Skinfaxi - 01.04.2018, Síða 10
10 SKINFAXI
UMSK bauð nýverið stjórnendum úr forystusveit
aðildarfélaga til Manchester í Bretlandi til að
kynna sér íþrótta- og tómstundastarfið í borginni.
Sameiginlegar ferðir auka samstarf félaganna.
Næsta stóra verkefnið er þorrablót í janúar.
„Sumum finnst undarlegt hversu vel félögin eru að vinna saman. En auð-
vitað er það til hagsbóta fyrir alla að gera það. Við getum verið and-
stæðingar inni á vellinum en þess utan er samstarf af hinu góða að
mínu mati,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri ungmenna-
félagsins Breiðabliks í Kópavogi. Félagið hefur tekið upp aukið sam-
starf við önnur ungmennafélög í bæjarfélaginu sem eru aðildarfélög
Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK).“
Saman yfir sviðakjömmum
„Samstarf félaganna er af ýmsum toga. Stærsta verkefnið fram undan er
sameiginlegt þorrablót íþróttafélaganna í Kópavogi. Allir miðarnir sem
voru í boði á Kópavogsblótið seldust upp á innan við 10 klukkustundum.
Til stóð að byrja á því að halda þorrablótið í Smáranum í Kópavogi en
salurinn hjá okkur var upptekinn og því var ákveðið að byrja með það
í íþróttamiðstöðinni í Kórnum.
Það er mjög mikil stemning fyrir þessu og eftirspurnin mikil enda er
þorrablótsnefndin komin með biðlista á blótið,” segir Eysteinn og bætir
við að nýverið hafi félögin bundist höndum saman um að halda þorra-
blót næstu þrjú árin hið minnsta. Hann býst við heilmiklu fjöri og segir
lítið mál fyrir Breiðablik að halda þorrablót með fleiri félögum.“
Kynntust á ferðalagi
Eysteinn segir meiri hag í samstarfi heldur en að hvert félag vinni í sínu
horni, jafnvel í samkeppni við aðra. Það má í raun segja að aukið sam-
starf milli félaganna í Kópavogi hafi meðal annars orðið til eftir tvær
frábærar ferðir sem farnar voru á vegum UMFÍ og UMSK.
Sumarið 2017 fór lykilfólk í stjórnum sambandsaðila UMFÍ og aðildar-
félaga þeirra til Álaborgar í Danmörku til að kynna sér landsmót DGI.
Fyrr á árinu fékk svo UMSK styrk frá Erasmus-áætlun ESB til að bjóða
forsvarsfólki aðildarfélaga til Manchester í Bretlandi, til að kynna sér
íþrótta- og tómstundastarf þar í borg ásamt því að heimsækja samtökin
Streetgames. Ferðin varð upphafið að verkefni sem hefur þau markmið
að draga úr brottfalli, auka virkni og þátttöku í starfi og auka framboð
á skemmtilegum verkefnum fyrir alla aldurshópa.
„„Það er ekkert launungarmál að samgangur félaganna hefur orðið
til þess að fólk innan félaganna fór að kynnast betur. Ferðirnar juku auð-
vitað víðsýni og maður lærir alltaf af því að sjá hvað aðrir eru að gera.
En stóri plúsinn er sá að í ferðum tengjast stjórnendur íþróttafélaganna
betur. Samskiptin verða líka betri og allt öðruvísi þegar fólk hefur kynnst
hvert öðru. Þær hafa leitt til samræðna og samvinnu. Við áttuðum okkur
auðvitað á því að við erum með fullt af fólki, foreldrum sem eiga börn
í nokkrum félögum í Kópavogi. Það er til hagsbóta fyrir alla að vinna
saman. Þótt við séum ekki í sama liði stefnum við öll að sama markmiði
fyrir íbúa sveitarfélagsins og iðkendur,” segir Eysteinn.
Íþrótta- og ungmennafélög í
Kópavogi vinna saman