vinnu og einkalífs og
þurfum við sjálf að sjá um það, það er ekki endilega annarra
að gera það fyrir okkur, þ.m.t. vinnuveitandans. Njótum
sumarsins milli vakta, hvort sem er á Íslandi eða erlendis.
Veðrið er bara hugarástand, ekki satt? Notum sumarfríið til að
hlaða batteríin, lifa lífinu og hafa gaman. Við sjáumst svo hress
og kát á Hjúkrun 2023 í haust.
Pistill formanns
Það var virkilega ánægjulegt að sjá svona öflugan
hóp hjúkrunarfræðinga koma saman á aðalfundi
félagsins í Hörpu og á Teams á alþjóðlegum
degi hjúkrunarfræðinga 12. maí síðastliðinn.
Takk fyrir. Við megum nefnilega ekki gleyma því
að aðalfundur félagsins er æðsta valdið og því
kjörinn vettvangur fyrir okkur hjúkrunarfræðinga
til að hafa áhrif á framtíð okkar öfluga fag-
og stéttarfélags. Ályktanir aðalfundarins um
launakjör og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga
rötuðu í ýmsa fjölmiðla. Viðbrögðin segja sína
sögu um stuðning almennings við baráttu okkar
fyrir leiðréttingu á kjörum til samræmis við
aðra háskólamenntaða sérfræðinga, þörf fyrir
mönnunarviðmið og aðrar aðgerðir til að koma
í veg fyrir að fleiri hjúkrunarfræðingar hverfi frá
störfum úr heilbrigðisþjónustu.
2