Ský - 01.01.2015, Page 32
32 | SKÝ 1. tbl. 2015
Guð. Allt snýst þetta um Guð. Hvað er Guð í augum guð
fræðingsins?
„Guð er eitthvað sem er okkur æðra, eitthvað sem við þráum og
leitum eftir. Öðlist maður traust trúarinnar og sannfæringu, þá
fylgir henni upplifun af samfylgd og leiðsögn; athvarf og styrkjandi
návist á lífsgöngunni, í blíðu og stríðu með einhverju því móti sem
skýrar verður upplifað en skilgreint.“
En hver var Jesús í huga Gunnlaugs?
„Hann var í fyrsta lagi klárlega gyðingur. Hann var uppalinn í
gyðinglegri trúarhefð og hans Biblía var Gamla testamentið. Það er
alveg ljóst að hann hefur verið handgenginn Davíðssálmum. Það
er mikið vitnað í þá í Nýja testamentinu eins og „Guð minn, Guð
minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ og hans síðustu orð á krossinum
voru „Í þínar hendur fel ég anda minn“. Þetta er hvort tveggja úr
Davíðssálmum. En vitaskuld urðu þáttaskil með Jesú Kristi, upp
gjör við gyðingdóminn og úr varð sú volduga trúarhreyfing sem við
hann er kennd, kristindómur.“
Telur Gunnlaugur að Jesús hafi verið eingetinn?
„Jesús er fyrir mér hluti guðdómsins.“
Mikið hefur verið rætt um fjölmenningaráhrif hér á landi og
búið er að leggja af þá gömlu hefð að gefa grunnskólabörnum Nýja
testamentið. Gunnlaugur segist vera mjög ósáttur við þá ákvörðun.
„Ég held að enginn verði fyrir trúarlegri innrætingu við það enda
getur hver og einn afþakkað gjöfina. Biblían er snar þáttur í okkar
menningarsögu og er verið að taka út úr skólakerfinu mikilvægan
kennsluþátt. Ganga má lengra og segja að skólakerfið sé að bregðast
menntunarhlutverki sínu með því að leggja ekki rækt við kennslu
í heilagri ritningu svo mikilvægur þáttur sem hún er í menningu
okkar.“
Biblían á borðinu. Gamla testamentið á hebresku. Listaverkið af
Davíð konungi í íslenskri náttúru sem um leið kallast á við náttúru
Landsins helga og konungurinn sem Davíðssálmarnir eru kenndir
við sameinast með sérstökum hætti íslenska tónskáldinu Sigvalda
Kaldalóns, 3000 árum síðar. Heillandi tvíræðni einkennir myndina.
Öldurnar skella á steinunum í fjörunni í vetrarsortanum.
Íslensk náttúra.
Íslands þúsund ár...
„Guð er eitthvað sem er
okkur æðra, eitthvað sem
við þráum oG leitum efir.
Öðlist maður traust trúar
innar oG sannfærinGu, þá
fylGir henni upplifun af
samfylGd oG leiðsÖGn;
athvarf oG styrkjandi návist
á lífsGÖnGunni, í blíðu oG
stríðu með einhverju því móti
sem skýrar verður upplifað
en skilGreint.“
mynd Leifs Breiðfjörð, Engill Guðs. Bókarhöfundur fjallar um hana í tengslum við Sálm 91.
Davíðssálmar