Ský - 01.08.1998, Page 51
Grænland
Við smábátahöfnina í bænum Narsaq sem var einn af viðkomustöðunum í ferðinni.
hafi riðið landnáminu að fullu. Þyngst
vóg að veðurfar á Grænlandi fór mjög
kólnandi síðari hluta landnámstímans
og þar sem fólkið byggði afkomu sína
fyrst og fremst á landbúnaði hafði það
afgerandi áhrif í för með sér. Á sama
tíma lögðust skipakomur frá ís-
landi og Skandinavíu nánast af
og þar með aðdráttur ýmissa
nauðþurfta.
Með landnámsfólki hvarf allt
búfé, hestar, kindur og kýr. Bú-
skapur varð ekki aftur lifibrauð á
Grænlandi fyrr en árið 1783 þeg-
ar norski kaupmaðurinn Anders
Olsen gerðist bóndi á efri árum
ásamt innfæddri konu sinni. Sett-
ust þau að í Igaliku, þar sem
biskupssetrið Garðar var forðum,
en þar eru einhverjar gjöfulustu
sveitir Suður-Grænlands. Upp
frá því hefur verið stöðugur bú-
skapur á landinu og í dag eru þar um
60 bændur. Allir eru þeir sauðfjár-
bændur og búa svo til eingöngu í suð-
urhluta landsins.
Sauðfjárstofninn er kominn frá Is-
landi en Grænlendingar halda því ó-
trauðir fram að þeirra lambakjöt sé
betra á bragðið en það íslenska. Við
sem þjóðræknir íslendingar áttum nú
nokkuð erfitt með að kyngja þeirri
fullyrðingu, þar til við fengum að
bragða það sjálfir á bóndabæ í Tasi-
usaq. Grænlenska lambið er betra.
Skýringin á því er sjálfsagt náttúru-
valskenning Darwins. Harðneskjulegt
ilumhverfið hefur í áranna rás orðið til
þess að styrkja grænlenska sauðfjár-
stofninn þar sem einungis sterkustu
dýrin hafa lifað af. Og fyrir vikið er
fallþungi grænlenskra dilka verulega
meiri en íslenskra.
Tasiuasaq er í 8 kflómetra fjarlægð
frá Bröttuhlíð og liggur leiðin yfir
fallega heiði. Þaðan er stutt sigling
yfir til Narsarsuaq flugvallar. Þetta
er yndisleg sveit þar sem búið er á
tveimur bæjum. Rollumar reika um
iðagrænan dalinn og heiðarnar. Við
rákumst líka á íslenska hesta þar
og komumst að því að 100 hross
em á landinu.
Fjölskyldan á öðrum bænum
rekur lítið farfuglaheimili og þar
er hægt að kynnast grænlenskri
gestrisni eins og hún gerist best.
Húsmóðirin á heimilinu er
Jprgine Frederiksen sem sér um
að enginn fer svangur að sofa.
Aðalréttir em lambakjöt eða sjó-
bleikja úr lóninu við bæinn, og
vekur hún svo fólk með vel úti-
látnum morgunverði.
Við eyddum síðustu nóttinni á
Grænlandi í Tasiuasaq. í þessari
búsældarlegu sveit sést kannski best
hvað það var sem dró bændurna í
hópi landnámsfólksins til Grænlands
og af hverju Eiríkur Rauði gaf land-
inu þetta nafn.
Jón Kaldal er ristjóri Skýja.
Páll Stefánsson er Ijósmyndari blaðsins.
49