Skinfaxi - 01.04.2018, Page 25
SKINFAXI 25
Allt frá árinu 2012 hafa verið í gildi innan Æskulýðsvettvangsins siða-
reglur sem starfsfólk og sjálfboðaliðar eiga að fara eftir í starfinu og
utan þess. Þær snúa meðal annars að samskiptum, en markmiðið með
þeim er að byggja upp góð samskipti og góða menningu innan þeirra
félagasamtaka sem saman mynda Æskulýðsvettvanginn og stuðla
þannig að heilbrigðu, uppbyggjandi og vönduðu starfi með börnum
og ungmennum. Hér á eftir fara nokkrar mikilvægar siðareglur sem
nauðsynlegt er að allir ábyrgðaraðilar fari eftir í starfinu.
Allar siðareglur Æskulýðsvettvangsins
má finna á aev.is
Starfsfólk eða sjálfboðaliðar, sem ráðnir eru til að starfa
með börnum, skulu hæfir til þess. Ávallt skal leita eftir
samþykki þeirra sem hyggjast hefja störf um leyfi fyrir
öflun upplýsinga úr sakaskrá.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu ekki mismuna
börnum og ungmennum með orðum eða hegðun
á grundvelli þjóðernis, uppruna, kynþáttar, litar-
háttar, kyns, aldurs, trúarbragða, skoðana, kyn-
hneigðar, fötlunar, efnahags, ætternis eða stöðu
að öðru leyti.
Starfsfólk eða sjálfboðaliðar skulu ekki misnota
stöðu sína á neinn hátt, svo sem líkamlega, andlega
eða kynferðislega þegar kemur að samskiptum við
þátttakendur eða annað starfsfólk og sjálfboðaliða.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu sinna þátttak-
endum af alúð í starfi en halda sig í faglegri
fjarlægð utan viðburða og forðast náið samband.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei hafa frum-
kvæði að samskiptum við þátttakendur nema slíkt
sé í tengslum við þátttöku barns og unglings.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei stofna
til óviðeigandi sambands við börn og ungmenni
sem eru þátttakendur í starfi.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu forðast þá aðstöðu að
vera ein með þátttakanda.
Einelti skal aldrei liðið og skal starfsfólk og sjálfboða-
liðar leitast við að koma í veg fyrir hvers konar ofbeldi,
svo sem andlegt, líkamlegt og/eða kynferðislegt.
Hafa skal í huga að mörk einstaklinga eru
mismunandi og ber að virða þau. Varast skal
hvers konar snertingu sem gæti leitt til misskiln-
ings í samskiptum við börn, ungmenni og sam-
starfsfólk.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu huga að ábyrgum
rafrænum samskiptum og netnotkun við þátttakend-
ur. Forðast skal að eiga samskipti í gegnum síma
og samskiptasíður á internetinu nema í tengslum við
þátttöku barna í viðburðum.
Aldrei skal stefna heilsu eða öryggi þátttakenda
í hættu. Ávallt skal sýna fyllstu aðgát og varkárni í
starfi og koma í veg fyrir að börn lendi í aðstæðum
sem þau ráða ekki við.
Gerist aðili brotlegur við ofangreindar reglur
er heimilt að vísa honum úr starfi, tímabundið
eða að fullu.