Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1995, Blaðsíða 190
REGLUGERÐ 1984
Nr. 206 um gatnagerðargjöld í Reykjavík
með síðari breytingum sbr. reglugerðir
nr. 410, 1985 og nr. 418, 1995.
1. gr
Af öllum nýbyggingum, svo og stækkunum eldri húsa hvort sem er á eignar-
eða leigulóð í Reykjavík, skal greiða gatnagerðargjald til borgarsjóðs skv.
gjaldskrá þessari.
2. gr.
Af hverjum rúmmetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar
pr. rúmmetra, eins og hann er hverju sinni á vísitöluhúsinu skv. útreikningi
Hagstofu Islands, að frádregnum kostnaði við gatnagerð pr. rúmmetra svo sem
hér segir:
Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu .......... 14%
Raðhús, tvíbýlishús, keðjuhús ................... 9%
Fjölbýlishús ......................................... 4%
Iðnaðarhús ...................................... 5 %
Verslunar- og skrifstofuhús ..................... 5 %
Annað húsnæði ................................... 5 %
Rúmmál húss skal reikna frá neðstu grunnplötu. í íbúðarhúsum skal við
ákvörðun gatnagerðargjalds reikna rúmmál með því að margfalda gólfflatarmál
með 2,7m. I öðru húsnæði en íbúðarhúsnæði skal rúmmál bygginga, þar sem
lofthæð (hæð yfir gólfplötu) er yfir 5,5 metrum, ekki teljast með við ákvörðun
gatnagerðargjalds. Bílgeymslur og önnur útihús skal telja með við útreikning á
rúmmáli húsa.
Gatnagerðargjald skal lækkað eða fellt niður þegar svo stendur á, sem í 1 - 4 tl.
þessarar málsgreinar segir:
1. Af kjallararýmum íbúðarhúsa, sem myndast þegar hagkvæmara er að grafa
út grunn en fylla hann upp, skal greiða 25% af venjulegu rúmmetragjaldi,
enda sé húsrýmið gluggalaust og aðeins gengt í það innanfrá.
2. Af sameiginlegum bifreiðageymslum fyrir þrjár eða fleiri bifreiðar, sem
byggðar eru samkvæmt skipulagsskilmálum og koma í stað bifreiðastæða,
skal greiða 25% af rúmmetragjaldi þeirra húsa, sem þær eiga að þjóna.
3. Af yfirbyggðum göngugötum eða léttum tengibyggingum í eða á milli
verslunar- og/eða skrifstofuhúsa, sem teljast til sameignar viðkomandi húss
(húsa) og eru til almenningsnota á afgreiðslutíma viðkomandi
verslana/skrifstofa, skal greiða 25% af venjulegu rúmmetragjaldi verslunar-
og skrifstofuhúsa. Skilyrði þessa er þó að hús, sem yfirbygging eða
tengibygging er byggð við, sé svo sjálfstætt, að það fullnægi kröfum
byggingarlaga og byggingarreglugerðar án hennar og jafnframt að