Ský - 01.08.1998, Blaðsíða 7
KOLBEINS
BIO
A.KUREYRI
TONLEIKAR
DJA.5S
MATUR FJALLAHJÓL
L I G G U R
I
L O F T I N U
Um nokkurt skeið hefur það verið fastur liður í tónlist-
arlífi landsmanna að hlýða á lifandi djasstónlist á lit-
glöðum haustdögum. í ár mun sami háttur vera hafð-
ur á. Aðeins eitt breytist. Það sem áður var kallað RúRek
heitir nú Djasshátíð Reykjavíkur.
„Við ætlum að hafa bæinn logandi í djassi, blús og látum
meðan hátíðin stendur yfir, dagana 9. til 13. september,“ seg-
ir Ólafur Þórðarson framkvæmdastjóri Djasshátíðar Reykja-
víkur 1998.
Meðal þeirra sem leika listir sínar á hátíðinni má frægast-
an telja Ray Brown og tríó hans.
Brown er kontrabassaleikari sem lék lengi með píanógoð-
inu Oscar Peterson. í för með bassaleikaranum verða píanó-
og trommuleikari sem ku vera miklir snillingar. Tónleikar
tríósins verða vafalaust þeir stærstu þetta haustið en Brown
og félagar munu slá lokatóna hátíðarinnar þann 13. septem-
ber.
Pétur Östlund trommuleikarinn góðkunni kemur frá Svía-
ríki með þrjá menn með sér, sem leika á klarinett, píanó og
bassa og heldur stóra tónleika.
„Auk þessara kappa má nefna trompetleikara frá Chile
sem Grandi býður til íslands af miklum rausnarskap. Hann
leikur með íslenskum hljóðfæraleikurum og verður eflaust
gaman að sjá norræna strauma sameinast suðrænum á þeim
tónleikum," segir Ólafur.
Auk erlendu gestanna bendir Ólafur á, að auðvitað muni
mikið af íslenskum tónlistarmönnum troða upp hér og þar
um bæinn.
„Það er alveg víst að ef fólki á annað borð langar til að
upplifa djassgeggjun á háu stigi þá er Reykjavík í byrjun
september, kjörinn staður," segir framkvæmdastjórinn.
Ólafur hefur svo þessi skilaboð til þeirra sem hafa for-
dóma í garð djasstónlistar:
„Mér finnst fólk stundum halda að djass sé eitthvað þung-
lamalegt og flókið fyrirbæri - sem hann er í raun alls ekki,
eða þarf að minnsta kosti ekki að vera. Fólk er oft á tíðum
mjög hissa þegar það heyrir djass og áttar sig á því að þetta er
tónlistin sem það er búið að vera að hlusta á og njóta í út-
varpinu. Það ffla allir djass inn við beinið.“ FIN
5