Skinfaxi - 01.04.2018, Síða 6
6 SKINFAXI
Skinfaxi 4. tbl. 2018
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags
Íslands, hefur komið út samfleytt síðan
árið 1909. Blaðið kemur út ársfjórð-
ungslega. Tímaritið dregur nafn sitt af
hestinum fljúgandi sem dró vagn goð-
sagnaverunnar Dags er ók um himin-
hvolfið í norrænum sagnaheimi.
RITSTJÓRI
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
ÁBYRGÐARMAÐUR
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ
RITNEFND
Gunnar Gunnarsson formaður,
Örn Guðnason, Eiður Andri Guðlaugs-
son og Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir.
UMBROT OG HÖNNUN
Indígó.
LJÓSMYNDIR
Haraldur Jónasson, Gunnar Gunnars-
son, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Oscar
Rybinski, Eysteinn Auðar Jónsson,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir o.fl.
PRÓFARKALESTUR
Helgi Magnússon.
AUGLÝSINGAR
Styrktarsöfnun.
PRENTUN
Ísafoldarprentsmiðja.
FORSÍÐUMYND
Myndina tók Hafsteinn Snær Þorsteins-
son af Hirti Andra Péturssyni og vin-
konum hans, þeim Anítu, Lenu og Írisi.
Hann æfir fimleika hjá Aftureldingu í
Mosfellsbæ.
STJÓRN UMFÍ
Haukur Valtýsson, formaður,
Örn Guðnason, varaformaður,
Hrönn Jónsdóttir, ritari,
Guðmundur Sigurbergsson, gjaldkeri,
Ragnheiður Högnadóttir, meðstj.,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi,
og Jóhann Steinar Ingimundarson,
meðstjórnandi.
VARASTJÓRN UMFÍ
Sigurður Óskar Jónsson,
Gunnar Þór Gestsson,
Lárus B. Lárusson og
Helga Jóhannesdóttir.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík,
sími: 568 2929.
umfi@umfi.is – www.umfi.is
STARFSFÓLK UMFÍ
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynning-
arfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar
Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og fram-
kvæmdastjóri Landsmóta (með aðsetur
á Sauðárkróki), Sabína Steinunn Hall-
dórsdóttir, landsfulltrúi og verkefna-
stjóri, Ragnheiður Sigurðardóttir, lands-
fulltrúi og verkefnastjóri, og Guðbirna
Kristín Þórðardóttir, ritari.
UMFÍ
Ungmennafélag Íslands, skammstafað
UMFÍ, er landssamband ungmenna-
félaga á Íslandi. UMFÍ var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands-
aðilar UMFÍ eru 29 talsins. Í hreyfing-
unni eru nú um 160.000 félagar í
rúmlega 300 ungmenna- og íþrótta-
félögum um land allt.
Buðu sjálfboðaliðum í veislu
„Öll vinna sjálfboðaliða er okkur mikils virði. Við vildum sýna það í
verki og buðum sjálfboðaliðum, sem tengjast stærstu verkefnum
okkar, í mat til að sýna þakklæti okkar á Degi sjálfboðaliðans.
Þetta tókst svo vel að við stefnum á að gera þetta aftur að ári,“
segir Baldvin Hróar Jónsson, formaður Ungmennafélagsins Þróttar í
Vogum á Vatnsleysuströnd. Í tilefni dagsins var blásið til matarboðs
í samkomuhúsinu Álfagerði í Vogum.
Yfir 30 manns var boðið til veislunnar, 25 sjálfboðaliðum úr
nokkrum verkefnum og stjórn ungmennafélagsins ásamt þjálfurum.
Á matseðlinum var lambakjöt með bernaise-sósu.
Baldvin segir mikilvægt að sýna sjálfboðaliðum í verki hversu mikil-
vægir þeir eru. „Við erum í litlu bæjarfélagi. Það er eins og hjá flest-
um barátta að manna stjórnir og fá fólk í ýmis verkefni. Við erum gríð-
arlega ánægð með alla þá sem bjóða sig fram og vildum gera vel
við þá í tilefni dagsins,“ segir hann og bætir við að matarboðið hafi
staðið í um tvær klukkustundir. Allir voru bæði saddir og sáttir.
„Það er gaman að geta boðið sjálfboðaliðum upp á eitthvað í
staðinn fyrir óeigingjarnt starf. Allir þurfa klapp á bakið. En svo er
þetta góður vettvangur til að hittast og efla tengslin,“ segir Baldvin
Hróar Jónsson sem hefur setið í stjórn félagsins í þrjú ár, þar af tvö
sem formaður.
Sigrún Ágústsdóttir ásamt vinkonu sinni, Lovísu Sigurðardóttur, sem stend-
ur yfirleitt vaktina með henni í dósahúsinu á þriðjudögum. Ef Lovísa kemst
ekki með er ætíð einhver úr körfuknattleiksdeildinni með Sigrúnu.
SJÁLFBOÐALIÐINN SKILAR FRÁBÆRU STARFI
Geggjað að vera sjálfboðaliði
Sigrún Ágústsdóttir hjá körfuknattleiksdeild Þórs í Þorlákshöfn hefur
séð um dósahús ungmennafélagsins í bænum hvern einasta þriðju-
dag í áraraðir. Dósahúsið er móttökustaður fyrir umbúðir úr plasti til
endurvinnslu í Þorlákshöfn. Íbúar í bænum koma þangað með plast-
flöskur auk þess sem iðkendur safna flöskum í bænum og koma með
í húsið. Sigrún sendir flöskurnar í endurvinnslu og fær greiðslu fyrir
sem rennur til deildarinnar.
„Starfið hjá ungmennafélaginu í Þorlákshöfn er flott í öllum deild-
um. Þar hef ég hlutverk og sinni því. Það er ótrúlega gaman að fá
að vera hlekkur í þeirri keðju,“ segir Sigrún sem var gjaldkeri körfu-
knattleiksdeildarinnar á árum áður en hefur á hverjum þriðjudegi í
25 ár staðið vaktina í dósahúsinu klukkutíma í senn.
Sigrún segir forsögu dósahússins þá að þegar hún var gjaldkeri
deildarinnar var alltaf verið að biðja um styrki. Hún hefði fengið
veður af því að kaupfélagið, sem þá var í bænum, mætti ekki taka
lengur á móti plastflöskum. Hún bar það undir stjórn ungmenna-
félagsins hvort hún mætti taka þetta verk að sér. Þar á bæ fannst
mönnum það nokkuð viðamikið en Sigrún fór í málið og dósahúsið
er nú helsta tekjulind körfuknattleiksdeildarinnar. Lovísa Sigurðar-
dóttir, vinkona Sigrúnar, hefur verið með henni í mörg ár.
„Þetta er afar gaman og góð fjáröflun,“ segir Sigrún.
Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans var
5. desember síðastliðinn. Á þessum degi eru
sjálfboðaliðar um allan heim heiðraðir fyrir
óeigingjarnt starf sitt. Sjálfboðaliðar eru mikil-
vægasti hlekkurinn í starfi UMFÍ. Við heyrðum
í tveimur sjálfboðaliðum í tilefni dagsins.