Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2018, Síða 35

Skinfaxi - 01.04.2018, Síða 35
 SKINFAXI 35 Nýtt hjá DGI Østjylland: Félögin geta keypt aðstoð til að bæta samskipti og kynningarmál Lise Sinius Abildgaard, starfsmaður samskiptasviðs hjá DGI Østjylland, hélt fyrirlestur fyrir íslenska hópinn í Árósum þar sem hún sagði frá nýju verkefni sem samtökin settu af stað fyrr á þessu ári. Verkefnið felst í því að félögum og íþróttastofnunum innan DGI Østjylland er boðið upp á aðstoð varðandi samskipti og kynningarmál sín á netinu. Hún sagði flest félög vera í samskiptum við marga og þurfi starfsmenn þeirra að nota margar leiðir á samskiptamiðlum til þess. Mörg félög þurfi hjálp því að þau viti ekki hvernig þau eigi að ná til fólks. Hún benti líka á afleiðingar þess fyrir félögin ef það er ekki gert. Pælingar Lise Abildgaard um samskipti félagsins út á við: • Eru þau í takt við tímann? Margar heimasíður er ekki hægt að skoða í farsímum. • Virka þau fyrir utanaðkomandi? Mörg félög eru með Facebook-grúppur en ekki Facebook-síður. Það takmarkar möguleika félaganna á að ná í nýja félaga og iðkendur og þau geta ekki markaðssett starfið á samfélagsmiðl- inum. Upplýsingar á heimasíðum eru að mestu leyti miðaðar við núverandi félaga/meðlimi en ekki við nýja félaga. Því er oft er erfitt að finna upplýsingar um íþróttir, verð, staði o.fl. • Eiga þau við gagnvart þeim við erum að reyna að höfða til? Oft eru samskiptin ekki sniðin nægjanlega vel að móttakendun- um. Ekki er nógu mikið hugsað um mikilvægi þeirra og mót- takendunum ekki veitt næg athygli. Ef Facebook-síður eru teknar sem dæmi þá var fyrir hálfu ári að meðaltali hægt að ná til 20% af aðdáendum, en í dag aðeins 6%. Facebook-auglýsingar eru þó mikilvægar fyrir margar stofnanir. • Félögin eru oft í samkeppni við önnur samtök, íþróttaklúbba og svo framvegis sem setja miklu meiri fjármuni í auglýsingar. Raunverulegt dæmi Höfðar þessi kynning til ungs fólks? Lise sýndi mynd af Facebook-síðu hlaupaklúbbs í Assentoft sem er um 40 mínútur frá Árósum. Þar skildu menn ekkert í því af hverju eingöngu eldri félagar væru í klúbbnum. Og af hverju væri ekki hægt að búa til Facebook-auglýsingar. Þeir veltu fyrir sér af hverju þeir fengju ekki ungt fólk í klúbbinn. Á opnumynd Facebook-síðu klúbbins var mynd af tveimur eldri hlaupurum. Hún spurði hvort hægt væri að ímynda sér að það væri áhugavert fyrir ungan mann, sem væri að flytja til Assentoft með fjölskyldu sinni og væri að leita sér að áhugaverðum hlaupa- hópi, að ganga í klúbbinn. Lise sagði að þegar hann sæi þessa mynd á Facebook-síðunni væri erfitt fyrir hann að sjá sig í þessu félagslega samhengi. Hitt vandamálið, þ.e. af hverju þeir gætu ekki gert auglýsingar á Facebook, var út af því að þeir voru með Facebook-grúppu en ekki Facebook-síðu. Sagði hún það algengt vandamál hjá mörg- um félögum. Facebook Lise tók dæmi um Facebook-síðu fitness-deildar Mørke Idrætsforening. Þeir nota Facebook-síðuna fyrir skilaboð. Aðallega eru það neikvæð skilaboð eða upplýsingar um að engir leiðbeinendur séu í boði einhverja tiltekna daga. Í þessu tilfelli ráðlagði hún þeim að breyta innihaldi skilaboðanna. Betra væri að vera með fleiri myndir og video úr þjálfun- inni, sýna meira frá fitness-þjálfuninni og þannig hvetja nýja félaga til að koma og vera með. Neikvæðu upplýsingarnar ættu frekar heima í Facebook-grúppunni, ekki á Facebook-síðunni. Verkefnið hefur gengið vel til þessa Það sem hefur verið gert í tengslum við þetta verkefni: • Facebook-síður • Samskiptateymi • Heimasíður • Fréttatilkynningar • Markaðssetning viðburða (prufudagar) • Hvernig á að búa til videó • Prófílar á samfélagsmiðlum • Leiðbeiningar varðandi grafíska vinnslu • Auglýsingar á Facebook • Notkun mynda • Samskiptastefnur (strategy) Heimasíður Mörg félög eru með heimasíður sem eru ekki spennandi. Oftar en ekki vantar myndir eða of mikið er af upplýsingum sem blasa við. Mörgum fallast því hendur og vita ekki hvar þeir eiga að byrja. Í mörgum tilfellum líta síðurnar enn verr út í farsímum. Hjá félögum með margar deildir kemur stundum upp óánægja með aðalsíðu félagsins og þá fara deildirnar sjálfar að búa til sínar eigin síður. Þá verða til margar ólíkar síður hjá sama félaginu og ímynd félagsins birtist á ólíkan hátt. Það dregur úr samstöðu og hver er að vinna í sínu horni.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.