Ský - 01.06.2002, Side 12
FYRST & FREMST = LITIÐ EITT
Allur ágoði rennur til Götusmiájunnar.
Aðra boli Guðbjargar má nálgast á gudbjorgg@simnet.is.
ristill inn
Gamalt, upprúllað kennslugagn t líffræði,
nánar tiltekið um meltingarkerfi manns-
líkamans, fær nýtt hlutverk á íturvöxn-
um kroppum djarfra einstaklinga í sumar.
Einhverjir gætu haldið að verið væri að aug-
lýsa undralyfið Colon Care en svo er örugg-
lega ekki. Athygli vekur að í innyfladýrðina
vantar lykillíffærin hjarta og lungu, en í stað
þeirra er skondió og athyglisvert bein sem
minnir gjörla á hundabein í stríðnisbandi. „Ég reyndar fjarlægði
þetta dularfulla bein úr meltingarkerfinu eftir á," segir Guðbjörg
Gissurardóttir, nýbakaður bolahönnuður, sem bar sigur úr být-
um í bolasamkeppni Sparisjóðsins og Top Shop til styrktar
Götusmiðjunni. „Einhver benti mér á að ef hann ætlaði að
sjokkera ömmu sína mætti hann á svæðið í svona bol. Mark-
visst ætlaði ég svo sem ekki að valda neinum hryllingi heldur
fannst vanta einhvern húmor í bolattskuna." Hún segir keppn-
ina hafa kveikt elda sem hún eigi erfitt með að slökkva
og því sé hún nú að búa til fleiri flotta boli. Víst er
að margir iða í skinninu eftir að nuddast upp
við einn slíkan. ÞLG
Island beint - ódýrari símtöl frá útlöndum
í lok síðasta sumars setti Síminn á markað þjónustu fyrir
íslendinga á ferðalögum í útlöndum. Með þjónustunni
ísland beint er mögulegt að hringja með ódýrari hætti til
íslands af erlendum gististööum - og er notkunin erlendis
gjaldfærð á símreikninginn heima.
„Viðskiptavinir ísland beint hringja í gjaldfrjáls númer (800
númer) í útlöndum sem tengjast sjálfkrafa til íslands -
hvort sem hringt er úr tal- eða farsíma. Þar næst er slegið
inn notendanúmer og lykilnúmer og valið það símanúmer
sem hringja á í. Þetta er í alla staði mjög þægilegt og
hagkvæmt fyrirkomulag fyrir viðskiptavininn," segir
Heiðrún Jónsdóttir, forstöðumaður upplýsinga- og kyn-
ningarmála Símans.
Að sögn Heiðrúnar leitast Síminn ávallt vió að auka þjón-
ustu við viðskiptavini sína og benda þeim á hagkvæmari
leiðir hverju sinni en í lok maí lækkaði mínútuverð ísland
beint einmitt um 30 prósent. Hún segir jafnframt að það
borgi sig í flestum tilfellum fyrir viðskiptavini Símans að
hringja í gegnum kerfi Símans þar sem gististaöir á erlen-
dri grundu ráði sjálfir álagningu sinni.
Hægt er að nota þjónustuna á helstu áfangastöðum víðs
vegar um heiminn. Sækja þarf um þjónustuna áður en farið
er til útlanda og er hægt að gera það í þjónustuveri Símans
í síma 800 7000 og verslunum um allt land. Umsókninni
fylgir sérstakt lykilnúmer sem nota þarf þegar hringt er
heim. Allar upplýsingar um verðskrá er að finna á siminn.is
lostabragð af sauðnauti
og sjóbirtingi
Jarðarber og karamellur hafa lengi lífgað upp á langdregna tungu-
leikfimitíma í svefnherberginu. Það hefur þótt krydda latex-keim-
inn af smokkunum að velta þeim upp úr frískandi og sætum bragð-
efnum á færibandinu. Nú kveður hins vegar nýrra við í Iqaluit, höf-
uðstað Nunavut-héraðs í Kanada. Þar eru ókeypis smokkar með
lostavekjandi bragði af sauðnauti, elg og sjóbirtingi það allra eftir-
sóttasta þegar kemur að minjagripum. í upphafi var hugmyndin
sniðugt spaug þegar börnum Inúíta í alnæmisfrasðslu þótti merkl-
legast að smokkar fengjust með ávaxta- og sælgætisbragði, en
fljótlega var ráðist í framleiðslu á þessum hefðbundnu og gamal-
kunnu prótíngjöfum Inúíta í smokkaformi. í dag hafa yfirvöld í
Iqaluit gefiö meira en 15.000 smokka í laglegum pakkningum sem
prýddar eru myndum af fimm dýrum úr norðurheimi. Handhafar
stjórnvalda og menn úr viðskiptalífinu hafa staðið þétt bak við
smokkana og meira að segja heilbrigðisráðherrann, Ed Picco,
klæddi sig upp í bleikan smokkabúning og gaf smokka á götum
Iqaluit. þlg
10 SKÝ
I
LjósmyrwV. P^LL STEFKNSSON