Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.2018, Page 21

Skinfaxi - 01.04.2018, Page 21
 SKINFAXI 21 I ðkendum fjölgar sem koma út á barns- og unglingaaldri sem trans. María Helga Guðmundsdóttir er landsliðskona í karate og formaður Samtakanna ‘78. Hún hefur haldið fyrirlestra um íþróttir án hinsegin fordóma og segir mikilvægt að íþróttafélög velti því fyrir sér hvernig best megi taka á móti transbörnum. „Við vitum að sífellt fleiri einstaklingar koma út sem trans sem ungling- ar og jafnvel fyrr. Það þýðir að æ fleiri iðkendur í íþróttum og tómstund- um munu koma út sem trans. Þó ekki séu enn margir þjálfarar sem hafa fengið til sín transiðkanda þá er aðeins tímaspursmál hvenær þeim fjölg- ar. Mörg félög hafa ekki haft tækifæri til að velta fyrir sér þeiri spurningu hvernig best megi taka á móti þessum iðkendum þegar þar að kemur,“ segir María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna ‘78. María Helga segir mjög algengt að foreldrar transbarna hafi sam- band við samtökin til að fá ráðleggingar. „Við erum með ráðgjafarþjón- ustu þar sem við bjóðum upp á ráðgjöf fyrir hinsegin fólk, aðstandendur og fagaðila. Þar koma upp margs konar mál, fyrst og fremst þau sem snúa að heimili og skóla en einnig tómstundum og íþróttum,“ segir hún en bætir við að góðu fréttirnar séu þær að íþróttahreyfingin þurfi ekki að finna upp hjólið í þessum málum. „Ísland er ekki fyrsta landið í heiminum þar sem transfólk stígur fram, hvað þá transíþróttafólk. Víða er verið að þróa regluverk og ramma um málefnið og til eru reglur bæði frá Alþjóða Ólympíusambandinu og hjá ýmsum landssamböndum um keppnisþátttöku í kynjaskiptum flokkum,“ segir hún. Mikilvægt að sýna hverjum iðkanda virðingu Eitt meginhlutverk íþróttahreyfingarinnar er að efla og styrkja ungt íþróttafólk og María Helga segir það sama eiga við um transbörn og önnur börn. „Það þarf að taka á móti hverjum einstaklingi eins og hann er og skapa honum vettvang til að vaxa og dafna á sínum forsendum. Við ráð- leggjum þjálfurum að hlusta, taka það sem iðkandinn hefur að segja um sig og sína sjálfsmynd til greina, sýna honum skilning og virðingu og Tökum á móti hverjum einstaklingi eins og hann er fara í gegnum þann aðbúnað sem þarf mögulega að vera til staðar fyrir iðkanda, sem dæmi búningaaðstöðuna.“ María Helga hefur mikla reynslu af heimi íþróttanna sem iðkandi og þjálfari og af félagsstarfi og hefur haldið fyrirlestra um íþróttir án hinseg- in fordóma hjá ÍSÍ og KSÍ. „Það eru ávallt mjög góðar umræður sem við eigum við þjálfara og starfsfólk íþróttafélaga,“ segir hún og telur að það myndi hjálpa til ef hinsegin hreyfingin og íþróttahreyfingin gætu unnið saman að því að útbúa samhæfðar leiðbeiningar fyrir íþrótta- og ungmennafélög, um rétt viðbrögð við iðkendum á jaðrinum. „Það skiptir öllu máli fyrir hinsegin samfélagið og samfélagið allt að öll- um líði vel í íþróttum og að þeir fái tækifæri til að dafna þar,“ segir hún. ÞÁTTTAKENDUR Á LANDSMÓTINU 2018 VORU 1.032 AF ÞEIM VORU 496 KARLAR 536 KONUR FJÖLDI ÞÁTTTAKENDA: 17–25 ÁRA: 178 26–35 ÁRA: 178 36–45 ÁRA: 161 46–55 ÁRA: 142 56–65 ÁRA: 121 66–75 ÁRA: 161 76 ÁRA OG ELDRI: 91

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.