Ský - 01.06.2002, Qupperneq 22
FYRST & FREMST = MEÐ NOKTUM GEIMVERUM
fimm heimshorn til að sjá geimverur
Costa Rica í Mið-Ameríku Á Costa Rica hafa þúsundir geimdiska sést fara í sjóinn. Svo virðist sem rannsóknum geimvera á jörðinni sé stjórnað úr hafinu, enda líkast til rök- rétt þar sem lítið fer fyrir farartækjum þeirra á hafsbotni. Þarna er ekkert til sem heitir fýluferð. Geimverurnar eru hrifnastar af þessum jarðskika og þú munt sjá.
Puerto Rico í Karabíska hafinu Ótölulegur fjöldi mannabarna hefur mætt geimskipum og geimverum viö ströndina austanmegin á Puerto Rico. Ekki er vitað hvaða erindi geimverur eiga á þessar slóöir en þó gæti það verið túrkísblátt hafið og hvítar strend- urnar. Þarna færðu bæði gullna brúnku og náin samskipti við einhvern af þriðju tegund.
Gulf Breeze á vesturströnd Flórídaskagans Hafi menn þolinmæðina með sér verður ekki hjá því komist hér að sjá geim- skip taka fallega dýfu og smeygja sér ofan i kóralblátt hafið. Hundruð fiski- manna á þessum slóðum hafa orðið vitni að slíku og fengið ýmislegt speis- að í trollið. Getgátur eru uppi um að geimverur hafi eins konar bækistöðv- ar neðansjávar og þarna virðast þær hafa fundið mýmörg spennandi rann- sóknarefni.
Interlaken í Sviss Heimaslóðir bóndans Billy Myers. sem liefur tekið yfir 10.000 Ijósmyndir af geimdiskum á sinni landareign og á I fórurn sínum meira en 25.000 hand- skrifaðar blaósíður af hugrökræðum við geimverur sem stóðu yfir í ntu ár, ásamt hljóðupptökum af vélarhljóðum geimskipa. Bæði FBI og Kodak hafa rannsakað hvort Meyers hafi dundað sér vió falsanir á sönnunargögnum en ávallt staóið á gati. Mjög heitur staður ennþá, þótt Myers hafi kvatt flest- ar geimverumar og flutt sig um set.
Yorkshire á Englandi Árið 1979 sá enskur lögreglumaður geimskip í Jórvíkurskíri og gat hugsast á við það I rúman áratug. Á innan við tveimur sekúndum gat hann kallað skipin til sín og gerði það víst ósjaldan. Milli fimmtíu og sextiu breskir lög- reglumenn báru vitni um að hafa séð geimskipið yfir lögreglubílnum þegar þeir voru á ferð með þessum vini geimveranna. Afar vinsæll staður fyrir frek- ari geimtengsl. ÞLG
út í heim?
RÚNAR JUUUSSON
rokkguá
ELMA LISA GUNNARSDMTiR
leikkona
EGGERT MAGNÚSSON
formaður KSÍ
Ég er auðvitaö á stöðugum
þvælingi starfs míns vegna og
í sumar fer ég bæði tíl Kóreu
og Japans á heimsmeistara-
keppnina í fótbolta.
Já, ég ætla að bregða mér til
San Francísco og Dyflinnar.
Báðar þessar borgir hafa heill-
að míg frá fyrstu kynnum. Auk
þess að sækja í nýjan innblást-
ur og safna í viskubrunninn þarf
ég að ná í nýja gítarinn minn til
San Francisco. Það er of mikið
í húfi til að senda hann einan
heim. Þetta er þannig gripur.
Já, trúlega fer ég til Prag og ég
fer örugglega í þriðju heimsókn
mína til Barcelona sem er ein
dásamlegasta borg veraldar.
Þar ætla ég að sleikja sólina,
slappa af og njóta óendanleika
þess menníngarkokkteils sem
borgin hefur upp á að bjóða.
fimm góðar nektarnýlendur
Hvar
í Króatíu
Cap d’Agde
í Frakklandi
Wreck Beach
í Vancouver B.C.
í Kanada
Oblelisk Beach
í Sydney
í Ástralíu
Enski garðurinn
í Miinchen
í Þýskalandi
20 SKÝ
Á króatfsku eyjunní Flvar í Adríahafínu hefur ntannkynið stríplast saman í meira en
hundrað ár í óviðjafnanlegri náttúrufegurð. Flvar þykir paradís í víðustu merkingu
orðsins.
Stærstu nektarnýlendu lieims er að finna viö Miöjarðarhafið, í Suður-Frakklandi.
Nýlendan var stofnuð fyrír háifri öld og á sumrin dvelja þar yfír 40.000 kviknaktír
bukar við leik og störf. Jafnvel bensínafgreiðslumaðurinn og bakarinn eru f fæð-
ingarfötunum þegar maður sækir sér morgunbrauðið eða fyllir á bílinn.
Kanadamenn eru ekki eins teprulegir og stóri bróðir þeirra fyrir sunnan. Gullin
brjóst og rasskinnar fá aó njóta sfn til hins ítrasta á hinni gríðarstóru Wreck-strönd
við Vancouver þar sem þúsundír striplinga flykkjast á góðum sumardegi til að sýna
sig og sjá aðra.
Ástralir eru með duglegri mönnum að afklæðast í sumarhitanum og ákaflega
frjálslegir í sambandi við nekt og nýju fötin keisarans. Oblelisk-ströndina finnurðu
í innri höfninni f Sydney, ekki ýkja langt frá óperuhúsinu margslungna.
[ miðrl milljónaborginni Mönchen lúrir Enski garðurinn. Þegar inn á grasgrænar og
óendaniegar flatirnar er komið blasa við þúsundir Þjóðverja og annarra kropþa sem
njóta sólarínnar rétt eins og Guð skapaöi þá. Ógleymanleg upplifun. ÞLG