Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 31
2. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 29
Hvað varð til þess að þú valdir hjúkrun frekar en eitthvert annað nám?
Ég veit eiginlega ekki hvers vegna hjúkrun varð fyrir valinu. Það var að einhverju
leyti praktísk ákvörðun því ég sá fyrir mér að geta fengið vinnu hvar sem er í
heiminum. Mig langaði líka að vinna með fólki og þó að ýmislegt annað hafi komið
til greina var ég ákveðin í að velja ekki nám sem leiddi til starfa við kennslu. Ég
ætlaði alls ekki að verða kennari en það er jú einmitt það sem ég er í dag.
Framhaldsnám? Þverfaglegt meistaranám í verkjafræðum frá Háskólanum í
Cardiff í Wales 2005. Doktorspróf frá Hjúkrunarfræðideild HÍ 2014.
Hvar starfar þú í dag og hvað myndir þú segja að væri það besta við
starfið? Ég starfa við Háskólann á Akureyri sem dósent og deildarforseti
Framhaldsnámsdeildar í heilbrigðisvísindum. Það er margt skemmtilegt við starfið
en hvetjandi starfsumhverfi og möguleikar til að þróast í starfi er það sem vegur
þyngst. Í starfi mínu fæ ég tækifæri til að taka þátt í að mennta framúrskarandi
hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar.
Draumastarfið þitt innan hjúkrunar? Ég á erfitt með að nefna eitthvert
eitt draumastarf og það má segja að ég hafi gegnt mörgum draumastörfum
innan hjúkrunar í gegnum tíðina. Hef starfað mikið í kringum fólk með verki af
ýmsum toga, í tengslum við skurðaðgerðir, langvinna verki og verki af völdum
krabbameins. Ég starfaði einnig um árabil í Heimahlynningu á Akureyri við hjúkrun
og líknar- og lífslokameðferð fólks með langvinna og lífsógnandi sjúkdóma. Í því
starfi finnst mér ég hafa komist næst kjarna hjúkrunar á starfsferli mínum.
Bestu eða skemmtilegustu vaktirnar/vinnudagarnir? Það eru dagarnir þar
sem allt gengur upp og ég næ að tæma verkefnalista dagsins sem gerist reyndar
allt of sjaldan.
Hefur þú farið erlendis að starfa sem hjúkrunarfræðingur? Já, ég
flutti til Lundar í Svíþjóð strax eftir útskrift. Byrjaði þar að vinna í tæpt ár á
hjúkrunarheimili á meðan ég var að læra tungumálið. Flutti svo yfir á vökudeild
þar sem ég starfaði í fimm ár og síðan á taugalækningadeild síðustu tvö árin sem
ég bjó þar. Ég vann líka eitt sumar á líknardeild í Noregi.
Hvaða ráð myndir þú gefa nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum?
Sinnið starfinu af ástríðu og hugrekki, hjúkrið með hjartanu og verið málsvarar
skjólstæðinga ykkar. Haldið áfram að afla ykkur þekkingar, fylgist með nýjustu
rannsóknum í faginu, takið þátt í stefnumótun og verið virk í að innleiða nýja
þekkingu í klínísku starfi. Ekki þó gleyma sjálfum ykkur, setjið súrefnisgrímuna á
ykkur fyrst, stundið sjálfsrækt og sjálfsmildi.
Hvernig var upplifunin af því að fara í myndatöku fyrir ímyndarherferð
Fíh? Bara skemmtilegt, það var svolítið kalt þar sem myndatakan fór fram úti síðla
dags í byrjun febrúar.
Hver er þín fyrirmynd í faginu? Ég á margar
fyrirmyndir í faginu sem ég hef kynnst í starfi eða lesið
um og finnst erfitt að nefna einhverja eina. Kannski
má nefna sjálfa Florence Nightingale sem hefur verið
mér mikilvæg fyrirmynd síðan ég áttaði mig á því
að hún var ekki fórnfús engill í mannsmynd eins og
kemur fram á myndinni af konunni með lampann.
Hún hjúkraði vissulega með hjartanu en hún var líka
vísindamaður og greinandi umbótasinni sem vann
ötullega við að afla þekkingar sem hún þróaði og
nýtti í starfi.
Framúrskarandi eiginleikar í starfi að þínu
mati? Góð samskiptahæfni, hugmyndaauðgi
sem byggist á þekkingu, ásamt sjálfstæði í starfi
og hugrekki til að stíga fram sem talsmaður
skjólstæðinga sinna.
Hver er draumurinn? Þeir eru svo margir, til dæmis
að fá áfram tækifæri til að þróast í starfi og láta gott
af mér leiða.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Stefni á
að flækjast eitthvað um hálendi Íslands og vonandi
næ ég að ganga á einhver fjöll. Í ágúst er svo ferðinni
heitið til Vínar í Austurríki í brúðkaup sonar míns og
þarlendrar kærustu hans.
Ráðleggur nýútskrifuðum
hjúkrunarfræðingum að
sinna starfinu af ástríðu
og hugrekki
Þorbjörg Jónsdóttir
fædd 2. október árið 1961.
Hvenær útskrifaðist þú úr hjúkrunarfræði?
Ég útskrifaðist úr HÍ árið 1985.