Skinfaxi - 01.04.2018, Side 26
26 SKINFAXI
Nýr upphitaður gervigrasvöllur með
flóðlýsingu var tekinn í notkun á
íþróttavellinum á Sauðárkróki um
svipað leyti og Landsmótið hófst þar í júlí sl.
Biðin eftir vellinum hafði verið löng og rætt
var um hvort reisa ætti frekar fjölnota íþrótta-
hús. Völlurinn léttir á álagi vegna æfingatíma
í íþróttahúsinu og þess er vænst að völlurinn
bæti verulega alla íþróttaaðstöðu í bænum.
„Ég er búin að bíða eftir þessum velli næst-
um því alla ævina,“ segir Dúfa Dröfn Ásbjörns-
dóttir, varaformaður Tindastóls, íþróttakennari við Árskóla á Sauðár-
króki og leikmaður með meistaraflokki kvenna í körfubolta á Króknum.
Hún hóf að æfa á vellinum fimm ára gömul og segir hann fyrir löngu
hafa verið úr sér genginn. Gervigrasið sé því kærkomið.
Dúfa kynntist því hvernig er að spila á gervigrasvelli í Smáranum í
Kópavogi fyrir nokkrum árum og hana dreymdi um að sjá slíkt á vellin-
um á Króknum. Hún tengist á margan hátt íþróttaaðstöðunni á Sauðár-
Ráðist hefur verið í heilmikla uppbyggingu íþróttamannvirkja
hjá sambandsaðilum UMFÍ víða um land upp á síðkastið.
Mörg stór verkefni eru líka á teikniborðinu sem geta ýtt undir
og stuðlað að því að stórbæta alla aðstöðu til íþróttaiðkunar.
Hér verður litið á nokkur verkefni sem eru komin mislangt,
sumum er lokið, önnur eru á lokastigi og enn önnur í bígerð.
Mikið að gerast
í íþróttamálum
króki, sem bæði kennari og leikmaður. Hún segir að þótt íþróttahúsið
sé gott sé langt síðan það hætti að anna eftirspurn og var slegist um
lausa tíma í því. Á vetrum hafi hún þurft að senda skólabörn inn í húsið
sem var upptekið og láta þau hlaupa hring eftir hring á áhorfendapöll-
unum í allt að tvo mánuði á ári.
Dúfa segir fólk vera að læra á nýja völlinn og glíma við eðlilega
byrjunarörðugleika eins og að velta því fyrir sér hversu mikil lýsing eigi
að vera á honum, hvað hann þurfi að vera heitur og svo framvegis. Þótt
hiti sé í undirlaginu ráði það ekki við allt. Þegar viðtalið við hana var
tekið hafði verið 15 gráðu frost og hitinn ekki náð að bræða sig í gegn-
um snjóinn. Hún reiknar með að völlurinn komist í fulla notkun strax
vorið 2019 og þá geti íþróttafólk og skólabörn byrjað að æfa sig og
læra að nota hann.
„Á gamla grasvellinum náðu krakkarnir aldrei fullri spyrnu og þurftu
að halda aftur af sér. Það verður gaman að sjá næsta sumar hvort nýi
völlurinn muni ekki hafa breytingar í för með sér, bæta snerpu og leik-
skilning. Ég held að breytingin verði meiri en fólk gerir sér í hugarlund,“
segir Dúfa.
Sauðárkrókur:
Gervigrasvöllurinn á Sauðárkróki
Dúfa væntir mikils af
nýja gervigrasvellinum
á Sauðárkróki.