Ský - 01.08.1998, Qupperneq 21
ÁSBJÖRN
Bubbi segist þó passa sig á að
prédika ekki yfir fólki, heldur segja
aðeins sína skoðun og reyna þannig að
hafa áhrif. Textar hans snúast oftar en
ekki um það sem er að gerast í ís-
lensku þjóðlífi þá stundina, sem hann
situr og semur. Orð eru máttug og
skoðanir hans hafa áhrif, en hann
segist þó alltaf láta aðra um sína
ákvarðanatöku.
„Menn sem halda að þeir geti tekið
ákvarðanir fyrir fólk, eins og póli-
tíkusamir, eru hættulegt fólk. Ég reyni
að vera mótvægi við heilaþvott stjóm-
málamanna. Þannig agitera ég til
dæmis gegn Finni Ingólfssyni og hans
stefnu á öllum mínum tónleikum, því
þótt ég hafi ekkert við persónu Finns
að athuga, hef ég heilmikið við hann
að athuga sem embættismann. Og
sama má segja um Svavar Gestsson og
Davíð Oddsson. En fólk verður alltaf
sjálft að fá að taka sína ákvörðun.“
Heimskur bransi
Fáir tónlistarmenn eiga jafn tryggan
aðdáendahóp og Bubbi Morthens og
segir hann ástæðuna vera þá hversu
heiðarlegur hann sé í tónlist sinni og
samkvæmur sjálfum sér. Hann hafi
alltaf gert það sem hjartað og innsæið
hafi sagt honum og aldrei hlustað á
tískustrauma.
„Ég held að höfuðmálið sé að vera
heiðarlegur í sinni list. Ástæðan fyrir
því að svo fáir lifa af í þessum bransa
er, að þeir em alltaf að eltast við hina
hverfulu tískustrauma. Ef menn hlust-
uðu á sitt eigið innsæi held ég að þeir
gætu lifað af. í svona heimskum
bransa eins og tónlistarbransanum er
auðvelt að verða „out of date“. Ef
menn eru ekki heiðarlegir í list sinni er
hún dæmd til að mistakast."
Bubbi segist aldrei hafa upplifað
sig úti í kuldanum á íslenskri tónlist-
arævi.
„Ég hef alltaf getað selt mínar plöt-
ur og það hefur enginn fslendingur selt
jafnmargar plötur og ég. Það er
bláköld staðreynd. Aðeins einn lista-
maður hefur selt eins mikið af list sinni
og ég. Það er Halldór Kiljan. Það segir
mér allt sem segja þarf og ég væri
hræsnari ef ég segði að það kitlaði ekki
egóið.“
En sárnar honum þegar hörðustu
aðdáendur gagnrýna hann og hálf-
partinn gefast upp á honum?
„Nei, mér er alveg sama,“ svarar
Bubbi kæruleysislega. „Menn mega
hafa þá skoðun sem þeir vilja og þeir
hafa fullan rétt til þess. Mér er alveg
sama þótt fólk setji útá mig, það er
ekkert sem plagar mig.“
Bubbi er kominn yfir fertugt og
sumir vilja kalla hann skallapoppara og
setja hann undir sama hatt og aðra tón-
listarmenn sem komnir eru af léttasta
skeiði. Upplifir hann sig sjálfur sem
skallapoppara?
„Nei, í mínum huga er skallapoppari
einhver, sem er að hjakka í gamalli
frægð og er aðeins skugginn af sjálfum
sér,“ segir Bubbi og setur í brýmar. „Ég
held að ég sé betri með hverju árinu
sem líður. Ég er í sífelldri þróun og ég
held að ég sé of heiðarlegur og of
gagnrýninn á sjálfan mig og alltof akt-
ívur til að geta skilgreint mig sem
skallapoppara.“
Bubba er tíðrætt um heiðarleikann.
Hins vegar dæma hann
margir hart fyrir að vera
iðnaðarpoppara sem ____________________
hugsi bara um peninga
og jólaplötusölu.
„Ef ég væri þannig
myndi ég gefa út tutt-
ugu og fimm Konuplö-
tur eða tuttugu og fimm
Isbjarnarblúsa. Hins
vegar er gríðarlegur
iðnaður í kringum þessa
listgrein og þeir sem
horfa framhjá því eru
bara vitlausir og bama-
legir,“ segir hann með
þjósti. „Það er ekki til ______________
sú listgrein sem ekki er
iðnaður, ekki ein einasta.
Ég hef engan áhuga á að gefa út plötu
sem ekki selst og þar sem plötur seljast
einna best um jól er mjög eðlilegt að
taka mið af því.“
I þessu sambandi segir Bubbi áttatíu
prósent útgefins efnis rusl og tuttugu
prósent snilld. Þessi tuttugu prósent
snilldar hafi gert það að verkum að
veröldin er ekki sú sama. En hvernig
eru hlutföllin hjá Bubba?
„Ég tel mig vera snilling,“ segir
Bubbi og stekkur ekki bros. „Það hefur
ekkert með hroka að gera en ég tel mig
vera einn af þessum tuttugu prósentum.
Blákalt. Ég trúi því að ég hafi sérstöðu
í íslenskum dægurlagaheimi. Ég trúi
því að ég sé að gera hluti sem aðrir em
ekki að gera. Ég trúi því að ég sé sá
eini sem er að vinna upp úr Vikivaka
handritum og þjóðkvæðum þessa dag-
ana og færa þuluformið inn í nútímann.
Ef ég myndi ekki hugsa svona, held ég
að mér væri ekki stætt á að gera það
sem ég er að gera.“
Jón Ólafsson
Hvaða íslenskir tónlistarmenn eiga
virðingu Bubba Morthens?
„Af söngvumm finnst mér Egill O-
lafsson gífurlega flinkur listamaður.
Björgvin Halldórsson finnst mér frá-
bær söngvari, þótt mér finnist hann
prívat og persónulega ekki hafa spilað
eins vel úr sínum spilum og hann hefði
getað. Þegar ég var ungur maður
fannst mér Björgvin standa fyrir lág-
kúrunni í íslenskri tónlist, en sú skoð-
un mín hefur breyst því ég hef hlustað
mikið á hann og uppgötvað hvílíkur
fagmaður hann er. Ég er ægilega hrif-
inn af Botnleðju og Subterranian.
Maus finnst mér standa upp úr í texta-
gerð af unga liðinu. Quarashi eru góð-
ir. Sumt af því sem Björk hefur gert
„Aaðeins einn listamaður hefurselt
eins mikið
af /ist sinni og ég. Það
er Halldór Kiljan.
... ég vœrihrœsnarief égsegðiað
það kitlaði ekki egóið. “
finnst mér gott, annað alveg hrútleið-
inlegt. Þeir tveir einstaklingar sem
standa uppúr eru Magnúsarnir tveir,
Megas og Magnús Eiríksson. Þeir eru
menn sem hafa haft ómæld áhrif á ís-
lenskan dægurbransa,“ segir Bubbi
eftir nokkra umhugsum og bætir við,
„sennilega trónir Megas á toppnum.
Hann ber höfuð og herðar yfir aðra ís-
lenska tónlistarmenn að mínu viti.“
Sjaldan hefur Bubbi ofboðið aðdá-
endum sínum eins heiftarlega og þegar
hann söng í sjónvarpsauglýsingunni
fyrir Hagkaup hér um árið. Þótti
mönnum hann vera orðinn aðeins of
mikill efnishyggjumaður og vera far-
inn að taka fulllangt niður fyrir sig.
Hvað segir Bubbi sér til málsvarnar í
sambandi við Hagkaupslagið?
„Ég skammast mín ekki hætishót
og er stoltur af því að hafa sungið
Hagkaupslagið,“' segir Bubbi og er
sjálfsöryggið uppmálað. „í fyrsta lagi
verða áhrif Pálma heitins í Hagkaup-
um seint metin til góðs í íslensku
19