Skinfaxi - 01.04.2018, Side 28
28 SKINFAXI
Grindavík:
Enn bætt við
aðstöðuna
Framkvæmdir hófust við nýtt íþróttahús í Grindavík í apríl á þessu
ári. Undirbúningur hefur staðið lengi yfir en verkefnisnefnd íþrótta-
mannvirkja var skipuð árið 2014. Húsið verður tekið í notkun í
áföngum en áætluð verklok eru haustið 2019. Íþróttahúsið verður um
2.500 fermetrar og samanstendur af fjölnota bardagasal, sjoppu,
geymslum og íþróttahúsi en þar fær fimleikadeildin stærri aðstöðu.
„Þetta verður frábær viðbót við húsið sem var tekið í notkun árið
2015,“ segir Hadda Guðfinns, starfsmaður Ungmennafélags Grinda-
víkur. „Það er búið að vera púsluspil að koma öllum greinum í eitt hús.“
Draumar sem
rætast
Fyrsta skóflustunga var tekin að fimleikahúsi við íþróttamiðstöðina
á Egilsstöðum í nóvember. Húsið verður með 1.000 fermetra
íþróttasal sem sérútbúinn verður til fimleikaiðkunar, ásamt fjórum
hlaupabrautum og stökkgryfju til æfinga í frjálsum íþróttum. Gert er ráð
fyrir að byrjað verði á því að reisa undirstöður vorið 2019.
Forystufólk íþróttafélagsins Magna á Grenivík hafa lagt drög að
undirbúningi tæplega 500 metra vallarhúss. Félagið mun deila
húsinu með Björgunarsveitinni Ægi. Þar verður öll aðstaða fyrir
íþróttafélagið, skrifstofa, veitingasala og búningsaðstaða fyrir bæði lið
og dómara. „Þetta verður mikil búbót fyrir Magna og hreppinn því að
við höfum aldrei verið með okkar eigin aðstöðu,“ sagði Gísli Gunnar
Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Magna, þegar Skinfaxi tók hús á hon-
um í sumar. Þar á bæ veigra menn sér ekki við stórframkvæmdum.
Skemmst er að minnast þess að þegar knattspyrnulið Magna komst í
Inkasso-deildina haustið 2017 lét framkvæmdastjórinn þau boð út ganga
að KSÍ gerði kröfu um stúku á vellinum fyrir áhorfendur. Sjálfboðaliðar
fylktu liði og smíðuðu stúku á hálfum mánuði sem rúmar alla bæjarbúa.
Ísafjörður:
Reisa reiðhöll í
sjálfboðavinnu
Félagsmenn Hestamannafélagsins Hendingar á Ísafirði hafa síðast-
liðið ár unnið að því að reisa reiðhöll inni í Engidal. Skóflustunga
var tekin í lok júní sumarið 2017 og er stefnt á að nota húsið í vetur.
„Við erum búin að reisa alla burðargrind en eigum eftir að klæða
hana. Það er komin húsmynd á þetta. En það er kominn vetur og farið
að þrengja að okkur. Þá gengur allt hægar,” segir Marinó Hákonarson,
formaður hestamannafélagsins.
Félagsmenn í Hendingu eru um 50 og halda um 30 félagar 110 hross
í Engidal yfir veturinn. Félagsmenn voru fleiri á árum áður. Þeim hefur
fækkað nokkuð, ekki síst vegna aðstöðuleysisins. Nýja húsið mun
breytta allri aðstöðu hestamannafélagsins, bæði til æfinga og kennslu.
Áður var aðeins hægt að halda námskeið á vorin og haustin. Nú verður
það hægt árið um kring.
Félagsmenn Hendingar hafa beðið eftir góðri aðstöðu í meira en ára-
tug. Félagið hafði áður aðstöðu í Búðartúni í Hnífsdal en missti hana við
gerð Bolungarvíkurganga árið 2007. Bygging reiðhallarinnar er hluti
af samkomulagi sem forystumenn hestamannafélagsins gerðu við Ísa-
fjarðarbæ árið 2017, eftir áralangar samningaviðræður. Samkomulagið
fól í sér að Ísafjarðarbær og Hestamannafélagið Hending stofnuðu
einkahlutafélag um framkvæmdina sem sér um að reisa og reka reiðhöll-
ina með sama hætti og önnur íþróttamannvirki í sveitarfélaginu. Ísafjarð-
arbær leggur til 30 milljónir króna í verkið eða sem nemur um 49% af
heildarkostnaði. Vegagerðin greiðir svo hestamannafélaginu 20 milljón-
ir króna í bætur sem er hlutur þess í verkinu.
Marinó segir gert ráð fyrir því að heildarkostnaður við verkið geti orð-
ið um 100 milljónir króna. Hestamannafélagið ætli hins vegar að ná
kostnaðinum niður í um 60 milljónir. Það getur orðið að veruleika með
fjölda sjálfboðaliða sem hafa lagst á árarnar og komið húsinu upp.
„Við eigum mikið af harðduglegu fólki sem hefur farið í þetta. Það er
gaman í góðu veðri,“ segir Marinó og reiknast til að um 600–800 vinnu-
stundir séu eftir til að búa til skjól fyrir vetrinum í nýju reiðhöllinni í Engidal.
Hestamenn á Ísafirði eru nú loks að sjá fyrir endann á 10 ára
aðstöðuleysi sem hefur sett skorður við starfsemi félagsins.
Með tilkomu íþróttahússins verður unnt að koma öllum
íþróttagreinum í eitt hús í Grindavík.
ÚTGÁFA
HANNAÐ:
MÆLIKVARÐI
TEIKNAÐ:
YFIRFARIÐ:
TEIKNINÚMER
SAMÞYKKT:
KENNITALA:
AÐALHÖNNUÐUR
DAGS.
BLAÐSTÆRÐ
A
B
C
D
E
F
G
H
A
B
C
D
E
F
G
H
1 3 18911
41 3 2 15678911
4567 2
A1
Vistað Útprentun:
Sýndur á teikningu
17.5.2018 18:39:59
1706
07
05/16/18
Checker
Author
Designer
Unnamed
Tjarnarbraut 26
700 Egilsstöðum
Íþróttamiðstöðin Egilsstöðum
Approver
05/16/18
Útg. Dags. Skýring Br.af: Yfirf.
1 : 100
Austur
1
1 : 100
Norður
2
1 : 100
Vestur
3 Fimleikahús við íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum.