Ský - 01.08.1998, Page 73

Ský - 01.08.1998, Page 73
KYNNING ARSÍ ÐUR Halifax býður upp á fleira en verslanir. Árið 1993 kallaði tímaritið Harper’s Bazaar borgina „ný- tískuborg í orðsins fyllstu merkingu”. Klúbbar, krár, tískuverslanir, kaffihús og veitingahús sem bjóða mat ffá ýmsum löndum, allt iðar þetta af lífi steinsnar frá göml- um kirkjugarði sem heflir að geyma legsteina frá 1752. Á hverjum degi í hádeginu er hleypt af fallbyssum í Borgar- virkinu, fjölsóttasta sögustað Kanada. Á haustin er alþjóð- leg kvikmyndahátíð þar sem kvikmyndir frá löndum við Atlantshafsströndina skipa heiðurssess, febrúar er mánuður afrískrar arfleifðar og tónleikahald í því tilefni: í Halifax er úrvalið af listsýningum og tónleikum ótrúlegt miðað við stærð borgarinnar. I menningarlífinu er Neptune-leikltúsið eitt af rnerk- ustu leikhúsum landsins. I þessu fallega, nýuppgerða leik- húsi starfa fremstu leikarar, leikstjórar, tónlistarmenn og sviðshönnuðir í Kanada og skapa hrífandi leiksýningar. Skemmtikraftar á alþjóðlegum mælikvarða - allt frá sveita- söngvurum til rokk- og dægurlagasöngvara - halda tón- leika í Halifax Metro Centre, stærstu og áhugaverðustu skemmtanamiðstöðinni á Atlantshafsströnd Kanada. Iþróttaáhugafólk lætur árleg körfúbolta- og íshokkímót ekld fram hjá sér fara. Nova Scotia sinfóníuhljómsveitin leikur verk gömlu meistaranna af mikilli snilld og fær til liðs við sig heims- frægt tónlistarfólk ásamt því að kynna til leiks afburðahæfi- leikafólk úr sínum eigin röðum. Framúrskarandi gestir á sviði klassískrar tónlistar og þekktir heimamenn deila svið- inu með sinfóníuhljómsvetinni. I Halifax er að finna eitt stærsta safn minja um far- þegaskipið Titanic í Norður-Ameríku. í Sjóminja- og sigl- ingasafninu er nýlega búið að opna sýninguna, Titanic: Skipið ósöklcvandi og Halitáx. Tað er ómaksins vert að skoða hana. Nova Scotia

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.