Ský - 01.08.1998, Qupperneq 82
UÓSM.: PÁLL STEFÁNSSON
Milli himins og jarðar
Hd leiKa
ÍvÆ5.4'V4^ ■' vfV\~H ’i. -5
i.-S' \s!yHk
§flfw
' "
Efftir rykið á Sprengisandi er ómi
Hofsjökuls. Par er skáli sem Féri
Vjiwgl
M'teaS
.••• •' . O':
ð Laugafell sem liggur norðan
r leikkona ræðtir þar húsum í
sumar. Páll Stefánsson Ijósmyndari fór í bað og tók spjall uið Ingrid í ieiðinini
/
g hef aldrei verið á fjöllum en hef haft gaman af
gönguferðum um víðáttur hálendisins, svo ég bara
sló til og réð mig hingað í þá tvo mánuði, júlí og
ágúst sem er opið hér við Laugafell. Það er svo gaman að
glíma við drauga. Nei, ég er ekki smeyk við þá enda er ég
sjaldnast ein, hér gistir alltaf einhver og síðan er jú að
mestu bjart allan sólarhringinn.
Þetta er auðvitað besti staðurinn til þess að kynnast
sjálfum sér. Byggja sig upp andlega, og auðvitað líkam-
lega. Héðan er gott að fara í styttri gönguferðir. Ég er ekki
með bíl svo ekki get ég skotist niður í Skagafjörð eða Eyja-
fjörð. Ég er með síma svo ég get auðvitað talað við vini og
kunningja eða hjálpað fólki, nú eða reynt að fá eitthvert
ferskmeti úr bænum. Það er jú pastaveisla hjá mér á hverj-
um degi, svo gott er að fá eitthvað nýtt og ferskt þegar
þannig stendur á.
Það sem mest hefur komið á óvart er veðrið. Ég fór
hingað norður til að fá mikið af sól en blessunin hefur svo-
lítið látið standa á sér, en það má þó segja að hér sé veður-
gott. Ég byrja alltaf daginn á því að setja upp íslenska fán-
ann og fara síðan í heitt og notalegt bað. Laugin hér er
alveg frábær. Ég vissi reyndar áður að hér væri heit laug en
ekki að hún væri svona góð, 38 gráður plús, það getur bara
ekki verið betra. Síðan er hér salemi sem er einstakt. Það er
með heitu vatni í vatnskassanum. Þegar ég tylli mér á volga
setuna og finn fyrir hitanum, þá finnst mér ég vera í
Reykjavík eitt augnarblik.
„Það er gaman hvað fólk er ræðið hér á fjöllum, allir tala
um veðrið, hvert skal halda, gefa greinargóða lýsingu á
ástandi fjallvega, spyrja hversu heit laugin sé, og svo kem-
ur alltaf ein klassísk spuming svona í lokin: Er ekki ein-
manalegt að vera svona ein á fjöllum? Síðan dettur það ofaní
laugina áður en lengra er haldið.
Andstætt því sem ég hélt þá finnst mér íslendingar
ganga betur um en útlendingar. Annars er umgengni fólks
að mestu leyti til fyrirmyndar. Reyndar vill það brenna við
þegar fimmtíu manna hestahópar koma hér að eitt heitt kló-
sett tekur ekki við öllum sem verður brátt í brók. Þá vilja
sumir fara heldur stutt frá skálanum og gera þarfir sínar. En
þetta er bara einn af þeim hlutum sem skálavörður verður
að kljást við. Öllum gestum sem hingað koma skal líða vel.
Öllum á að líða vel á fjöllum, að minnsta kosti er ég alsæl,
með mitt heita klósett.“
80
Páll Stefánsson er Ijósmyndari Skýja. Hann sest alltafá salernið við Laugafell þegar hann á leið þar um.