Ský - 01.08.1998, Síða 57

Ský - 01.08.1998, Síða 57
I AUSTFIRÐIR OG EGILSSTAÐIR FLUGFÉLAGSBÆRINN I Mokstur grunnnám í blakinu Þróttur Neskaupstaö er stórveldi í íslensku blaki Þegar minnst er á Neskaupstað kem- ur sjálfsagt blak fyrst upp í hugann á þeim sem eitthvað fylgjast með í- þróttum. Blaklið Þróttar hafa undan- farin ár gert það gott, sérstaklega kvennaliðið sem hampaði íslandsmeist- aratitlinum fyrir tveimur árum. Ekki slæmur árangur fyrir lið í ríflega 1.600 íbúa bæ. Kvennalið Þróttar gerði það heldur ekki endasleppt í vetur, keppti til úr- slita bæði í bikar- og íslandsmóti en náði ekki titli að þessu sinni. Mikil blakhefð er á Neskaupstað. Upphafsmenn íþróttarinnar í bænum voru Ólafur Sigurðsson og Grímur Bjarnason en þeir lögðu grunninn að blakinu fyrir um tveimur áratugum. Aðspurð af hverju það var blak en ekki einhver önnur íþrótt sem náði þessari miklu fótfestu, svarar Elma Guðmundsdóttir, gjaldkeri blakdeildar Þróttar: „Blakvakninguna má kannski rekja til þess við vorum með svo lítið íþróttahús að það var ekki hægt að stunda neinar aðrar íþróttir þar." Fyrir tveimur árum var hins vegar vígt nýtt og glæsilegt íþróttahús í bænum og vildi þá svo skemmtilega til að þá um vorið tryggðu konurnar sér íslandsmeistaratitilinn. Um 600 áhorfendur komu að sjá þegar titillinn vannst og er það metaðsókn á blakleik hérlendis. Sex landsliðsmenn í blaki koma úr Þrótti. Þrír eru í a- landsliðum karla og kvenna og þrír í unglingalandsliðum. Petrína Björg Jónsdóttir er ein þeirra, en hún er fyrirliði kvennalandsliðs íslands. Auk þess er Petrína formaður Blakdeildar Þróttar. Það er óhætt að segja að blak sé fjöl- skylduíþróttin hjá henni því hún er dóttir Elmu, gjaldkera deildarinnar, og móðir Huldu Elmu Eysteinsdóttur sem er unglingalandsliðskona í blaki. Að sögn Petrínu liggur nærri að 10 prósent íbúa Nes- Landsliðsfólk Þróttar bregður á leik í strandblaki. A-landsliðsmenn eru: Petrína Björg Jóns- dóttir, Dagbjört Víglundsdóttir og Brynjar Pétursson. Unglingalandsliðsmenn eru: Hulda Elma Eysteinsdóttir, Matthías Haraldsson og Sævar Sólheim. kaupstaðar iðki blak. Alls stunda 140 manns íþróttina og eru konur ívið fleiri Umsvif blakdeildar Þróttar eru mjög mikil og bendir Elma á að velta deildarinnar sé jafnmikil og samanlögð velta Blaksambands íslands. Það er dýrt að halda úti blakliði frá Neskaupstað og vegur ferðakostnaður þar langþyngst. Oft hefur verið erfitt að komast í leiki fyrir lið Þróttar og lengi vel var farið í allar keppnisferðir í rútu. Þá var lagt í hann sama hvernig viðraði og tóku allir með sér skóflu. „Hér varð enginn blakari fyrr en hann var búinn að læra að moka," segir Petrína hlæjandi og bætir við að það hafi nánast ekki komið fyrir að þurft hafi að seinka eða fresta leik því lið Þróttar komust alltaf á leiðarenda. Náttúrugripasafnið á Neskaupstað hefur marga skemmti- lega muni að geyma. í fiskadeild safnsins ertil dæmis að finna uppstoppaðan annan þyngsta og þriðja lengsta lax sem hefur veiðst á íslandi. Vóg ferlíkið 45 pund óblóðgaður og var 120 sm. á lengd og 75 sm. að ummáli. Þá er þar skemmtilegt safn uppstoppaðra fugla og mikið og athyglis- vert steinasafn sem Jóhann Sigmundsson færði Náttúru- gripasafninu að gjöf árið 1988. 55
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.