Ský - 01.08.1998, Qupperneq 60
I
AUSTFIRÐIR 06
EGILSSTAÐIR
FLUGFÉLAGSBÆRINN
Ein besta höfn landsins
FjöLmennt í bænum dagana á undan ferju
Seyðisfjarðarbær stendur við eina bestu höfn landsins frá
náttúrunnar hendi. Aðdýpi er þar mikið og gott skjól.
Innsiglingin, bæði í firðinum sjálfum og utan hans, er laus
við eyjar og sker sem er mikill kostur við höfn. Hvergi á land-
inu er meira viðlegurými miðað við íbúa en á Seyðisfirði. Og
þar sem öll þjónusta við sæfarendur er að auki mjög góð í
bænum hafa samgöngur á sjó ávallt verið miklar.
Fyrr á árum voru fastar skipaferðir milli Seyðisfjarðar og
Evrópu en þær lögðust af fyrir miðja þessa öld. Árið 1975
hófu hins vegar Færeyingar í samvinnu við heimamenn
vikulegar siglingar yfir sumarmánuðina með bíl- og far-
þegaferju milli Seyðisfjarðar, Færeyja og Skandinavíu. Fyrst
með ferjunni Smyrli en síðari ár með Norrænu.
Ferjusiglingarnar eru áberandi þáttur í bæjarlífinu á
sumrin. Að sögn Davíðs Gunnarssonar lögregluvarðstjóra,
taka ferðamenn sem ætla með ferjunni að streyma til bæj-
arins þegar um og upp úr helginni fyrir brottför, en Nor-
ræna kemur og lætur úr höfn alla fimmtudaga á sumrin.
„Þessir dagar á undan ferju eru mjög mikilvægir fyrir
verslun og atvinnulíf í bænum. Það stoppa fáir hér á komu-
dag en margir hins vegar á leiðinni til baka. Og ef veðrið er
gott staldrar fólk jafnvel við hérna í nokkra daga," segir
Davíð.
Sérstaklega er kátt á hjalla á Seyðisfirði á miðvikudögum
þegar fólksfjöldinn er hvað mestur. Á komudag ferjunnar
þegar allt að 700 manns koma á land og annar eins fjöldi
bíður þess að stíga um borð, þrefaldast fólksfjöldinn í bæn-
um í nokkrar klukkustundir ef áhöfn Norrænu er talin með.
Allt frá árinu 1936 hefur síldar- og loðnubræðsla verið ein
Ekið um borð í Norrænu í Seyðisfjarðarhöfn.
af styrkustu stoðum atvinnulífs bæjarins. SR-mjöl rekur eina
fullkomnustu bræðslu Evrópu á Seyðisfirði en þar eru allt
að 1.000 tonn af fiski brædd á sólarhring. Þrátt fyrir þetta
magn finnst hin alkunna peningalykt ekki fyrr en alveg er
komið upp að verksmiðjunni sjálfri í útjaðri bæjarins. Er
það að þakka góðum mengunarvarnarbúnaði.
Það er því óhætt að segja að mikið líf sé á hafnarsvæði
Seyðisfjarðar en þar eru jafnt á ferð stór skip og smábátar.
Þeir sem hafa svo áhuga á að fá sér siglingu til næstu fjarða
eða renna fyrir fisk á sjóstöng geta nýtt sér þjónustu báts-
ins Jóa félaga.
Fjölmörg gömul og falleg hús eru á Seyðisfirði. Gamli
barnaskólinn er ein af perlum bæjarins en þar eru iðulega
sýningar af ýmsu tagi á sumrin. Torgið fyrir framan húsið
hannaði Þóra Guðmundsdóttir arkitekt. Skúlptúrinn er eftir
Kristján Guðmundsson og var verkið reist í tilefni af 100 ára
afmæli bæjarins árið 1995. Sýnir það útlínur Seyðisfjarðar.
Listalífið
-fjörlegt á sumrin
ASeyðisfirði er jafnan líflegt listalíf á sumrin sem jafnt heimamenn,
innlendir og erlendir ferðamenn nýta sér óspart.
Að sögn Grétu Garðarsdóttur, annars menningar- og auglýsingafull-
trúa bæjarins, eru alltaf að minnsta kosti fjórar myndlistasýningar í
gangi á sama tíma yfir sumarið; ein í listamiðstöðinni Skaftfelli í hjarta
bæjarins, ein í húsakynnum gamla barnaskólans, ein á hótel Snæfelli
og svo er standandi sölusýning allt árið á verkum Stefáns „Stórvals"
frá Möðrudal að Vesturvegi 8. Sér Jón Aðalsteinn, sonur Stefáns heit-
ins um sýningu og sölu á verkunum.
Einu sinni yfir sumarið er svo haldinn menningardagur barna og er
afraksturinn af því framtaki sýndur sérstaklega.
En það er ekki einungis myndlistin sem er áberandi á Seyðisfirði.
Hvert sumar er tónleikaröðin „Bláa kirkjan" haldin á miðvikudögum í
kirkju bæjarins. Þar gefst áhugasömum kostur á að troða upp með
efni að eigin valin, til dæmis með Ijóðalestur eða tónlistarflutning,
áður en hinir eiginlegu tónleikar hefjast en að sögn Grétu hafa margir
af fremstu tónlistarmönnum landsins leikið á tónleikaröðinni.
58