Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI UMFÍ hefur nú þegar nýtt sér nokkrar af þessum sviðsmyndum við ákvarðana- töku, svo sem með breyting- um á mótahaldi og áherslum í núverandi og nýjum verk- efnum. Hvað er að frétta af framtíðinni? Tökum afstöðu – stöndum saman Það er gaman að velta því fyrir sér hvaða afleiðingar þessir straumar og mögulegu stefnur muni hafa fyrir starfsemi ungmenna- félaga og hreyfingarinnar allrar. Af þeim sökum er mikilvægt að spyrja: Hvað viljum við gera meira? Hvað viljum við ekki sjá? Hverju viljum við ekki breyta? Eitt er víst: Það að taka ekki afstöðu er afstaða. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi á þeim rúm- lega 110 árum sem liðin eru frá því að Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) var stofnað. Samfélagið mun áfram taka breytingum. Í því eru fólgin tækifæri og áskoranir. Breytingarnar munu hafa áhrif á starfsemi og umhverfi ungmenna- og íþróttafélaga, hvort sem það er vegna frumkvæðis þeirra sjálfra eða utanaðkomandi aðstæðna. Mikilvægt er því að greina þarfirnar og koma til móts við óskir iðkenda, félagsmanna og samfélags. Þegar þessi mál eru skoðuð er mikilvægt að virða fyrir sér það sem er að gerast umhverfis okkur, ekki aðeins í ungmennafélagshreyf- ingunni heldur allt í kringum okkur, hérlendis sem erlendis. Við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér eða hvernig starfsemi ungmenna- og íþróttafélaga muni þróast. En við getum rýnt í aðstæðurnar, skoðað þarfirnar og unnið saman að því að skoða áherslur og nýjungar sem létta okkur ákvarðanatöku hvað varðar næstu skref. Hér verður rýnt í strauma og mögulegar stefnur en ekki er um endanleg svör að ræða. Allir í sinni „búbblu“ Mikilvægt er að byggja brýr og vinna saman. Í veröld, þar sem mjög margir eru uppteknir í sínum eigin heimi þegar um er að ræða forsendur og ákvarðanatöku er mikil- vægt að skoða málin frá fleiri en einu sjónar- horni, fræðast og deila upplýsingum. Við get- um öll lært heilmikið á því að skoða hvernig aðrar deildir innan félagsins okkar eða fólk í öðrum íþróttagrein- um eða sem býr annars staðar leysir einstök mál. Upplýsingar strax! Fólk getur nálgast upplýsingar alltaf og alls staðar. Staður, tímasetning, aldur og kyn skiptir orðið litlu máli. Það sem sameinar fólk er áhugamál þess. Aðgangur að upplýsingum er gríðarlegur og um leið er augljóst að ýmis mörk eða tengingar eru að hverfa. Það á við um landamæri og önnur mörk og afmarkanir sem hingað til hafa verið fyrirframgefnar og ófrávíkjan- legar í samfélaginu. Um leið og aðgengi að upplýsingum er algjört er gerð mikil krafa um svörun. Ófá dæmi eru um það, þegar tölvupóstar berast seint að kvöldi, að óskað sé svara samstundis. Það sem er nýtt í dag er gamalt á morgun. Þegar skýr stefna er til staðar er einfalt og fljótlegt að svara í samræmi við hana. Breyttir neysluhættir – sameinum fólk í gleði Aðgengi að og framboð á íþróttum og hreyfingu hefur aldrei verið meira og betra en nú. Margir hafa gert heil- brigt líferni að lífsstíl. Það er ungmennafélagsandinn í hnot- skurn. Í honum felst að stunda íþróttir og heilsusamlegt líferni á eigin forsendum með það að markmiði að ná framförum og bæta sig. Þær hugmyndir munu fá meiri meðbyr þar sem einblínt er á þátttöku hvers og eins og á eigin forsendum. Ein af kröfum nútímans er að iðkendur vilja sníða upplifun sína að eigin þörfum, á eigin forsendum. Þeir vilja stunda þá íþrótt sem þeir vilja, þegar þeir vilja. Þessi þróun er í algjöru samræmi við það sem við sjáum í þróun sjónvarps (Netflix) og í matarinn- kaupum heimilanna (Eldum rétt og álíka kostir). Áhugavert verður að fylgjast með því hvernig ungmenna- og íþróttafélög muni laga sig að óskum iðkenda um einstaklingsmiðaðri og sveigjanlegri þjónustu. Sum félög hafa tekið fyrstu skrefin í þá átt. Breytt sam- félag – Allir með Íslenskt samfélag er fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr. Áfram verður lögð áhersla á breiðari þátttöku og fleiri raddir sem þarf að hlusta á. Það felur í sér að staðlaðar ímyndir eru á undanhaldi og jafnrétti verður í forgrunni. Eins er rætt um að ókynbundnar íþróttir muni ryðja sér til rúms og að fatlaðir og ófatlaðir taki saman þátt í íþróttum í meira mæli. Nýjar íþróttagreinar Nýjar íþróttagreinar munu spretta upp. Meðal þeirra eru rafíþróttir sem hafa eflst gífurlega hratt á meginlandi Evrópu að undan- förnu. Víst er að raunveruleiki okkar mun renna að einhverju leyti saman við hinn rafræna heim, óháð því hvaða grein er um að ræða. Fleiri munu nýta sér rafræn verkfæri og eiga sam- skipti við og í gegnum hin ýmsu öpp. Mikil framþróun og nýjar áherslur munu fylgja þessum rafrænu áherslum sem félög innan UMFÍ hafa mörg hver nú þegar tileinkað sér að einhverju leyti.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.