Ský - 01.06.2002, Blaðsíða 57

Ský - 01.06.2002, Blaðsíða 57
„Þeir sem fyrirfara sér fara hvorki upp né niður, heldur beint inn á gráa svæðið. Lífsklukkan gengur nefnilega áfram þangað til rétti tíminn kemur. Prestarvita um þetta svæði en tala aldrei um það. inn fyrir dyrnar og bauð henni að velja milli sín og svartagaldursins. „Auðvitað valdi ég hann. En löngunin til að byrja aftur hefur komið yfir mig, sérstaklega þegar ég hugsa um fortíðina. Ég reyni að lifa í núinu og forðast að hugsa til baka, en því miður tekst það ekki alltaf og þá kemur freistingin.” Þótt nornin Sirrý hafi verið fær um hræðilega hluti og verið hættulega voldug segist hún tæplega hafa verið fremst meðal jafn- ingja hér á íslandi. „Ég get ekki sagt til um það og þekki það ekki því ég var alltaf ein. Ég hef heyrt um marga sem voru miklu öflugri en ég var nokkurn tímann. Nornir eru leigumorðingjar nútímans og margir í því að senda krabbamein í fólk eða drepa með öðrum hætti.“ Að fremja öflugan seið er flókin athöfn og til þess fór Sirrý gjarn- an út í náttúruna. „Ég stundaði hann oftast í Kapelluhrauninu, Heiðmörk og Elliða- árdalnum en einnig fór ég einu sinni í Öskjuhlíðina ásamt tveimur aðstoðarmönnum þegar sérstaklega mikið lá vió.” Sirrý segir engan hægðarleik að hætta í kukli því hinir sem stunda svartagaldur séu ekki tilbúnir að sleppa takinu. „Ég varð að biðja um hjálp. Heilu bænahringirnir, vinir mínir, Krossinn og fleiri trúfélög báðu fyrir mér. Og mér barst hjálp úr ólíklegustu áttum og hefði aldrei komist út úr þessu á eigin spýtur. Allt það svarta, hvort sem það er Satan eða vúdú-andarnir, sleppa helst aldrei tökunum." Eins og áður segir stundar Sirrý nú hvítagaldur og ræktar sam- bandið við Jesú Krist. í því samhengi talar hún um hversu hryggi- legt það sé að prestar þegi yfir því sem bíður þeirra sem taka eigin líf. „Þeir sem fyrirfara sér fara hvorki upp né niður, heldur beint inn á gráa svæóið. Lífsklukkan gengur nefnilega áfram þangað til rétti tíminn kemur. Prestar vita um þetta svæði en tala aldrei um það. Þarna vex ekkert, er bara endalaus auðn og líkt því að ganga inn í draugabæ. Ekkert nema veinandi sálir í þúsundatali. Þangað hef ég átt erindi og farið í gegnum hlið sem er við gamla rétt í Kapellu- hrauninu. Prestar blekkja fólk stöðugt. Þeir segja í jarðarförinni að hinn látni sé kominn inn í Ijósió, en svo er sannarlega ekki. Af hverju búa þeir til blekkingarvef þegar þeir eru vel upplýstir um gráa svæðið? Svo virðist sem prestaskólinn kenni þeim að Ijúga. Það væri hægt að koma í veg fyrir fullt af sjálfsvígum með því að tala um þetta.” Það er komið að kveðjustund. Úti er svört nótt með fullu tungli en tíminn hefur liðið með dularfullum hraða innan um nornirnar og fuglana. í farteskiðfæég tvo ástargaldra, einn viðráðanlegan, hinn öllu flóknari. En legg æru mína að veði að segja aldrei lifandi manni hvernig þeir seióir fara fram. Þeir verða þó örugglega fullreyndir síðar. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir er blaðamaður Skýja. SKRATTANUM SKEMMT SKÝ 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.