Ský - 01.08.1998, Side 59

Ský - 01.08.1998, Side 59
I AUSTFIRÐIR 0 EGILSSTAÐIR FLUGFÉLAGSBÆRINN I Serbneskur ofuragi LykiLLinn aö frábærum árangri knattspyrnuliðs KVA Daníel Borgþórsson, leikmaður KVA og vallarstjóri á Reyðarfirði, að strika völlinn fyrir komandi átök. Það knattspyrnulið sem hefur komið hvað mest á óvart í íslenskri knattspyrnu þessa leiktíð er 1. deildarliðið KVA, Knattspyrnusamband Vals og Austra. Þegar þetta er skrifað er langt frá því Ijóst hvaða tvö lið úr l.deild vinna sér þátttökurétt í úrvalsdeildinni að ári, en að KVA sé enn með í þeirri baráttu þegar mótið er rúmlega hálfnað er frábær árangur hjá liði sem var í neðstu deild íslandsmótsins fyrir tveimur árum. Forráðamenn Vals frá Reyðarfirði og Austra frá Eskifirði ákváðu að sameina krafta liðanna árið 1994 eftir að þau höfðu um árabil tekið þátt í íslandsmótinu í sitt hvoru lagi án teljandi árangurs. Það ár og árið eftir lék KVA í 4. deild. En 1996 verða tímamót hjá félaginu þegar Serbinn Miroslav Nicolic gerðist leikmaður og þjálfari liðsins. Þá leiktíð tapaði KVA ekki einum einasta leik og vann sig upp um deild eða í 2. deild eins og gamla 3. deildin var endur- skírð eftir að úrvalsdeildin var sett á fót 1997. KVA staldraði aðeins eitt tímabil við í 2. deildinni, lenti í öðru sæti og komst upp í þá fyrstu fyrir þetta keppnis- tímabil. Hroðaleg blótsyrði Áður en tímabilið hófst bjuggust fæstir við að KVA myndi láta að sér kveða og var fremur talið að liðinu biði erfið botnbarátta. En sú hefur aldeilis ekki orðið raunin. KVA hefur leikið afbragðsvel og sýnt fram á að árangur undan- farinna ára er engin tilviljun. En hver skyldi vera skýringin á þessari velgengni? Daníel Borgþórsson, leikmaður KVA og vallarstjóri á Reyðarfirði, segir að það sé ekki spurning að hinn serbneski þjálfari liðsins, Miroslav Nikolic sé mað- urinn að baki árangrinum. „Já, hann hefur nánast búið þetta til hérna," segir Daní- el. „Hann er gríðarlega harður og það er óhætt að segja að það ríki heragi á æfingum hjá honum. Þessi mikli agi er eitthvað sem maður var ekki vanur og það tók smá tíma fyrir leikmenn að venjast honum. En það er aftur á móti tvímælalaust af hinu góða. Menn eru í betra formi en þeir voru áður og þetta er mikið skemmtilegra fyrir vikið." Að sögn Daníels er Miroslav óhræddur við að láta menn heyra það óþvegið ef honum finnst þeir ekki vera að gera sitt besta. „Hann skammar okkur hiklaust á serbókróatísku og tvinnar svoleiðis saman hroðalegustu blótsyrði. Ég held að maður yrði ekki vinsæll ef maður færi á heimaslóðir hans og léti útúr sér eitthvað af því sem maður hefur lært hjá honum," segir Daníel hlæjandi. Tveir heimavellir KVA leikur heimaleiki sína til skiptis á Eskifirði og Reyðar- firði. Daníel segir það fyrirkomulag hafa mælst mjög vel fyrir og nú hafi liðið tvo grasvelli til þess að æfa og leika á. Heimamenn eru duglegir að mæta á leiki og þegar leikið er fyrir sunnan láta margir brottfluttir Austfirðingar sjá sig. Lið KVA er að mestu skipað leikmönnum af Austurlandi. Þrír koma frá Eskifirði, fjórir frá Reyðarfirði, tveir frá Egils- stöðum og einn frá Djúpavogi. Þeir sem ekki teljast til heimamanna eru þrír Júgóslavar, einn Selfyssingur og einn Akureyringur. Útsýnið frá velli KVA á Reyðarfirði. KVA er það knattspyrnulið sem hefur komið mest á óvart á Islandsmótinu í knattspyrnu í sumar. 57

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.