Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1979, Blaðsíða 207
193
Borgarstjóri
Borgarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana þeirra, sem
borgarstjórn tekur, (eða borgarráð í umboði hennar), og fram-
kvæmd á málefnum borgarinnar yfirleitt, að því leyti, sem borgar-
stjórn hefur ekki ákveðið annað um tiltekin mál.
Borgarstjóri situr fundi borgarstjórnar og borgarráðs með óbundnu
málfrelsi og tillögurétti, en án atkvæðisréttar, nema hann sé
jafnframt borgarfulltrúi (borgarráðsmaður).
Borgarritari er staðgengill borgarstjóra og hefur með höndum
daglega stjórn á fjármálum borgarinnar og umsjón með skrifstofum
hennar. Borgarverkfræðingur hefur, í umboði borgarstjóra, með
höndum yfirstjórn verklegra framkvæmda borgarinnar og annarra
tæknilegra málefna, nema meðferð þessara mála (einstök mál) sé
sérstaklega fengin öðrum.
Nefndir
Kjörgengi í nefndir, sem borgarstjórn kýs, er, að borgarráði frá-
töldu, yfirleitt ekki bundið við borgarfulltrúa eða varaborgar-
fulltrúa. Nefndarmenn eru því ýmist úr röðum borgarfulltrúa eða
óbreyttra. Formenn áhrifamestu nefndanna eru þó yfirleitt kjörnir
úr hópi borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa.
Áhrif og afskipti nefndanna af daglegum rekstri eru misjafnlega
mikil eins og að líkum lætur. Greint er frá meðferð og afgreiðslu
mála í fundargerðum, sem ýmist fara fyrir borgarráð og fylgja
þaðan borgarráðsgögnum til afgreiðslu borgarstjórnar, eða eru
sendar beint til borgarstjórnar eins og núorðið á sér stað með
fundargerðir flestra áhrifamestu nefndanna.
Meðferð mála
Meðferð mála, er beinlínis snerta fjárreiður borgarsjóðs og
fyrirtækja hans eða falla undir venjubundna afgreiðslu, er í
föstum skorðum, en fáar fastmótaðar reglur eru til um það,
hvernig önnur mál ber að.
Yfirmenn stofnana og deilda borgarsjóðs og forstöðumenn borgar-
fyrirtækja ganga, hver fyrir sig, frá drögum að fjárhagsáætlun