Ský - 01.08.1998, Síða 44

Ský - 01.08.1998, Síða 44
Landið þitt Reykjavík ast verðlausar þegar fram í sækir. Þetta fólk er gjaman fjölskyldufólk á aldrinum 20 til 35 ára en eins eru einstæðir foreldrar áberandi í þessum hópi. Um 35 prósent þessa fólks hefur aðeins lok- ið skyldunámi eða minna en taka þarf með í reikninginn að margir þeirra eru á leið í frekara nám. Annað fyrirbrigði sem eiginlega verður að kallast séríslenskt, eru búferlaflutningar 15 til 19 ára unglinga vegna framhaldsskólanáms. Það stingur einnig í augu að á landsbyggðinni er hlutfall kvenna lágt eða um 80 konur á móti hverjum 100 körlum, miðað við landshlutfallið þar sem þær eru ívið fleiri. Þetta lága hlutfall hins fagra kyns er einmitt talið vera ótvírætt merki um byggðavanda, ásamt háu hlutfalli ellilífeyrisþega en það á einnig við hérlendis. Reynslan segir að konur séu yfirhöfuð viljugri til þess að flytja á milli staða en karlar og þegar aukin þátttaka þeirra á vinnumarkaðnum og vaxandi aðsókn þeirra í langskólanám spilar inn í þarf þetta lága hlutfall ekki að koma á óvart. Það lætur sem sagt nokkuð nærri að segja að hinn dæmigerði brottflutti dreifbýlisbúi sé 20 til 35 ára kona, gift eða í sambúð, hafi lokið skyldu- námi eða minna og sé heimavinnandi eða nemi á leið í frekara nám, samhliða leit eftir fjölbreyttari atvinnutækifærum. Það væri einnig meira en sennilegt að kona þessi væri annaðhvort frá Vestfjörðum eða Norð- urlandi vestra en þessi tvö svæði hafa orðið áber- andi verst úti í fólksflutningunum hin síðustu ár. Frá árinu 1980 nemur fækkunin á Vestfjörðum 15 prósent íbúa eða tæp 1600 manns og það er sorg- leg staðreynd að snjóflóðin árið 1995 virkuðu eins og olía á eld, því fólksfækkunin jókst um 9 prósent milli áranna 1995 og 1996. Á Norður- landi vestra nemur fækkunin frá 1980 um 6 pró- sentum eða um 640 manns, annars staðar er fækkunin minni. Það kemur ekki á óvart að þeir staðir sem standa hvað traustast fyrir utan höfuð- borgarsvæðið eru Suðurnes og Norðurland eystra, en þar er þéttbýli líkast til hvað mest og rótgrónast utan höfuðborgarsvæðisins. Bjartsýni á Vestfjörðum Vestfirðingar hafa þurft að horfa á eftir ófáum í- búum hverfa til annarra staða en því fer fjarri að nokkurn uppgjafartón sé að heyra í þeim fyrir vestan. Þeir hafa snúið vöm í sókn og þykjast nú sjá fram á betri tíð með blóm í haga með nýsköp- un í atvinnumálum og öflugri þróunarvinnu á hinum ýmsu sviðum. „Við höfum verið að reyna að skapa hér eitthvað nýtt, eins og til dæmis þró- unarsetur sem verður vinnustaður fyrir háskóla- menntað fólk. Einnig hefur verið sett á fót í Bol- ungarvík Náttúrufræðistofnun Vestfjarða, þar sem prófessor í dýrafræði vinnur allt árið að rannsóknum á lífríkinu. Svo em ýmis önnur verk- efni í gangi sem öll miða að því að gera Vestfirði, vænlegan og raunhæfan kost til búsetu," segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri Isafjarðarbæjar og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Vestfjarða. Halldór segir aðferðir þeirra á Vestfjörðum hafa gefist vel og nú sé svo komið að þróunin hafi snúist við og meira flytjist af fólki til Vest- fjarða heldur en burt. Ástæðuna segir hann ekki t hvað síst vera ákveðna jákvæðni sem fylgi því að fólk sjái að verið sé að vinna í málunum og ekki sé látið undan þótt móti blási heldur leitað nýrra leiða til eflingar mannlífs á svæðinu: „Jákvæðni smitar út frá sér. Þá fær fólk trú á framtíðinni aft- ur og segir við sjálft sig: „Það er kannski ekki svo slæmt að búa hér.“ Slíkur hugsunargangur getur ekki leitt til annars en góðs alveg eins og bölmóður og svartsýni jafngildir uppgjöf og glöt- un.“ Aðspurður hver aðalástæðan fyrir brottflutn- ingi fólks af Vestfjörðum og annars staðar sé seg- ir Halldór: „Ef ég nú bara vissi það! Maður hefur séð ýmislegt tínt til sem á vafalítið allt saman þátt í þessum vanda, einhæft atvinnu- og menn- ingarlíf, lélegar samgöngur og þess háttar. En ég held að fólk finni líka fyrir ákveðnu öryggi í Reykjavík. Þar er og hefur alltaf verið ör upp- bygging en hér sveiflast ástandið algerlega eftir því hvort það er fiskur héma fyrir utan. Ef það er enginn þorskur héma þá finnum við samstundis fyrir niðursveiflu og öfugt. Þessi niðursveifla kemur á endanum til Reykjavíkur ef hún varir nógu lengi en þá hefur hún hjaðnað eitthvað og finnst auk þess ekki jafngreinilega. Obeint held ég að þetta hafi áhrif.“ En Halldór bendir einnig á, að þegar fólk fer að velta fyrir sér kostunum við að búa á minni stöðum þá vega þeir oft þungt á móti. „Þetta eru litlir staðir, tengsl milli fólks eru góð og kjörið að ala upp börn vegna öryggis og náins sambýlis við náttúruna. Eins er oft meira héma að gerast en virðist á yfirborðinu, hér eru starfandi leik- hópar og alla vegana listsmiðjur sem margir hverjir hafa gaman af að taka þátt í.“ Þó svo Vestfirðingar geti sjálfir breytt miklu um örlög sín með eljusemi og dugnaði er sumt einfaldlega ekki á þeirra valdi, eins og náttúran hefur sýnt fram á. „Snjóflóðin fyrir þremur ámm tóku gífurlegan toll. Þá á ég ekki einögngu við fólkið sem fórst, heldur ímyndina sem sumir virðast hafa fengið af Vestfjörðum. í október í fyrra var til dæmis fjöl- liðamót í körfubolta hér á ísafirði og fjölmargir foreldrar neituðu að senda börnin sín hingað vegna ótta um snjóflóð þrátt fyrir að þetta væri í október og ekki snjókorn á jörðinni og íþrótta- húsið þar fyrir utan engan veginn á hættusvæði. Mér finnst þetta í sjálfu sér ekkert skrýtið miðað við fréttirnar sem fólk hefur fengið héðan. Það mun taka okkur mörg ár að ná aftur ímyndinni.“ Um hugmyndir Guðna og Hjálmars um lægri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.