Ský - 01.08.1998, Page 56
AUSTFIRÐIR OG
EGILSSTAÐIR
FLUGFÉLAGSBÆRINN
Forláta líkön
Sjóminjasafn Austurlands á Eskifiröi
sem ekki sjást í verslunum í dag. Inn af krambúðinni er
komið í sjálfa sjóminjadeildina og má þar sjá ýmis tæki og
tól sem brúkuð voru við allt frá hval- til síldveiða.
Efri hæð hússins er tileinkuð minjum frá ýmsum iðnaði
sem var stundaður á staðnum. Þar er einnig gamall Ijós-
myndabúnaður, vígaleg heilsugæslutæki og lítt árennileg-
ar tannlæknagræjur.
Fyrir utan muni fyrri tíma eru mörg sérstaklega athyglis-
verð líkön á safninu. Má þar nefna nokkur falleg bátalík-
ön og eins mjög sérstakt líkan af stórri hvalveiðistöð sem
var starfrækt í Hellisfirði árin 1904 til 1913, fyrst af Norð-
mönnum en síðar af Skotum. Þetta líkan ásamt fleirum er
eftir Geir Hólm, safnvörð Sjóminjasafnsins. Að sögn Geirs
voru 1243 hvalir drepnir á starfstíma stöðvarinnar og voru
þar yfirleitt á milli 40 og 50 manns að störfum. Má því
segja að þar hafi verið sannkölluð stóriðja á sínum tíma.
Á efri hæðinni er ekki síður tilkomumikil smíði eftir
Geir en það er um það bil 6 metra langt líkan sem sýnir
byggðina við Eskifjörð eins og hún var 1923 þegar um 630
íbúar bjuggu á staðnum. Meirihluti húsanna sem sjá má á
líkaninu standa enn og er gaman að rýna í líkanið og
skoða bæinn svo á eftir.
Geir Hólm safnvörður Sjóminjasafnsins við árabát frá 1916.
Sjóminjasafn Austurlands er á Eskifirði til húsa í gömlu
verslunarhúsi sem verslunarfélagið Örum & Wulff
byggði um 1816.
Inngangur hússins er þar sem gamla krambúðin var. Hef-
ur hún verið endurgerð og þar komið fyrir ýmsum vörum
KynníOð
Vinnuveitandi þríðjungs bæjarbúa
Hraöfrystihús Eskifjaröar
Hólmaborgin, eittfimm skipa Hraðfrystihúss Eskifjarðar, á leið
á miðin frá heimahöfn.
Hraðfrystihús Eskifjarðar var stofnað árið 1944 af fjölda
einstaklinga og fyrirtækja á staðnum. í fyrstu var rekst-
urinn smár í sniðum og aðeins saltaður og frystur fiskur
hluta úr ári, en smátt og smátt hafa umsvifin aukist.
Hraðfrystihúsið er mjög vel tækjum búið. Þar voru fram-
leidd 6.750 tonn af afurðum á síðasta ári, sem fara á mark-
að í mörgum löndum Asíu, Evrópu og Ameríku. Gæði
framleiðslunnar eru rómuð og bera fjöldi viðurkenninga
viðskiptavina þess því vitni.
Hraðfrystihús Eskifjarðar rekur eina fullkomnustu og
stærstu hágæðamjölsverksmiðju landsins en hún afkastar
rúmum 1000 tonnum á sólarhring. í verksmiðjunni eru
framleidd 35.000 til 45.000 tonn af mjöli og lýsi á ári.
Saltfiskvinnsla hefur ávallt verið töluverð hjá fyrirtækinu
og eru þar framleidd 300 til 500 tonn af afurðum á ári við
góðar aðstæður. Framleiðslan hefur þó farið minnkandi á
síðustu árum vegna minni fiskkvóta og er að mestu seld í
löndum Suður-Evrópu.
Árið 1986 keypti fyrirtækið síldarsöltunarfyrirtæki sem
saltað hefur á hverju ári töluvert magn af síld og síldar-
flökum, að undanteknum þremur síðustu árum. Frá upp-
hafi hefur verið unnið skipulega að endurbótum og svarar
deildin nú öllum þeim kröfum sem gerðar eru. Afurðirnar
eru að mestu seldar á Norðurlöndunum og í Þýskalandi.
Árið 1988 hóf fyrirtækið rekstur rækjuverksmiðju. Fyrstu
árin voru framleidd um 300 til 500 tonn á ári, en vegur
rækjuvinnslunnar hefur farið ört vaxandi og framleiðir
fyrirtækið nú um 1000 tonn af rækju á ári sem seldar eru
víða í Evrópu við góðan orðstír.
í dag á Hraðfrystihús Eskifjarðar fimm skip sem afla hrá-
efnis fyrir hinar ýmsu deildir fyrirtækisins, en að auki eru
nokkur önnur skip í föstum viðskiptum við fyrirtækið.
Að jafnaði starfa 250 til 300 manns hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar. Heildarvelta fyrirtækisins árið 1997 var um það
bil 3,7 milljarðar króna. Forstjóri er Aðalsteinn Jónsson.
54