Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1979, Blaðsíða 205
191
í landinu búa um 224 þúsund manns í samtals 224 sveitarfélögum.
Kaupstaðir eru 22 með samtals 169.000 íbúa. Þar af búa 83.000
í Reykjavík, en íbúatala annarra kaupstaða er á bilinu 1.000 -
13.000 manns. Hreppar eru 202 og eru íbúar hins fjölmennasta
um 2.400, en í fámennasta hreppnum búa 20 manns.
Á síðustu árum hafa sveitarfélög í einstökum landshlutum myndað
með sér samtök til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu voru stofnuð 1976.
Hér aftar í Árbókinni er birtur samningur, sem sveitarfélögin
gerðu við stofnun samtakanna.
Það lætur að líkum, að íslenzku sveitarfélögin eru afar misjafn-
lega í stakk búin til þess að sinna því hlutverki, sem þeim er
ætlað samkvæmt lögum. Breytileg stærð þeirra hefur, ásamt öðru,
vafalaust átt sinn þátt í því, hve verkaskipting ríkis og sveitar-
félaga er óglögg.
Tillögur um sameiningu sveitarfélaga og umtalsverða fækkun þeirra
hafa ekki hlotið hljómgrunn. Ljóst var frá byrjun, að stofnun
landshlutasamtakanna gat ekki komið í stað sameiningarinnar, þótt
þar væri stuðlað að sameiningu kraftanna á einstökum sviðum.
Sömu reglur gilda í meginatriðum um samskipti Reykjavíkur og
ríkis og eiga við um önnur sveitarfélög í landinu. Þessar reglur
eru mjög flóknar og eiga sér yfirleitt stoð i lögum og reglugerðum
um einstaka málaflokka, svo sem um opinberar framkvæmdir, dag-
vistunarstofnanir, grunnskóla, framhaldsskóla, heilbrigðisþjónustu,
orkumál, samgöngumál, skipulagsmál, byggingareftirlit, húsnæðismál
og náttúruvernd, svo nokkuð sé nefnt. 1 þessum bálkum er meðal
annars að finna ýmis ákvæði um hlutdeild hvors aðila um sig í
stofnkostnaði mannvirkja og kostnaði við þá þjónustu, sem veitt
er, auk almennra ákvæða um markmið, umsjón og daglegan rekstur.
Samband íslenzkra sveitarfélaga hefur um langt skeið beitt sér
fyrir tillögum um einföldun verkaskiptingar ríkis og sveitar-
félaga með því að fækka sameiginlegum verkefnum þessara aðila.
Með þessum tillögum er stefnt að því, að sem víðast fari saman
framkvæmd og fjármálaleg ábyrgð og staðarþekking nýtist sem bezt.