Skinfaxi - 01.04.2018, Qupperneq 33
SKINFAXI 33
Körfuknattleiksdeild Hattar á Egilsstöðum rak
nýverið leikmann sem braut af sér utan vallar.
Formaður deildarinnar segir félög verða að hafa
gildin í heiðri frekar en árangur á vellinum.
„Það kom ekkert annað til
greina. Við gátum ekki lagt
gildin okkar til hliðar þótt leik-
maðurinn hafi verið sterkur inn-
an vallar,“ segir Ásthildur Jónas-
dóttir, formaður körfuknattleiks-
deildar Hattar á Egilsstöðum.
Félagið leysti í desember lithá-
íska leikmanninn Pranas Skur-
dauskas undan samningi vegna
ofbeldisfullrar hegðunar. Mál
hans kom til meðferðar hjá
lögreglu.
Skurdauskas er reynslubolti á
vellinum, hefur leikið í Austurríki,
á Ítalíu auk heimalandsins. Ásthildur segir hann hafa verið góðan
inni á vellinum enda skorað að meðaltali 10,3 stig í leik. Þrátt fyrir
góða leiki og erfiðar viðureignir liðsins fram undan hafi ekkert annað
komið til greina en að leysa leikmanninn undan samningi.
„Stjórn deildarinnar var sammála um það að hún samþykki ekki
svona háttsemi leikmanna hjá félaginu/deildinni. Þetta kom flatt
upp á liðsfélaga hans en það kom ekki annað til greina. Við vildum
ekki leggja gildin til hliðar til að tryggja árangur liðsins,“ segir
Ásthildur sem hefur ekki fengið neitt nema jákvæð viðbrögð við
ákvörðun stjórnar körfuknattleiksdeildar Hattar.
Vilja ekki
sjá ofbeldismenn
í íþróttum
„Það er ánægjulegt að sjá stjórnendur taka af skarið og hafa
gildi ungmennafélagshreyfingarinnar í heiðri í stað þess að
horfa á árangur liðsins til skamms tíma. Jákvæðu áhrifin verða
meiri til lengri tíma litið,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ. Hún bendir á að mikil og jákvæð bylgja
hafi farið um íþróttahreyfinguna. Það séu áhrif #metoo-byltinga-
innar sem hafi valdið því að fleiri þora að stíga fram og tjá sig
ef á þeim er brotið. Stjórnendur íþróttafélaga hafi líka
fengið kjark til að taka erfiðar ákvarðanir liðum sínum til heilla
eins og hjá Hetti á Egilsstöðum.
Hlíðasmári 6 Kópavogi 510 7900
Bílrúður - Bílalakk
PANTONE 570 PANTONE 7635