Skinfaxi - 01.04.2018, Síða 23
SKINFAXI 23
Ronja Sif Magnúsdóttir er sjö ára transstelpa sem býr með for-
eldrum sínum og tveimur systkinum á sveitabæ í Flóahreppi. Ronja hefur
æft bæði fimleika og frjálsar. Fjölskylda Ronju hefur mjög góða reynslu
af viðbrögðum ungmennafélaganna sem hún æfir hjá.
Ronja var aðeins fjögurra ára gömul þegar hún kom út sem trans. „Hún
sýndi alltaf greinilega að hún vildi vera stelpa, stalst í fataskáp systur
sinnar og gekk um með buff á hausnum sem hún lét okkur setja í teygju
eins og sítt hár. Við töluðum við Samtökin `78. Þar fengum við staðfest-
ingu á því að þetta væri skólabókardæmi um trans og að við ættum að
gefa henni frelsi,“ segir Stefanía Ósk Benediktsdóttir, móðir Ronju.
Hún segir að vissulega hafi þetta verið erfitt ferli enda hafi þau for-
eldrarnir um tíma orðið að syrgja þá framtíðarsýn sem þau höfðu fyrir
strákinn Aron Frey.
Fjölskyldan fékk góðan stuðn-
ing úr nærumhverfi sínu. „Leikskól-
inn tók rosalega vel á þessu og
skipti strax um nafn á hólfinu henn-
ar og í tölvukerfinu. Það sama var
uppi á teningnum í skólanum. Þar
var tekið afskaplega vel á móti okk-
ur og við fengum að ráða sjálf
hvernig sund- og íþróttatímum
yrði háttað,“ segir Stefanía en
Ronja fer alltaf í klefa með stelp-
unum.
Ronja æfði fimleika síðasta vet-
ur með Ungmennafélagi Stokks-
eyrar. Í vetur æfir hún frjálsar íþrótt-
ir með Ungmennafélaginu Þjót-
anda í Flóahreppi. „Á báðum stöð-
um var frábærlega tekið á málum
og hún fær að æfa með stelpunum,“
Urðu að gefa Ronju frelsi
segir Stefanía og bætir við að Ronju líði alltaf vel á æfingum, sérstak-
lega hafi hún blómstrað í fimleikunum í fyrra. „Henni er alltaf vel tekið
af æfingafélögum sínum. Líklega hjálpar það líka til að hún var svo
ung þegar hún kom út og fæst börnin muna eftir henni sem strák.“
Þjálfarar og kennarar fái fræðslu
Stefanía hefur þó örlitlar áhyggjur af því hvað gerist við kynþroskaaldur
þegar líkami Ronju breytist, en henni er ekki heimilt að fara í aðgerð
fyrr en hún verður sjálfráða. „Maður vonar að þá verði tímarnir breyttir
enda er vitneskja fólks um trans alltaf að aukast.“
En hvernig finnst henni að íþróttafélögin eigi að taka á málum tengd-
um transbörnum? „Það á bara að taka á móti þeim eins og öllum öðrum
og samþykkja þau eins og þau eru,“ segir hún og telur mikilvægt að
þjálfarar líkt og kennarar fái fræðslu um hvað það sé að vera trans.
Ronja ásamt fjölskyldu sinni.