Ský - 01.06.2002, Side 7

Ský - 01.06.2002, Side 7
FOLK, LEIKHUS, BIÓ, UÓSMYNDIR, TIMARIT, BÆKUR, KAFFI, NEKT GEIMVERUR, SMOKKAR, HÖNNUN, VINDLAR, LÍKAMSRÆKT ... Sean Penn, Summer Phoenix, Milla Jovovich og David Lynch stjörnuskoðun kiósmyndarinn Bernharð Valsson er búinn aö koma sér vel fyrir á landakortinu yfir Ijósmyndara í París, þar þekkja menn hann sem Benni Valsson. Hann tekur jöfnum höndum myndir fyrir hiö virta dag- blað Liberation og franska kvikmyndatímaritiö Premiere ásamt því aó vinna fyrir mörg af helstu tískutímaritum heimsins. Hann hefur sem sagt nóg aö gera. En þaö hefur ekki alltaf veriö þannig. Benni flutti til Parísar haustið eftir aö hann útskrifaðist frá Menntaskólan- dm á Akureyri og ætlaði að búa eitt ár í borginni á Signubökkum. Þaö var fyrir fimmtán árum síðan. Fyrri hluta þess tíma eyddi hann sem aðstoðarmaður annarra Ijósmyndara og greip í hin og þessi verkefni. En fyrir sjö árum fékk hann tækifæri til að standa á eigin fótum með myndavélina þegar hann byrjaði að vinna fyrir Liberation. „Hlutirnir fóru aö gerast 1995. En árin á undan voru nauðsynlegur skóli,” segir Benni. Hann er nýkominn úr ferð með hljómsveitinni Depeche Mode og er á leið á kvikmyndahátíóina í Cannes þar sem hann hefur haft það verkefni undanfarin ár að mynda margar af helstu stjörnum hvíta tjaldsins. Sem getur verið snúið verkefni. Hann þarf að ná góðu portretti, oft á stuttum tíma. Og stjörnurnar eru missamvinnuþýöar. Leikstjórinn David Lynch er einn af þeim eftirminnilegri. „Hann var frábær. Að taka myndir af honum er eitthvað sem ég mun seint gleyma. Það er eitthvað sérstaklega mannlegt og hlýlegt við hann. Hann er frábær listamaður og góður náungi. Ólíkt svo mörgum sem ég hef hitt og eru afbragðs listamenn en skítakarakt- erar. Ég nefni engin nöfn. Að taka myndir af Björk er líka alltaf mjög sérstakt. Það er aldrei neinn borötennis. Hún gefur svo mikið af sér. Hún gefur og ég þigg, eins og venjulega.” JK Ljósmyndir: BERNHARÐ VALSSON SkÝ 5

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.