Ský - 01.06.2002, Síða 39
eða tryggt heilbrigði sjúks barns ber honum að gefa blóö sam-
kvæmt þessu. Ákæði laganna eru skýr.”
í tilvikinu sem um ræðir varð það þarninu til blessunar að ekki
þurfti að grípa til blóðgjafar. Hins vegar voru aðstæóur það tæpar
að læknar gjörgæsludeildar vildu tryggja sig fyrir hugsanlegu atviki
á borð við þetta í framtíöinni.
Guð kraftaverkanna
Þeim sem vanir eru virðulegum og friðsælum messum Þjóðkirkj-
unnar bregður í brún þegar þeir fara á samkomur annarra trúfélaga.
I flestum söfnuðum eru samkomurnar dýnamískar, fólk grætur,
kallar og kastar sér í gólfiö þegar heilagur andi talar í gegnum leið-
togann. Einnig er athyglisvert hversu algeng kraftaverk eru í
kristnum sértrúarsöfnuðum. „Já, kraftaverk gerast svo sannarlega
á okkar samkomum,” staðfestir Gunnar í Krossinum. „Þau stærstu
eiga sér stað þegar líf einstaklinga sem lifað hafa í svartholi og á
geðlyfjum árum saman snýst gjörsamlega við á einu augnabliki, en
slík kraftaverk gerast eins og á færibandi. Einnig líkamlegar lækn-
ingar. Við sjáum óbyrjur eignast börn, krabbamein á lokastigi
hverfa og menn kasta frá sér hækjum. Ég get sjálfur beðið um
kraftaverk og hef séð Guð gera dásamleg kraftaverk á mínum sam-
komum, enda sjálfsagður og eðlilegur hlutur, og fylgifiskur þess að
trúa á Guð að sjá og biðja um kraftaverk.”
Gunnar hefur aöstoðað við komu kraftaverkamanna á borð við
Benny Hinn til íslands og segist trúa því að þeir sem þjóði þessa
þjónustu séu einlægir. Hins vegar verði menn að trúa á mátt lausn-
arans til þess að kraftaverk gerist. „Prestar Þjóðkirkjunnar stíga
ekki fram í þessari þjónustu og því sjá menn ekki kraftaverk ger-
ast í hefðþundnum messum í t.d. Hallgríms- eða Laugarneskirkju.
Ég er sannfærður um að ef prestarnir leituöu til Guðs með þessum
hætti myndu kraftaverkin ekki láta á sér standa. Það eina sem
þarf er að lesa fyrir hinn sjúka úr Jesaja þar sem Guð segist vera
Guð kraftaverkanna og að við séum læknuð fyrir hans benjar og
beðið fyrir honum eins og ég og Benny Hinn gerum. Niðurstaðan
væri sú sama. Dauðvona sjúklingur á sér svo sannarlega lífsvon og
getur læknast. Það er ekkert bull, svo sannarlega ekki. En það eru
margir sem vilja henda Heilögum anda út þegar Guð fer aó starfa
eins og hann vill starfa því þá gengur mikið á, menn missa oft
stjórn á sér og sumum finnst það ekki nógu pent.”
Svanberg hjá Vottum Jehóva segir af og frá að kraftaverk til-
heyri samtímanum og að kraftaverkalækningar gerist aldrei hjá
hans söfnuði, enda engar ábendingar í Biblíunni um að boðið sé
upp á slíkt. Því noti Vottarnir heilbrigðisþjónustuna til að leita sér
lækninga. „Kraftaverk tilheyrðu söfnuðinum þegar hann var ungur.
Gyðingar höfðu verið Guðs útvalda þjóð í fimmtán aldir, en þá höfn-
uðu þeir syni Guðs og var fyrir vikið sjálfum hafnað. Þó fylgdi lítill
hópur Jesú Kristi og Guð flutti velþóknun sína frá ísrael til þessa
nýstofnaöa safnaðar. En hvernig átti hann að sýna umheiminum
fram á þennan flutning? Jú, kraftaverkin voru þetta tákn og þau
þurfti á þeim tíma. En síðar áttu þau að líða undir lok.”
Sigurður Árni hjá Biskuþsstofu segir kraftaverk vissulega eiga
sér stað meðal sóknarþarna Þjóðkirkjunnar. „Allar lífsins gjafir eru
kraftarverk, en ef við hugsum um sértæk kraftaverk þá er sam-
hengi þeirra frekar í heimahúsum þar sem fyrirbænir og líknandi
handaryfirlagning er stunduð. Það fer hins vegar ekki hátt. Prest-
ar og fyrirbænafólk hreykir sér ekki eða ber bumbur yfir kraftaverk-
um Guðs. Það eru ýmis dæmi um dauðvona fólk sem fær bata, en
ekki er reynt að skýra hvað það þýðir læknisfræóilega. Vísindin eru
ekki óttaefni fyrir nútímatrúmenn heldur hluti af Guðs góðu sköp-
un og því hluti af lífsins kraftaverki.”
Huganum stýrt
Þegar menn taka ákvörðun um að segja skilið við Þjóðkirkjuna og
skrá sig í annaö trúfélag er það oft útgeislun leiðtogans sem skipt-
ir sköpum. Leiðtogi með mikla persónutöfra getur hrifið fólk með
sér og stjórnað eins og leikbrúðum ef vill. Fólk er þá sett undir
regiupakka sem á lítið skylt við orð Guðs. Hinir mannlegu leiótog-
ar koma í stað Drottins og menn eru fjötraðir á alla lund, stýrt,
stjórnað og allar ákvarðanatökur eru látnar í hendur annarra. Sagt
er að þetta mannlega vaid sé rödd Guðs, en þegar menn hafa af-
salað sér ákvöröunarvaldinu eru þeir komnir í fangelsi sem erfitt er
að komast út úr aftur. Reglulega skjóta upp kollinum slíkir sjálf-
skipaðir spámenn hér á landi, en viðmælendur Skýja voru flestir á
því að íslendingar væru í heildina ekki ginnkeyptir fyrir slíku oki
þar sem leiðtoginn gæti, í nafni og vilja Guðs, dregið sér fé eða
flekaö kvenþjóð safnaðarins f Jesú nafni. „En leiðtoginn þarf að
vera Guð," segir Gunnar, leiðtogi Krossins. „Hann þarf að hafa allt
til að bera. Það eru kröfurnar. Það er gríðarlega krefjandi og erfitt,
en líka mjög gefandi og skemmtilegt. Það gefur mest að sjá
hversu mikil áhrif maður getur haft á marga til hins betra.”
Til að breyta hugsunarhætti og lífsvenjum fólks, á borð við það
sem Biblían segir og trúfélögin fara eftir, þarf markvissan heila-
þvott. Að sögn þeirra sem til þekkja eru einstaklingar sem farið
hafa út af beinu brautinni gjarnan meðal þeirra sem leita í sértrú-
arsöfnuði og þær brotnu sálir bæði auðmótanlegar og kjörinn efni-
viður fyrir heilaþvott. Sumir trúarhópar lesa ákveðnar kenningar og
þjálfa sitt fólk í að lifa eftir þeim, sem svo getur valdið óvenjuleg-
um lífsmáta. Óvenjulegur lífsmáti getur valdið ugg. Drengirnir sem
flugu á World Trade Center í New York fóru smátt og smátt að
breyta trúarskoðunum sínum og umgangast trúarhópa sem aðhyllt-
FJOLDI SÓKNARBARNA OG SÓKNARGJOLD I HELSTU TRUFELOGUM LANDSINS
-iruTeiog rJOl.fll -SO Knaroarna 249.256 Mimargjoia (Kr.j 1.699.946.759-
5.520 37.491.840-
4.803 39.691.976-
1 630 11 070.960-
796 4 930.999-
796 4.994.900-
638 4.333.996-
668 3.857.856-
609 3.409.584-
446 3.099.440-
-Kirkja lesú Krists h Ríðari daga heilngn 1 08 1.344.816-
TÍUND Biblían boðar að safnaðarmeðlimir greiði
svokallaöa tíund til trúfélaga sinna, en það eru tíu
prósent af mánaðarlaunum viðkomandi. Miðað við
framtöl einstaklinga, sextán ára og eldri, árið 2001,
voru meðalárstekjur kr. 1.884.000. Gefi safnaðar-
meðlimur 10 prósent til trúfélags síns á ári jafngildir
þaö um 188.400 króna framlagi.
Ef meölimir trúfélags (sextán ára og eldri) eru tíu
geta framlög þeirra numið 1.884.000 krónum á ári.
Ef meölimir trúfélags (sextán ára og eldri) eru
hundrað geta framlög þeirra numið 18,8 milljónum
krónum á ári.
Ef meölimir trúfélags (sextán ára og eldri) eru
þúsund talsins geta framlög þeirra numið 188
milljónum króna á ári.
Til fróðleiks yrðu framlög Þjóðkirkjunnar 42 milljarðar
ef safnaðarbörn hennar greiddu tíund. Því má við
bceta að útsvar til sveitarfélaga í landinu og tekju-
skattur til ríkisins eru um 38 milljarðar hvort um sig!
í JESÚ NAFNI SKÝ 37