Ský - 01.08.1998, Side 58
I
AUSTFIRÐIR OG
EGILSSTAÐIR
FLUGFÉLAGSBÆRINN
I
Austast á Austfjörðum
GönguLeiöir um Noröfjörð og nágrenni
Gönguhópur á ferð við foss í Norðfjarðará í landi Seldals í
Norðfjarðarbotni.
Norðfjörður og nágrenni er um margt ónumið land fyrir
göngufólk. Það er að segja.fjölmargar skemmtilegar
gönguleiðir eru á þessum slóðum en þær hafa ekki enn ver-
ið uppgötvaðar nema af tiltölulega litlum hópi að sögn ínu
Gísladóttur, leiðsögumanns á Neskaupstað.
Gönguáhugafólk fyrir austan hefur verið iðið við að stika
spennandi leiðir. Nýbúið er að stika leið frá Neskaupstað yfir
í Mjóafjörð um Miðstaðaskarð og segir ína að það sé örugg-
lega ein brattasta gönguleið landsins. Einnig hefur verið
stikuð leið í næstu firði í hina áttina, Hellisfjörð og Viðfjörð
og svo út í Gerpi, austasta tanga íslands þar sem einnig er
talið að elsta berg landsins sé að finna.
Að sögn Inu er ákaflega fjölbreytt og skemmtileg göngu-
leið út á Barðsnes, norður af Gerpi. Þar eru hærri fjöll en
víðast annars staðar á svæðinu. Forn megineldstöð er á
Barðsnesi og berg þar mjög litskrúðugt og sérstætt.
ína segir að fátt jafnist á við að vera á Barðsnesi í góðu
veðri.
„Útsýni þar er hreint ótrúlegt og í góðu skyggni sést alla
leið norður að Glettingi."
Ekki má gleyma að geta þess að fyrsti fólksvangur landsins
er utan við Neskaupstað og er þar margt að skoða, til dæmis
Páskahelli og svokallaðar Urðir, sem er stórgrýtisurð ættuð
úr Hagaklettum.
Stríðið frá íslenskum sjónarhóli
íslenska stríösárasafnið á Reyðarfirði
Stríðsárasafnið er til húsa þar sem Spítalakampurinn var forðum.
egar gestir ganga innfyrir dyr íslenska stríðsárasafnsins á
Reyðarfirði er engu líkara en þeir hafi stigið hálfa öld
aftur í tímann. Sandpokar, einkennisbúningar, vopn, hjálmar
og ýmsar aðrar minjar frá stríðsárunum hefur verið hagan-
lega fyrir komið í safninu sem opnaði 1995 eftir nokkurra
ára undirbúning.
Á árum síðari heimstyrjaldarinnar voru herir Bandamanna
með bækistöðvar á Reyðarfirði. Fyrstir komu Bretar ásamt
norskri herdeild en síðar leystu bandarískir hermenn þá af
hólmi.
Á þessum tíma voru íbúar Reyðarfjarðar aðeins um 300
talsins en þegar mest var voru um 4.000 hermenn staðsettir
þar. Viðvera herliðsins hafði óhjákvæmilega mikil áhrif á
bæjarlífið og ekki síður ásýnd bæjarins. Margir braggar risu
og standa sumir þeirra enn.
Safnið er til húsa í gömlu frystihúsi sem stendur raunar
þar sem Spítalakampurinn var forðum daga og er það um-
kringt nokkrum af gömlu herbröggunum.
Safnið er vinsæll viðkomustaður ferðamanna en um 2.500
gestir heimsóttu það síðasta sumar.
Á safninu má meðal annars sjá hvernig var innanstokks í herbröggun-
um á Reyðarfirði.
56