Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Page 56
54 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 99. árg. 2023
Sóley Sesselja Bender er prófessor og
forstöðumaður fræðasviðs um kynheilbrigði
við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla
Íslands og Landspítalann. 50 ár eru liðin á
þessu ári frá því að hjúkrunarfræðinám hófst
á háskólastigi við HÍ. Sóley hefur í áratugi
rannsakað kynheilbrigðismál ungs fólks á
Íslandi
Hvað kemur upp í hugann þegar þú hugsar 50 ár
aftur í tímann þegar þú varst ein af fyrstu
nemendum í hjúkrunarfræðinámi þegar það fór á
háskólastig?
Mér fannst spennandi að fara í nám sem var nýtt
innan Háskóla Íslands. Við vorum nokkrar úr mínum
bekk í Menntaskólanum í Reykjavík sem höfðum áhrif
hver á aðra. Ég var reyndar búin að ætla mér að fara
í sjúkraþjálfun í Noregi og til að undirbúa mig undir
það vann ég á Grensásdeild Borgarspítalans sumarið
1973. Þar kynntist ég erfiðum aðstæðum fólks eftir
veikindi eða slys sem þurfti á endurhæfingu að halda.
Að þínu mati, hvaða breytingar í heilbrigðiskerfinu
eða á spítalanum hafa haft jákvæðustu áhrifin á
starf hjúkrunarfræðinga og jafnvel sjúklinga?
Spurningin er ansi víðfeðm því ýmsar breytingar
hafa orðið á heilbrigðiskerfinu en hvort þær hafi
haft jákvæð áhrif á störf hjúkrunarfræðinga er hins
vegar óvíst. Það varð heilmikil breyting við það að
sameina spítalana á höfðborgarsvæðinu og fólk hafði
skiptar skoðanir á því. Einnig hefur með árunum verið
vaxandi áhersla á geðheilbrigðismál og samsetning
þjóðarinnar hefur verið að breytast sem kallað hefur
á öflugri öldrunarþjónustu á heimilum og utan þeirra.
Heilsugæslan hefur einnig verið í mikilli þróun og
fengið stór verkefni í fangið. Á örlagatímum eins og í
heimsfaraldrinum stigu hjúkrunarfræðingar fram og
sýndu þjóðinni hversu öflugir þeir eru. Það sem vakti
fyrir þeim var heilsa þjóðarinnar.
Út frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga held ég að það
sem skipti mestu máli varðandi vellíðan og ánægju í
starfi sé að vera vel metinn, hafa tök á því að þróa sig í
starfi og fá tækifæri og stuðning til að prófa nýja hluti.
Gott samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir er einnig
dýrmætt til að leysa ýmiss vandamál skjólstæðinga
okkar. Ánægja hjúkrunarfræðinga í starfi skilar sér í
bættri heilbrigðisþjónustu.
Hefur margt breyst í náminu við HÍ frá því að þú
settist þar fyrst á skólabekk?
Ég tel að lagður hafi verið mjög góður grunnur að
náminu frá upphafi og margt af því er enn við lýði.
En auðvitað, á þessum fyrstu árum, var námið mjög
mikið í mótun. Með náminu var lögð rík áhersla á
gagnrýna og sjálfstæða hugsun og vinnubrögð sem
eiga við enn í dag enda grundvallarþættir allrar
háskólakennslu. Bæði stjórnun og kennslufræði
voru mikilvægar námsgreinar. Það vantaði mjög
mikið kennara í ýmsum námsgreinum og því
fengnir erlendir kennarar til að sjá um ákveðna
kennslu. Má þar nefna námskeiðið í stjórnun en
Áfram virk á sínu
fræðasviði en ætlar
að njóta lífsins meira
Sóley Sesselja Bender var í fyrsta
útskriftarárgangi hjúkrunarfræði við HÍ
Viðtal: Margrét Stefánsdóttir | Myndir: Úr einkasafni
50 ára afmæli hjúkrunarfræði í HÍ
Sóley Sesselja Bender er
prófessor og forstöðumaður
fræðasviðs um kynheilbrigði
við Hjúkrunar- og
ljósmóðurfræðideild Háskóla
Íslands og Landspítalann.
„Ég mun því
vera áfram
virk á mínu
fræðasviði en
mun í vaxandi
mæli geta
notið þess að
sinna heimili og
barnabörnum
en jafnframt
að njóta
náttúrunnar.“