Ský - 01.08.1998, Qupperneq 50

Ský - 01.08.1998, Qupperneq 50
Uunartoq eyju, sem er einmitt næsti viðkomustaður okkar. Náttúrulegar heitar laugar eru afar fágæt fyrirbrigði í landinu. Þeirra lang þekktastar eru laugamar í Uunartoq. Vatnið er notalega heitt, 37 til 38 gráð- ur, og streymir beint upp úr sandbotn- inum. Betri byrjun á degi er varla hægt að hugsa sér. Maður getur ekki orðið annað en steinhissa á andstæðunum á þessum slóðum þar sem búsældarlegar sóleyjar og iðagræn tún bera við borg- arísjakana. Næsti bær á leið okkar vestur eftir suðurströndinni er Alluitsup Paa, rík- asta byggðarlag Suður-Grænlands. Á- stæðan fyrir því er sú að þar er staðsett stór rækjuverksmiðja Royal Green- land, sem pakkar meðal annars dýr- mætri útsjávarrækju fyrir Japansmark- að. Lætur nærri lagi að minnsta kosti einn úr hverri fjölskyldu þessa 500 manna bæjar vinni í verksmiðjunni en alls starfa þar um 100 manns. Verk- smiðjan er lokuð vegna sumarfría og það er rólegt yfir bænum. Það er hins vegar ekki rólegt í næstu höfn, Qaqor- toq, enda er það stærsti bær Suður- Grænlands með á fjórða þúsund íbúa. Qaqortoq er mennta-, verslunar- og stjórnsýslumiðstöð landshlutans og þar kemur við meirihluti allra ferða- manna sem heimsækja Suður-Græn- land. Ekki þarf maður þó að óttast að týnast í ferðamannastraumnum þar sem aðeins um 2.500 gestir sækja suð- urhluta landsins heim á ári. Er það reyndar drjúgur hluti allra ferðamanna sem koma til landsins árlega en þeir losa um 15.000 í allt. Eins og sést á þeirri tölu er ferðamennska ennþá lítil en Grænlendingar binda miklar vonir við greinina og hafa þegar fjárfest töluvert í henni. í Qaqortoq er til dæm- is margt um að vera fyrir ferðamenn, bæði í bænum sjálfum og eins skipu- lagðar ferðir um nágrennið. Stutt sigl- ing er frá bænum til heitu lauganna í Uunartoq, ferðir að meginlandsísnum eru vinsælar og síðast en ekki síst er ekki langt til landnámsjarða hinna fornu norrænu íbúa landsins, Garða, Bröttuhlíðar og Hvalseyjar. Talið er að hátt í fimm þúsund manns hafi myndað norræna landnámið þegar mest var. Fyrstur kom Eiríkur Rauði með sitt fylgdarlið árið 982 en landnámið leið að öllum líkindum undir lok 15. aldar. Þjóðminjasafn Grænlands hefur um 400 svæði á skrá þar sem fundist hafa mannvistarleifar eftir landnemana. Þetta eru mjög mismikil ummerki en best varðveittu minjamar er að finna á höfðingjasetrinu Hvalsey. Þar stendur enn þann dag í dag mikil steinkirkja sem áætlað er að hafi verið reist skömmu áður en síðustu norrænu mennimir hurfu af landinu. Einnig em greinilegar rústir af sjálfum bænum í næsta nágrenni við kirkjuna og af þeim má augsýnilega sjá að þar bjó höfðingi sem átti mikið undir sér. Ummerki norrænu landnámsmann- anna eru kannski ekki jafn tilkomu- mikil í Bröttuhlíð (Qassiarsuk) og Görðum (Igaliku) en það er engu að síður mikil upplifun að ganga um tún Eiríks Rauða og hins foma biskupsset- urs í Görðum. Grænlensku rollurnar Ymsar skýringar hafa verið á kreiki varðandi brotthvarf norrænu land- námsmannanna frá Grænlandi. Var meðal annars um tíma talið að inn- fæddir hefðu gert útaf við landnáms- fólkið. Sýnt hefur verið fram á að sú söguskýring stenst ekki og er nú talið víst að nokkrir samverkandi þættir 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.