Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI
Fullbókað hefur verið í Ungmenna-
og tómstundabúðir UMFÍ að Laugum
í Sælingsdal upp á síðkastið.
Forstöðukonan segir fólk sækja
í dvöl án snjalltækja.
„Það er búið að vera alveg brjálað að
gera hjá okkur á Laugum. Nú í október
voru komnar 2.200 bókanir. Ég hef bara
aldrei upplifað annað eins. Skólastjórnend-
ur eru enn að hafa samband, spyrja um
dvölina hjá okkur og panta viku fyrir nem-
endurna,“ segir Anna Margrét Tómasdóttir,
forstöðukona Ungmenna- og tómstundabúða UMFÍ að Laugum í
Sælingsdal.
Ungmennabúðirnar hafa verið starfræktar að Laugum frá árinu
2005 og eru þær eitt af stærstu verkefnum UMFÍ. Þar er skipulögð
dagskrá fyrir níunda bekk grunnskóla í fimm daga dvöl í senn yfir
skólaveturinn. Ungmennabúðirnar eru skilgreindar sem ungmenna-
og tómstundabúðir þar sem áhersla er lögð á óhefðbundið nám
og félagsfærni. Ungmenni, sem koma að Laugum, taka þátt í starfi
búðanna innan- og utandyra og lögð er áhersla á bæði verklega
þætti og þjálfun.
Nemendum hefur fjölgað á hverju einasta misseri og bóka skólarnir
nú dvöl að Laugum mun fyrr en áður. Í vor hafði Anna Margrét bókað
1.700 níundubekkinga á Laugum nú í haust sem er talsverð fjölgun á
milli ára og var því fyrir löngu ljóst að aðsókn yrði mjög góð.
Anna Margrét segir eitt og annað skýra
fjölgunina. Þessi mál voru áður að mestu á
vegum foreldrafélaganna en í mörgum skól-
um hafa skólastjórnendur nú tekið þau að
sér. Við það bætist að skjá- og snjalltækja-
notkun hefur aukist mikið í grunnskólum.
Telja margir ungmenni hafa gott af því að
taka sér frí frá slíkum tækjum. Á Laugum
fá gestir einmitt ekki að nota snjallsíma og
tölvur. Brjóti þeir þá reglu er tekið á því.
„Hjá okkur hvílast börnin betur en heima
hjá sér, þau vakna hress og hafa orku fyrir
allan daginn. Ég held þess vegna að síma-
leysið laði. Hún er svo mikilvæg, öll hvíldin
sem börnin fá frá tækjunum,” segir Anna Margrét og viðurkennir
að þetta hafi verið annasamt misseri.
Ótrúlega mikil aðsókn
að Laugum
• Stjórn UMFÍ hefur um nokkurt skeið átt í viðræðum við
Bláskógabyggð um flutning á Ungmenna- og tómstunda-
búðum UMFÍ að Laugarvatni. Viðræður eru langt komnar
og munu búðirnar flytja að Laugarvatni sumarið 2019.
• Það eru ekki aðeins nemendur í 9. bekk sem sækja í að
dveljast á Laugum. Anna Margrét Tómasdóttir forstöðu-
kona hefur verið þar frá fyrsta degi ásamt fjölskyldu sinni.
Í vetur hófu svo störf þar á nýjan leik Jón Valur Ólafsson
og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frístundaleiðbeinendur, fimm
börnum ríkari. Þau voru einmitt á meðal fyrstu starfsmanna
Ungmennabúðanna og byrjuðu árið 2005.