Skinfaxi - 01.04.2018, Page 8
8 SKINFAXI
F
ramkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar er hæst-
ánægður með viðtökur við fræðslufundi um verkefnið Sýnum
karakter á dögunum. Hann sér fyrir sér að verkefnið hafi jákvæð
áhrif á iðkendur í öllum deildum aðildarfélaganna og að þeir
muni notfæra sér það í daglegum störfum í framtíðinni.
„Það er mikilvægt að þjálfarar og aðrir sem vinna með krökkum og
unglingum séu með leiðarvísi að góðu starfi sem gangi í gegnum allt
félagið. Við það verða sömu gildi og skilaboð alls staðar,
óháð því í hvaða grein og flokki iðkandi er,“ segir Sigurður
Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands
Borgarfjarðar (UMSB). Hann stóð fyrir fræðslukvöldi í lok
nóvember síðastliðins í framhaldi af því að ákveðið hefur
verið að innleiða verkfærakistu verkefnisins Sýnum karakter
í starf UMSB. Nokkur félög hafa þegar innleitt verkfærakistu
Sýnum karakter í starfi sínu en að mismiklu leyti.
Á fræðslukvöld UMSB komu stjórnendur aðildar-
félaga og hlýddu á erindi fyrirlesara um ýmsar
hliðar verkefnisins. Þar á meðal voru þær Auður
Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, og
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ,
ásamt körfuboltaþjálfaranum Pálmari Ragnars-
syni, sem hefur slegið í gegn sem fyrirlesari um
jákvæð samskipti og haldið marga fyrirlestra á
viðburð um Sýnum karakter.
Verkfæri sem nýtist í lífinu
Sigurður segir viðtökurnar hafa verið alveg frábærar og ljóst að margir
hafi áhuga á verkefninu. „Kvöldið tókst afar vel. Fjöldi fólks mætti og
verkefnið fékk mikla athygli. Það þarf að vekja athygli og láta bera á því
í stað þess að innleiða það í rólegheitum. Á viðburðinn mættu stjórnar-
menn í UMSB og aðildarfélögum, þjálfarar, foreldrar, ömmur og afar
og iðkendur sömuleiðis. Þess vegna áttuðu sig fleiri á verkefninu, kostum
þess og út á hvað Sýnum karakter gengur. Nú vita það allir og þá verð-
ur verkfærakistan eins og gæðahandbók sem hægt verður að vinna
með,“ segir Sigurður og bendir á að nú þegar vinni margir þjálfarar
með eitt og annað úr verkfærakistu Sýnum karakter. Það sé ómeð-
vitað. Núna, þegar búið sé að kynna verkefnið í öllum deildum
UMSB og kynna fyrir þjálfurum, iðkendum og foreldrum út á hvað
það gangi, átti sig fleiri á kostum þess og hvaða leiðir eigi
að fara. Þá séu líka fleiri reiðubúnir til að leggja meira
af mörkum, bæði til félagsstarfsins og í þjálfun.
Sigurður segir skólastjórnendur hafa komið á
fræðslufundinn og strax séð flöt á að nota verkfær-
in í skólum sínum. „Það var gaman að sjá íþrótta-
kennara og skólastjóra sem geta hugsað sér að
nýta verkefnið. Það snýst nefnilega að mörgu
leyti um áhugahvöt, markmiðasetningu og fleira
í lífinu en íþróttir,“ segir Sigurður.
UMSB innleiðir verkfærakistu
Sýnum karakter