Ský - 01.08.1998, Side 74
KYNNING ARSÍÐUR
#*SÍ
Nom\so
K A N A D A
Nova Scotia er nýr áfangastaður við sjávarströnd
Norður-Ameríku. I’ar er margt hægt að taka sér fyr-
ir hendur og landslagið er fjölbreytt. Svo til alls
staðar meðffam 7.400 lcm langri strandlengjunni uppgötvar
maður eitthvað nýtt - himinháa kletta, stórfenglegt útsýni,
heilu breiðurnar af auðri sandströnd, tilkomumilda höföa,
skjólgóðar víkur og fiskiþorp, mýrar með fjölbreyttu dýralífi,
yfirleitt í þjóðareign og aðgengilegar.
Cabot-leiðin er ein fegursta akstursleiðin meðfram sjó í
allri Norður-Ameríku. Hún er hluti af yfirgripsmiklu og vel
skipulögðu vega- og göngustígakerfi fyrir ferðamenn hring-
inn í kringum landið. Hver leið er til vitnis um hina miklu
íjölbreytni sem einkennir strendur Nova Scotia.
Söfn, sögulegar byggingar og menningarmiðstöðvar alls
staöar í Nova Scotia veita mönnurn innsýn í sögu þessarar
siglingaþjóðar. I’arna er Louisbourg-virkið, stærsta endurupp-
gerða sögulega bygging Norður-Ameríku og Sherbrooke
Village á Sjávarleiðinni (Marine Drive), þar sem lífið í gamla
daga er sett á svið. UNESCO (Menningar- og vísindastofn-
un Sameinuðu þjóðanna) hefltr útnefnt Lunenburg, sem
stoínuð var árið 1753, menningarverndarsvæði (World
Heritage Site), en aðeins ein önnur borg hefur hlotið slíkan
heiður í Norður-Ameríku.
Til Nova Scotia er hægt að ferðast allan ársins hring, því
að á hverri árstíð er hægt að taka sér margt spennandi og for-
vitnilegt fýrir hendur.
Áhugafólk um útivist getur farið í fjallgöngur, hjólreiða-
ferðir og útilegur í þjóðgörðum Cape Breton Highlands eða
Kejimkujik. Cape Chignecto, nýjasti þjóðgarður Nova Scotia,
er spennandi ögrun fyrir þá sem eru sprækir og í góðu formi
- og vel þess virði að heimsækja. Við Fundyflóa streyma 100
milljarðar tonna af vatni tvisvar á dag inn í trekdaga vík, og
þá verða heimsins stærstu aðföll. Aðfallið sverfir ævintýralegar
myndir í landið og flytur ótrúlega mörgum fúgla-, fiska- og
sjávarspendýrategundum æti. Hér uppgötva áhugamenn um
steingervinga, [jósmyndarar, listamenn og náttúruffæðingar í
leit að fúglum eða hvölum, land drauma sinna.
Ferðamenn til Nova Scotia hafa ævinlega orð á gestrisni
íbúanna. Feir eru hlýlegir og vingjarnlegir í viðmóti og haía
gaman af því að ferðamenn njóti landsins með þeim.
Flugleiðir bjóða upp áflug og
bil til Hulifax, Nova Scotia.
Leitaðu til þinnar ferðaskrif-
stofu eða hringdu í Úrval-
Útsýn í sima 569 9300 o£f
Nova Scotia
m m - *.«