Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Side 17
2. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 15
Hjúkrunarfræðingur í öðru landi
langaði að læra meira. Aðstaðan á sjúkrahúsinu í Tansaníu var
mjög ólík því sem ég átti að venjast, það voru til dæmis engin lyf
eða útbúnaður á spítalanum. Sjúklingar þurftu að treysta alfarið
á aðstandendur að kaupa það sem vantaði hvort sem það voru
verkjalyf eða þvagleggur. Það voru kannski tuttugu sjúklingar á
einni deild, allir í sama rými og ekki pláss eða möguleiki á að virða
einkalíf sjúklinga. Þegar ég fór svo ári seinna í gegnum kúrsinn í
norska háskólanum áttaði ég mig betur á hvernig heilbrigðiskerfið
þarna var uppbyggt og hversu mikið þrekvirki starfsfólkið vinnur á
hverjum degi við erfiðar aðstæður.
Hvers vegna fluttir þú til Svíþjóðar?
Ég ákvað að fara í masters-nám í alþjóðalýðheilsuvísindum (global
health) og flutti ein út haustið 2018. Ég var ekki búin að reikna
út hvað ég fengi í námslán áður en ég fór en ég hafði verið að
vinna mikið og fékk þar af leiðandi ekki nógu há námslán til að
geta lifað af þeim. Ég varð því að fá mér vinnu með náminu og
fór að vinna á smitsjúkdómadeild á Akademíska sjúkrahúsinu
í Uppsölum. Ég var þar í tímavinnu með náminu á mjög stórri
deild, kosturinn við það var að ég gat valið mér vaktir. Ég fékk
„Ég hef alltaf haft áhuga á
hjálparstarfi og stefni á að
vinna fyrir samtök á borð við
Lækna án landamæra …“
Hópurinn sem tók námskeiðið Tropical Medicine haustið 2017 í Tanga, Tanzaniu.
bara fimm aðlögunarvaktir og var í upphafi ekki góð í sænsku,
ég rataði varla um spítalann og kunni ekki vel á kerfið. Það voru
alls konar praktísk atriði sem ég vissi ekki og hafði hreinlega ekki
orku í að hugsa um, ég var gjörsamlega búin á því við að koma
mér inn í allt til að byrja með. Ég fékk launin til dæmis send í
pósti fyrstu mánuðina, í marga mánuði vissi ég ekki að ég fengi
ekki matartímana borgaða og að ég væri ekki skráð í stéttarfélag.
Ég þurfti bara að koma mér inn í allt og redda mér en Svíar eru
mjög þolinmóðir og veittu mér stuðning og einnig sjúkraliðar sem
komu frá öðrum löndum til að vinna á spítalanum. Þeir höfðu
upplifað það að vera í mínum sporum og voru mjög hjálplegir.
Ég tók vaktir á deildinni með náminu en þegar ég var á síðustu
önninni í háskólanum og bara að skrifa lokaverkefnið mitt skall
heimsfaraldurinn á.
Hvernig var að starfa á smitsjúkdómadeild í Svíþjóð í
heimsfaraldri?
Ég var upphaflega forvitin og því tilbúin að taka allar vaktir sem
ég gat á smitsjúkdómadeildinni en þetta voru skrítnir tímar og það
gerðist allt mjög hratt. Viðbrögðin við auknum smitum voru allt
önnur í Svíþjóð en heima á Íslandi, ég fylgdist vel með fréttum og
á meðan verið var að loka öllu heima var allt opið í Svíþjóð; barir,
líkamsræktarstöðvar og aðrir staðir þar sem margt fólk kom saman
og smithættan var mikil. Ég upplifði mjög blendnar tilfinningar
og fannst Svíar ekki bregðast nógu hratt við því sem var að gerast.
Ég sá í mínu starfi á smitsjúkdómadeildinni hvaða áhrif Covid
hafði og á sama tíma vissum við lítið um sjúkdóminn, einkenni
hans og útbreiðslu. Þetta gerðist allt svo hratt, nánast á einni