Skinfaxi - 01.04.2018, Side 4
4 SKINFAXI
Nú er annasömu starfsári okkar, sem störf-
um fyrir UMFÍ, að ljúka. Í huga mínum hef-
ur árið verið nánast samfelld vinna að verkefn-
um hreyfingarinnar og að sinna þeim skyldum
sem fylgja því að sitja í stjórn UMFÍ. Sú stjórn
sem nú situr hefur verið samheldin og unnið
að mörgum góðum málum í þágu sambands-
aðila og hreyfingarinnar í heild í góðu sam-
starfi við starfsfólk UMFÍ.
Verkefni okkar á árinu gengu vel og vil ég
sérstaklega nefna Landsmótið. Það fór fram í
fyrsta sinn með breyttu sniði á Sauðárkróki í
sumar og var í umsjón Ungmennasambands
Skagafjarðar (UMSS). Við höfum unnið að og
undirbúið breytingar á Landsmótunum í nokkur
misseri. Því fylgir auðvitað alltaf einhver áhætta,
þ.e. að færa þekkt mót í nýjan búning. Flestar
áætlanir, sem voru gerðar fyrir mótið, stóðust
nokkuð vel. Landsmótið lofar góðu en lengri
tíma þarf til að kynna þetta nýja fyrirkomulag
á mótshaldinu. Landsmótið þarf að þróast til
þess að það nái til þess breiða hóps sem ég
tel að það eigi að höfða til. Meiri vinna og
tími spila með okkur þar.
Landsmót verður haldið 2020
Í allri undirbúningsvinnu kom fram mikill vilji til
að breyta áherslum Landsmótsins, sem hafði
verið með svipuðu sniði í hundrað ár. Ákvörðun
var tekin um að nálgast formið með lýðheilsu-
sjónarmið í huga, breytta tíma og þörf og löng-
un fólks til að hreyfa sig með fjölbreyttum hætti
án þess að vera bundið við íþrótta- eða ung-
mennafélag. Leitast var við að opna faðminn
fyrir jaðaríþróttum og nýju keppnisformi í mörg-
um íþróttagreinum. Lykillinn að breytingunni
var tekinn út frá því sjónarhorni að þátttakend-
ur hefðu gaman af því að taka þátt í þessum
viðburði. Ég hvet félagsmenn til að tjá hug sinn
og skoðanir um Landsmótið, og hreyfinguna
alla til að vera óhrædda við breytingar enda
eru vísbendingar um að slíkt sé framfaraskref
og ungmennafélagshreyfingunni til góða.
Stjórn UMFÍ ákvað á fundi sínum í desember
sl. í ljósi þessa að halda mótið aftur með þessu
nýja sniði árið 2020.
Unglingalandsmótin hafa haft mikið forvarna-
gildi í samfélaginu á liðnum árum. Ég tel að
þau þurfi meiri kynningu hjá foreldrum og að-
standendum 11–18 ára barna og unglinga,
ekki síður en á meðal unglinganna sjálfra.
Á hverju ári koma nýir árgangar með
þátttökurétt á Unglingalandsmótið og
höfða þarf til nýrra foreldra. Samkvæmt
könnunum Rannsókna og greiningar hef-
ur samvera nemenda í 10. bekk með
foreldrum aukist úr 23% í 46% á síðustu
18 árum og notkun áfengis og tóbaks
minnkað að sama skapi. Það er í sam-
ræmi við kröfur Unglingalandsmót-
anna, þ.e. að börn og ungling-
ar, sem taka þátt í mótunum,
séu í fylgd með foreldrum
sínum eða aðstandend-
um. Þetta er jákvætt og
þörf á að vinna að auk-
inni samveru fjölskyldna eins og er á Unglinga-
landsmótunum. Því má bæta við, að eftir því
sem sömu rannsakendur segja er stóraukin
notkun á rafrettum í 10. bekk. Það er mikið
áhyggjuefni og því ljóst að íþrótta- og æsku-
lýðshreyfingin hefur verk að vinna.
Fögnum nýjum tímum
Miklar breytingar eru í samfélagi okkar og
löndunum í kringum okkur. Breytingarnar eru
sérstaklega miklar þegar kemur að samfélags-
miðlum, símum og rafrænum samskiptum. Við
þurfum að vera vakandi fyrir þessum öru breyt-
ingum, vera tilbúin að nýta okkur það sem
jákvætt er og sporna óhrædd við því sem nei-
kvætt er. Atriðin eru mýmörg; nýjar íþrótta-
greinar, nýjungar í líkamsræktarstöðvum,
áherslur í mataræði, breytingar í almennings-
íþróttum, öðruvísi afþreying sem í boði er
og ýmislegt fleira. Mikilvægt er að við
höfum augun opin fyrir því sem get-
ur komið sér vel fyrir ungmenna-
félagshreyfinguna og samfélagið,
fyrir félögin og einstaklingana.
Það heldur hreyfingunni síkvikri
og er sannkölluð ræktun lýðs og
lands.
Ég óska öllum gleðilegs nýs
árs og þakka samstarfið á
liðnu ári.
Haukur F. Valtýsson
er formaður UMFÍ.
Efnisyfirlit
10–11 Ungmennafélögin vinna saman
18–20 Áskorun að vera ekki innan
rammans
33 Vilja ekki sjá ofbeldismenn
í íþróttum
6 Frábært starf sjálfboðaliða
8 UMSB innleiðir Sýnum karakter
12 Gríðarleg aðsókn að Laugum
14 Hvernig verður þessi framtíð?
20 Hver einstaklingur eins og hann er
22 Komið til móts við iðkendur
23 Urðu að gefa Ronju frelsi
24 Svona eiga samskiptin að vera
26 Allir eru að byggja
32 Nýju persónuverndarlögin veita
betri vernd
34 DGI Østjylland og HSK skiptast
á hugmyndum
36 Styttist í lög um lýðháskóla
37 Hækka hvatapeninga
í Skagafirði
38 Svipmyndir úr starfinu
40 Gerði heimildarmynd um
Landsmótin á HSK-svæðinu
42 Algjör sprenging í Grindavík
Leiðari BREYTINGAR ERU FRAMFARASKREF
16–17 Gleðin heldur fólki í íþróttum