Ský - 01.06.2002, Síða 18
FYRST & FREMST = LITIÐ EITT
cawon
á fullri ferð inn í eilífðina
Þeir gleyma því seint sem sáu Michael Schumacher keyra á 250 kílómetra hraöa beint
á dekkjavegg á Silverstone- kappakstursbrautinni í beinni útsendingu sjónvarpsins 1999.
Schumacher fótbrotnaöi á báðum og þótti sleppa vel. Ef hann hefði lent í álíka árekstri
nokkrum árum fyrr er næsta víst að hann heföi ekki þurft að kemba hærurnar. Öryggis-
málum Formúlu 1 hefur fleygt gríðarlega fram undanfarin ár. Nú sitja ökumennirnir í
klæðskerasniðnum kevlar-búrum sem eiga að þola gríðarleg högg.
í spánnýrri og einkar fróólegri bók Formúla 1 - saga Formúlu 1 kappakstursins kemur
fram að ekki hefur alltaf verið spáð mikið í líf og limi þeirra sem sátu undir stýri trylli-
tækjanna. Mannskeeðasta tímabil kappaksturins er 1957 til 1958 þegar tæplega
helmingur ökumanna í Formúli 1 fórust af slysförum, alls tólf menn. Meistarinn 1958,
Bretinn Mike Flawthorne á Ferrari-bíl, sá sína sæng upp reidda og hætti keppnisakstri
eftir þetta mannskaðaár. Það var óneitanlega kaldhæðni örlaganna að ári seinna fórst
hann í bílslysi. Eitthvað hafa menn þó slakað á því keppnistímabiliö á eftir sluppu allir
ökumennirnir lifandi frá keppni. En næstu tvö ár héldu hörmungarnar áfram. Árið 1960
dóu tveir og tveir örkumluðust í belgíska kappakstrinum og í lokakeppninni 1961
þeyttist bíll efsta manns stigakeppninnar, Wolfgang von Trip, upp í stúku með þeim
afleiðingum að hann fórst auk tíu áhorfenda. Það slys var þó lítið miðað við ósköpin á Le
Mans sex árum fyrr þegar áttatíu áhorfendur fórust. Sem betur fer heyra slík slys fortlð-
inni til. Síðasta banaslys ökumanns í Formúlu 1 var 1994. Þá dóu reyndar tveir ökumenn
í sömu keppninni í Imola, Rolan Ratzenberger og Ayrton Senna, einn ástsælasti
ökumaður Formúlu 1 frá upphafi. Sögu hans og fleiri frægustu ökuþóra sögunnar má lesa
I Formúlu 1 bókinni, en þar eru líka greinargóöar upplýsingar um hverja braut fyrir sig,
tæknina á bak við liðin og fleira skemmtilegt.
orma, frú norma?
Stökkir ormar og stinnar sexfætlur hafa um
hríð tyllt sér á silfurbakka þeirra sem girn-
ast framandi bragð og meira prótín í flott-
ustu veislum heimsins. Þótt sumum kunni
að þykja slepjulegar pöddur fremur
ólystugt partísnakk þarf ekki að fara lengra
en í iðandi skordýraeldhúsið á Edible í East
End Lundúna eða hinn sjóöheita veitinga-
stað Empire í West End sömu borgar til að
leyfa súkkulaðihúðuðum sporðdreka að
kitla tunguna. Drekinn sá er langvinsælasti
eftirréttur eldhússins, en um 85 prósent
tómra maga sem sækja staðinn panta sér
góðgætið. Á íslandi erfátt um gæðahráefni
í pöddusnakk, en þó hafa íslenskir kokkar
dundaö sér við að þróa íslenska
ánamaðkinn í þessa átt. Ingvar Sigurðsson,
yfirmatreiðslumaóur á Argentínu, er einn
þeirra. „Til að ná moldinni úr meitingarvegi
ormsins þarf að byrja á að svelta hann f
grasi. Þá er hann snöggsteiktur eða soðinn
upp úr hvítlauk og smáskvettu af víni.
Þrælgóður, en ekki það framúrskarandi að
hann hafi fest sig á matseðlinum." þlg
TÍMRRITIN MÍN
HILDUR HRF5TEIN = textílhönnuður
TANK Lífsstílsblað, skemmtilegt og ögrandi, og næstum eins og lítil bók, þar sem ferðalög og
tíska mynda skemmtilegan hrærigraut.
YOUNG BLOOD Um tískuna, unga hönnuði á uppleið, spennandi föt, strauma og stefnur.
Gaman aö skoða þegar maður er oróinn þreyttur á öllum gömlu hönnuðunum.
VOGUE Það ítaiska. Ber af hinum systurblöðunum f Ijósmyndun og efnistökum. Tekst að vera
framúrstefnulegt og íhaldssamt í senn.
MARIE CLAIRE Það breska, sem er stútfullt af skemmtilegu efni fyrir okkur stelpurnar. Um
allt milli himins og jarðar.
Liósnvynd'. PÁLL STEFÁNSSON