Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI
„Það er mikilvægt að hafa gaman af íþróttum, að njóta þess að hreyfa
sig. Það eykur einkum líkurnar á því að unglingar haldi áfram í íþróttum.
Áhrifin geta haft jákvæð áhrif fyrir mannkynið,“ segir Kanadamaðurinn
Jeffrey Thomson. Hann hefur unnið í um 40 ár með ungmennum og helg-
að líf sitt gerð fræðsluefnis og aðferða sem stuðla eiga að betra utanum-
haldi með ungmennum og íþróttaiðkunum þeirra.
Jeffrey Thomson hefur um árabil verið þekktur á sviði fimleika fyrir ráð-
gjafarstörf sín. Jeffrey hefur unnið mikið fyrir Alþjóðafimleikasambandið
(FIG). Hann kom meðal annars hingað til lands í ágúst sl. og hélt fyrirlest-
ur um hið einstaka viðfangsefni að vinna með unglingum, áskoranir og
úrlausnir.
Jeffrey hefur í gegnum tíðina ferðast þvert og endilangt um heiminn,
bæði fyrir fimleikaheiminn og sem ráðgjafi. Í starfi hans felst meðal ann-
ars að hjálpa stjórnvöldum við að byggja upp fræðsluáætlanir og stefn-
ur sérsambanda víða um heim sem stuðla eiga að betra utanumhaldi
íþróttaiðkunar ungmenna. Þegar ritstjóri Skinfaxa náði tali af Jeffrey um
miðjan nóvember var hann að undirbúa sig fyrir fimleikamót í Þýskalandi.
Þekktu líkama þinn
Jeffrey Thomson segir horfurnar í lýðheilsu um heim allan ekki upp á
marga fiska. Fólki, sem glímir við ofþyngd og lífsstílstengda sjúkdóma,
fjölgar stöðugt. Það er sístækkandi baggi á heilbrigðiskerfum helstu landa,
ekki aðeins þeirra sem alla jafna teljast til Vesturlanda heldur einnig í
Rússlandi, austur í Kína og fleiri löndum. Kostnaður í kerfunum eykst,
álagið sömuleiðis og óheilbrigður lífsstíll hefur íþyngjandi áhrif á kerfið
allt. Þetta hefur neikvæð áhrif á efnahag viðkomandi þjóða enda verð-
ur rekstur heilbrigðiskerfis dýrari vegna lífsstílstengdra vandamála. Úr
þessu þarf að bæta, segir hann.
Jeffrey segir úrlausn ofangreinds vandamáls áskorun framtíðarinnar.
Lausnina sér hann í því að gera íþróttir skemmtilegri og auka líkams-
og hreyfigreind iðkenda, það er að segja að auka þekkingu þeirra á
því hvað þeir geti og hvernig þeir geti notað líkama sinn. Þetta telur
hann geta fjölgað þeim sem stundi íþróttir fram á fullorðinsár og líka
fjölgað í hópi fullorðinna iðkenda.
Þótt sérsvið Thomsons sé fimleikar vill hann ekki gera of mikið úr þeirri
grein sem lyklinum að líkamsgreind. Kostinn við fimleika segir hann engu
að síður vera þann að greinin snúist um liðleika, líkamslæsi, samhæfingu,
styrk og rýmisskynjun. Þá séu í fimleikum markvisst kennd atriði sem
bæti styrk, jafnvægi, sveigjanleika og auki líkamsgreind iðkenda.
„Það skiptir ekki máli hvaða íþrótt barnið eða unglingurinn stundar.
Kosturinn við fimleika er sá að þar öðlast iðkendur hæfni til að læra á
líkama sína í gegnum leik. Þeir þurfa að reyna á sig. Við það verður
námið skemmtilegt og næstum ómeðvitað. Þetta er auðvitað hægt að
gera í fleiri greinum eins og parkour sem reyndar er grein skyld fimleik-
um. Eftir því sem börnin þroskast eykst auðvitað hættan á að þau hætti í
íþróttum. Það gerist iðulega í kringum eða eftir 14 ára aldurinn. Ástæð-
urnar eru eðlilegar. Þá á námið huga þeirra, þau eru farin að hugsa um
annað og eiga sér fleiri áhugamál. Það sem við þurfum að gæta – og
líkamsgreind úr æsku getur stuðlað að – er að ungmenni hugi að heils-
unni, lifi heilbrigðu lífi og haldi helst áfram í íþróttum með einhverjum
hætti. En það sem skiptir máli er að börn og ungmenni læri á líkama
sinn, öðlist líkamsgreind, áður en þau fara út á alvarlegri og afreksmið-
aðri brautir í íþróttum,“ segir Thomson.
Kommúnistaríkin til fyrirmyndar
Eins og áður segir hefur Jeffrey Thomson unnið lengi að uppbyggingu
fræðsluáætlana fyrir stjórnvöld. Slíkt hefur hann gert bæði í Kína og í
fyrrum Sovétríkjunum. Hann segir barna- og unglingastarf þar til fyrir-
myndar.
„Mér sýnist að þar sem miðstýrt vald er við lýði séu möguleikarnir
meiri. Ég hef unnið lengi með stjórnvöldum í Kína. Þar gerir fólk sér líka
grein fyrir vandanum. Stjórnvöld þar standa frammi fyrir því að á næstu
árum muni einn milljarður íbúa hreyfa sig minna og eiga á hættu að
búa við mun verri lífsgæði og verða byrði á heilbrigðisþjónustunni.
Stjórnvöld í Kína ætla að spyrna á móti þessari þróun og innleiða í
skólakerfið úrræði sem eiga að fjölga þeim sem hreyfa sig og eiga að
auka líkamsgreind þeirra. Kínverjar vona að þetta skili því að færri
landar þeirra þjáist af ofþyngd og heilsubresti fyrir aldur fram,” segir
Jeffrey Thomson og ítrekar að þær þjóðir sem gjarnan er minnst með
Segir gleðina halda
fólki í íþróttum
Kanadískur sérfræðingur segir mikilvægt að kenna börnum
og ungmennum að læra á líkama sinn. Ánægjan af því að
hreyfa sig geti dregið úr brottfalli barna úr íþróttum.