Ský - 01.10.2004, Síða 15
■*ij ódsa^an
SENN LÍÐUR AÐ JÓLUM
Ef marka má þjóðháttalýsíngu Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili var aldrei keppst
eins mikið við vinnu eins og á aðventunni. Einkum var lagt kapp á að Ijúka allri
ullarvinnu og prjónaskap á jólaföstunni.
Jónas segir að húsbændur hafi stundum sett vökustaura á þá sem áttu erfitt
með að halda sér vakandi við vinnu síðustu vikuna fyrir jól og var vikan því kölluð
stauravika. Staurarnir eða augnteprurnar voru gerðar úr smáspýtum, ámóta
stórum og eldspýtur, en stundum var notað svokallað baulubein úr þorskhöfði eða
eyruggabein úr fiski. Skorið var inn í beinið til hálfs en það haft heilt hinum megin
og sett á það lítil brotalöm og skinninu á augnlokinu smeygt inn í lömina. Stóðu þá
endarnir f skinnið og mjög sárt að loka augunum.
þegar búið var að sópa
húsið gekk húsfreyjan í
kringum bæinn og bauð
ÁLFUNUM HEIM MEÐ ORÐUNUM:
»komi þeir sem koma vilja,
VERI ÞEIR SEM VERA VILJA, FARI
þEIR SEM FARA VILJA, MÉR OG
mínum AÐ MEINALAUSU."
FÁTÆKRAÞERRIR
Víða þótti til siðs að þrífa allt hátt og lágt fyrir jólin. Menn skiptu um nærföt og stundum
var jafnvel skipt á rúmunum. Meira að segja mestu sóðar brutu venjur sínar og voru
hreinir og vel til hafðir um jólin.
Samkvæmt gamalli þjóðtrú lét guð alltaf vera þíðviðri rétt fyrir jólin, til þess að fólk
gæti þurrkað plöggin sín fyrir hátíðina, og var þessi þurrkur kallaður fátækraþerrir.
Einnig var víða til siðs að fara í kaupstað fyrir jólin. Sumir fóru eingöngu til að sækja
jólakútinn til að eiga hressingu; stundum var lagt út í mikla óvissu til að ná íjólaölið og
fyrir kom að menn urðu úti í slíkum ferðum.
Áflestum bæjum varslátrað kind fyrirjólin til að eiga nýtt kjötyfir hátíðina og var kindin
kölluð jólaær. Jónas segir að siðurinn hafi að mestu verið aflagður á Norðurlandi í sinni
tíð en í fullu gildi á Vestfjörðum langt fram á okkar tíma.
TRÖLL Á FERÐ
Jónas segir að jólin hafi verið helgust og mest allra hátíða enda megi rekja þau fram
til hinnar elstu og römmustu heiðni á Norðurlöndum og meðal germanskra þjóða. Um
jólaleytið eru allar ófreskjur og illþýði á ferð og gera allt illt af sér sem þær geta. Tröll
og óvættir gengu um og voru Grýla og jólasveinarnir þar fremstir í flokki.
Ekki mátti leika sér á jólanóttina, hvorki spila né dansa. Til er gömul saga sem segir
að einu sinni hafi tvö börn farið að spila á spil á jólanótt. Kom þá til þeirra ókunnugur
maður og fór að spila við þau, hann hvatti börnin til að spila við sig fram eftir nóttu eða
þar tif annað þeirra fór að raula sálmavers en þá hvarf maðurinn. Maðurinn mun hafa
verið kölski sjálfur.
f (Ý : V
SKY
I 15
IR-SEM 'KOMA VILJA
, öfT Víðá.ýaryéGjðpÁ^ kveikja Ijós um allan bæinn á jólanótt svo að hvergi bæri á skugga.
Þegar búið var að sópa húsið gekk húsfreyjan í kringum bæinn og bauð álfunum heim
með orðunum: „Komi þeir sem koma vilja, veri þeir sem vera vilja, fari þeir sem fara
vilja, mér og mínum að meinalausu."
Jólin hafa alltaf verið hátíð barnanna og til siðs að þau fengju að borða fylli sína um
hátíðina. Einnig þótti sjálfsagt að gefa þeim nýja flík svo þau færu ekki í jólaköttinn.
Margir fengu kerti um jólin og þótti mikil dýrðarstund að kveikja á kertinu og horfa á
logann brenna út.
'Vilmundur tfcmáen er þjáðfrædmgur ag jálahanv.