Ský - 01.08.1998, Síða 45

Ský - 01.08.1998, Síða 45
Landið þitt Reykjavík skatta á landbyggðina segir Halldór að hann telji íslendinga einfaldlega vera of mikla einstaklings- hyggjumenn til þess að þetta sé hægt: „Þetta er samt ekki vitlaus hugmynd og alltaf gott þegar menn koma með leiðir til úrbóta. Það er hins veg- ar útbreiddur misskilningur að hér hafi verið sett- ir miklir peningar í landsbyggðina. Það er ein- faldlega ekki satt og ekki einu sinni nærri lagi því að Islendingar eru mjög aftarlega á merinni hvað þetta varðar ef við berum okkur saman við hin Norðurlöndin.“ Frumkvæði og ábyrgð „Það er alveg ljóst að með tilteknum aðferðum er hægt að efla byggðina utan höfuðborgarsvæðis- ins,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga aðspurður hvort og hvemig sambandið hafi beitt sér til þess að stemma stigu við fólksflóttanum af lands- byggðinni. „En sú efling felst ekki eingöngu í að færa fleiri verkefni, meiri völd, fjármagn og á- byrgð út í héruðin. Hún felst ekki síður í því að skapa þar fjölbreytt mannlíf þar sem ákveðið jafnvægi ríkir milli hefbundinnar atvinnustarf- semi, menningar, menntunar og tómstunda. Þetta hlýtur að vera sú undirstaða sem allt veltur á.“ Vilhjálmur segir að móta þurfi ákvarðanir í byggðamálum með öðmm hætti en gert hafi ver- ið hingað til og segir hann fmmkvæði og ábyrgð þurfa að færast með auknum hætti til sveitarfé- laganna sjálfra. „Þar kem ég að því sem er kannski kjarni málsins. Flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaganna hefur gert þau hæfari til að takast á við stjórnun mikilvægra verkefna og auðveldað þeim að axla ábyrgð á tilteknum verk- efnum heimafyrir.“ Vilhjálmur segir að náðst hafi verulega mikil árangur á síðustu árum í stækkun og sameiningu sveitarfélaga og gegnir það mikilvægu hlutverki í því að nútímavæða stjórn landsbyggðarinnar. Árið 1990 voru þau 204 en í dag 124. „Þetta er kannski eitt stærsta sveitarstjórnarmálið í dag. Þessi tvö mál, flutningur verkefna og sameining sveitarfélaga, eru þau helstu sem Samband ís- lenskra sveitarfélaga hefur beitt sér fyrir til þess að hafa áhrif á þróun byggðarinnar.“ En hvað finnst Vilhjálmi um tillögur alþingis- mannanna um skattalækkanir í dreifbýlinu: „Ég er ekki hlynntur því að setja lög sem festa slíkt niður. Það er að vísu ákveðinn sveigjanleiki í lög- unum sem gefur sveitarfélögunum svigrúm í á- lagningu útsvars- og fasteignaskatta en allt um- fram það finnst mér ekki ráðlegt.“ Lengst frá Reykjavík Það sveitarfélag sem er í hvað mestri fjarlægð frá höfuðborginni er Öxarfjarðarhreppur en fjær frá Reykjavík verður ekki komist þurrum fótum hér- lendis. íbúum þar hefur fækkað um helming á síðustu þrjátíu árum. Ingunn Svavarsdóttir var sveitarstjóri þar frá 1988 þar til nýverið og minn- ist þess að þeim fyrir austan hafi verið spáð jafn- vel enn meiri fækkun en svo hafi ekki orðið: „Við höfum snúið blaðinu við með því að taka saman höndum og byggja upp öflug fyrirtæki. Eftir að kaupfélagið hrundi 1988 og ástandið var hvað verst hefur mikið starf verið unnið hér og margt breyst til batnaðar. Við höfum meðal annars lagt nýja hitaveitu og erum að fara í mjög spennandi verkefni núna með Landsvirkjun og RARIK sem við köllum Öxar við ána og gengur út á að finna hér hentugar aðstæður fyrir orkuver á söndunum við Öxarfjörð. Við höfum borað eina tilraunaholu sem við byrjum að vinna í í byrjun ágúst og ætl- um meðal annars að kanna gasuppstreymi hér með tilliti til hugsanlegrar olíu.“ Ingunn segir það ólíkt fýsilegri kost að virkja háhitasvæðin heldur en náttúruperlu eins og til dæmis Dettifoss: „Við viljum halda honum fyrir ferðamennina - og okkur.“ „Við höfum fyrst og fremst reynt að auka lífs- gæðin hjá íbúum hreppsins,“ segir Ingunn um á- stæður þess að röskun byggðar hefur ekki verið tilfinnanleg í Öxarfjarðarhreppi. „Skólastarfið er virkt og öflugt, kennarar góðir og fólk kann að meta slíkan metnað. Ungt fólk finnur hér líka hvað er gert vel við bömin þeirra en við vorum ein þau fyrstu sem færðum leikskólana inn í grunnskólann, þar sem við emm líka með tónlist- arkennslu. Þrír skólar undir einum hatti þýðir það að kennsla verður öflug og fjölbreytt og fólk veit af því. Svo auðvitað höfum við eftir megni hlust- að á þær tillögur sem fólk hefur sjálft fram að færa - það er jú það sem býr héma.“ Ingunn telur að dreifbýlið geti hæglega keppt við höfuðborgarsvæðið með því að vera í takt við tímann og laga sig að þörfum fólksins. „Það sem mér finnst okkur skorta fyrst og fremst er nokk- urs konar fullorðinsfræðsla, það er að fólk sem býr í dreifbýlinu fái kennslu til sín á hinum ýmsu sviðum. Ég er fullviss um að ef okkur tekst að koma henni til framkvæmda muni hún draga verulega úr þessum fólksflótta sem geisað hefur um allt land undanfarin ár.“ En heldur Ingunn að botninum sé náð? „Já, ég er alveg sannfærð um það,“ segir hún og hlær dátt. „Það er svo yndislegt að búa í fámenni þar sem hver einstaklingur vegur svo mikið. Ég er viss um að ef komið er til móts við aðrar kröfur fólks muni sú staðreynd vega þungt í því að halda fólki hér áfram. Hingað hefur flust til dæmis fólk úr Reykjavík sem er alveg dolfallið yfir því hversu gott það er að búa úti á landi. Það hefur samanburðinn þannig að eitthvað hlýtur að vera að marka það. Ég er alveg handviss um það að okkur tekst að snúa þessari þróun við.“ Finnur Þór Vilhjálmsson er lausapenni og er búsettur í höfuðborginni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.