Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 6

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 6
4 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2 . tbl. 99. árg. 2023 Næsta kröfugerð í undirbúningi Þegar þetta er skrifað standa samningaviðræður enn yfir við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu en skammtíma- kjarasamningar við ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélög hafa verið samþykktir. Vinnan er hafin fyrir næstu samninga og er hún samkvæmt tímasettri verkáætlun en hana má sjá betur í hverjum samningi fyrir sig. Ríkið þarf t.d. að rýna með okkur verkefni hjúkrunarfræðinga með tilliti til ábyrgðar og launa. Fyrir lok þessa árs verða starfshópar búnir að yfirfara starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga hjá ríkinu og endurskoðun á mati starfa stéttarinnar hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum. Vinnan samkvæmt verkáætlun samninganna er þegar hafin, fyrstu fundir bókaðir og strax farið að undirbúa næstu kröfugerð. Einnig erum við að óska eftir fundum með heilbrigðisstofnunum til að endurskoða stofnanasamningana. Að mínu mati verður það að gerast, enda kalla niðurstöður kosninga á samningunum við ríki og Reykjavíkurborg á það. Í viku hjúkrunar stóð félagið fyrir viðburði í Smárabíói þar sem framleiðendur þáttanna Stormur sýndu hjúkrunarfræðingum áður óséð myndefni sem tekið var upp í Covid-faraldrinum. Svöruðu þeir svo spurningum um þættina, sína reynslu og upplifun af þessu stóra verkefni. Við gerð þáttanna var tekið upp ógrynni af myndefni sem vonandi nýtist rannsakendum framtíðarinnar þegar rýnt verður í þetta erfiða tímabil í sögu þjóðarinnar. Óhætt er að segja að viðburðurinn hafi vakið ánægju á meðal þeirra sem mættu í bíóið eða horfðu á í streymi og frábært hvað sköpuðust góðar umræður í kjölfarið. Jóhannes Kr. Kristjánsson, einn framleiðendanna, laumaði hugmynd að okkur en hann benti á að nánast allir sem klæddust hlífðarbúnaði tóku sjálfu af sér. Ef öllum þeim myndum yrði safnað saman yrði til risastórt listaverk til heiðurs heilbrigðisstarfsfólki. Þar er ég viss um að hjúkrunarfræðingar létu ekki sitt eftir liggja. Ný vefsíða félagsins var formlega opnuð á alþjóðlegum degi hjúkrunarfræðinga 12. maí. Einn af stóru lærdómum í Covid- faraldrinum var notkun tækninnar. Á aðeins nokkrum árum hefur notkun hjúkrunarfræðinga á vefnum, fjarfundarlausnum og rafrænum lausnum aukist til muna og sjáum við það á aukningu á notkun vefs félagsins, sem og fylgni og samskiptum á samfélagsmiðlum. Við sjáum líka breytingu á því hvernig vefurinn er notaður en í dag er leitað að mun sértækari upplýsingum en áður og á sama tíma eru kröfurnar orðnar meiri. Með nýjum vef gefst tækifæri til að bæta enn frekar þjónustu við félagsfólk og má þar helst nefna nýja viðbót þar sem auðvelt er að fletta í gegnum kjarasamninga og leita eftir einstökum atriðum. Ég hvet ykkur til að skoða vefinn vel og láta okkur einnig vita ef það er eitthvað sem þarfnast lagfæringar því svona vefur er stöðugt í endurskoðun og lifandi afl. Með nýjum vef myndast tækifæri til að kynna betur út á við störf hjúkrunarfræðinga til að almenningur átti sig á því hversu öflugt og fjölbreytt starfið er í raun. Í maímánuði fór til dæmis af stað ímyndarherferð sem miðaði að því að sýna almenningi fjölbreytnina og ábyrgðina sem felst í starfinu. Auglýsingum var komið fyrir á strætisvagnaskýlum um alla höfuðborgina sem og skiltum við fjölfarna vegi á Akureyri, Selfossi, Reykjanesbæ, Reykjavík og víðar. Að lokum minni ég á að skráning er hafin á vísindaráðstefnuna Hjúkrun 2023 sem fram fer í lok september. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica líkt og í fyrra. Boðið verður upp á mörg áhugaverð erindi og vinnustofur. Mikill fjöldi hjúkrunarfræðinga lagði leið sína á ráðstefnuna í fyrra þar sem þeir gátu einbeitt sér að faginu og komið saman sem stærsta fagstéttin í heilbrigðisþjónustunni. En nú er enn eitt sumarið komið og styttist í langþráð sumarleyfi. Ég þreytist ekki á að minna hjúkrunarfræðinga á að þeir eiga rétt á meira jafnvægi milli vinnu og einkalífs og þurfum við sjálf að sjá um það, það er ekki endilega annarra að gera það fyrir okkur, þ.m.t. vinnuveitandans. Njótum sumarsins milli vakta, hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Veðrið er bara hugarástand, ekki satt? Notum sumarfríið til að hlaða batteríin, lifa lífinu og hafa gaman. Við sjáumst svo hress og kát á Hjúkrun 2023 í haust. Pistill formanns Það var virkilega ánægjulegt að sjá svona öflugan hóp hjúkrunarfræðinga koma saman á aðalfundi félagsins í Hörpu og á Teams á alþjóðlegum degi hjúkrunarfræðinga 12. maí síðastliðinn. Takk fyrir. Við megum nefnilega ekki gleyma því að aðalfundur félagsins er æðsta valdið og því kjörinn vettvangur fyrir okkur hjúkrunarfræðinga til að hafa áhrif á framtíð okkar öfluga fag- og stéttarfélags. Ályktanir aðalfundarins um launakjör og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga rötuðu í ýmsa fjölmiðla. Viðbrögðin segja sína sögu um stuðning almennings við baráttu okkar fyrir leiðréttingu á kjörum til samræmis við aðra háskólamenntaða sérfræðinga, þörf fyrir mönnunarviðmið og aðrar aðgerðir til að koma í veg fyrir að fleiri hjúkrunarfræðingar hverfi frá störfum úr heilbrigðisþjónustu. 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.