Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 34
34 SKINFAXI Dagana 12.–16. september síðastliðinn fór fimmtán manna hópur frá Ungmennafélagi Selfoss, Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK), UMFÍ, Golfklúbbi Selfoss og Sveitar- félaginu Árborg í heimsókn til Árósa í Danmörku. Heim- sóknin var liður í evrópsku samstarfsverkefni þessara aðila og DGI Østjylland. Sextán manna hópur frá DGI Østjylland kom síðan til Selfoss og dvaldi þar dagana 21.–25. nóvember sl. Meginmarkmið verkefnisins var að fá nýjar hugmyndir og aðferð- ir til að vinna með ungu fólki í íþróttum, meðal annars til að draga úr brottfalli úr íþróttum og finna leiðir til að fá fleiri börn til að stunda þær. Einnig var markmiðið að bæta gæði í starfi og gera það skil- virkara, ásamt því að byggja brýr milli sambærilegra stofnana í Árósum og Árborg til frekari samskipta og aukinnar þekkingar. Stíf dagskrá var í báðum ferðunum með fjölda fyrirlestra um ýmis- legt er tengist starfinu. Íþróttamannvirki voru skoðuð, stofnanir heim- sóttar og fengu fulltrúar ýmissa íþróttagreina kynningu hjá sambæri- legum félögum í báðum löndum. Verkefnið var unnið með Erasmus+ styrk frá Evrópu unga fólksins. Íslenski hópurinn í skoðunarferð ásamt dönskum ungmennafélögum frá DGI Østjylland. Danski hópurinn ásamt nokkrum Íslendingum í heimsókn í skrifstofu UMFÍ í Reykjavík. Árborg – Árósar samstarfsverkefni íþróttahreyfinga: Aukin þekking og nýjar hugmyndir í vinnu með ungu fólki Draumur sem varð að veruleika „Það var virkilega gaman að sjá þetta verkefni verða að veruleika. Þetta var gamall draumur sem rættist,“ segir Örn Guðnason, fyrr- verandi stjórnarmaður í HSK og forsprakki verkefnisins. „Við sáum fullt af áhugaverðum hlutum í Árósum og eigum eftir að vinna úr því. Eins voru Danirnir afar ánægðir með heimsóknina til Íslands.“ Getum margt lært af Dönunum „Það var áhugavert að kynnast störfum sambærilegra samtaka og HSK. Ég hef áður farið í kynnisferðir til Danmerkur, en þá til höfuð- stöðva DGI. Það er margt sem við getum lært af Dönunum, enda eru þeir með á fimmta tug manna í vinnu við að þróa og bæta starfið. Ég get sem dæmi nefnt aðkomu og aðstoð heildarsamtak- anna við kynningarmál og notkun samfélagsmiðla,“ segir Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK. Áhugaverð tengsl hafa myndast „Það sem var áhugaverðast í verkefninu var að það skyldi takast að mynda tengslin. Ég er nokkuð viss um að Bragi Bjarnason menningar- og frístundafulltrúi, hjá Sveitarfélaginu Árborg, muni t.d. hafa samband við Aarhus Kommune núna þegar Árborg er að fara af stað með vinnu í að móta stefnu bæjarfélagsins, því að Aarhus Kommune er nýbúin að gefa út stefnu sína. Eins er mikil uppbygging í Árósum eins og á Selfossi. Þess vegna er mikilvægt að fá góðar hugyndir frá öðrum,“ segir Helen Óladóttir Kristian- sen, stjórnarkona í DGI Østjylland. „Það er engin spurning að þetta verkefni á eftir að gagnast okkur vel, ekki síst það sem snýr að afreksíþróttum eða íþróttaakademí- unum á Selfossi. Við munum hafa samband við deildirnar innan Umf. Selfoss sem eru með akademíur og einnig FSU og fá frekari upplýsingar um hvernig hlutirnir eru gerðir á Selfossi. Vonandi tekst að fá einhverjar deildir frá stöku félögum til að taka þátt í Unglingalandsmótinu sem verður á Selfossi 2020, þótt það sé í midju sumarfríi hér í Danmörku. Ég hugsa að DGI muni hafa samband vid ÍSÍ eða UMFÍ varðandi einstök verkefni, t.d. almenningsíþróttasviðið hjá ÍSÍ og verkefnið Sýnum karakter sem UMFÍ og ÍSÍ eru með.“ Danirnir prófa íslenska glímu á Geysi. Fimleikaaðstaðan hjá Springcenter Aarhus er frábær.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.