Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI
Styttist í lög
um lýðháskóla
Allt stefnir í að á Alþingi verði mælt
fyrir tillögu um stofnun lýðháskóla
UMFÍ á Laugarvatni á vorþingi.
Flutningsmenn tillögunnar eru
fimm þingmenn Framsóknar-
flokksins með Willum Þór
Þórsson í fararbroddi. Ef málið
kemst í gegn mun mennta- og
menningarmálaráðherra skipa
starfshóp sem skipuleggja mun
lýðháskóla UMFÍ á Laugarvatni.
Gert er ráð fyrir því í tillögunni að a.m.k. einn fulltrúi frá UMFÍ
eigi sæti í starfshópnum.
Í tillögunni segir að hópurinn taki meðal annars mið af vinnu
við frumvarp um lýðháskóla sem er í smíðum, nýtingu mannvirkja
á Laugarvatni, rannsóknum á brotthvarfi nemenda úr framhalds-
skólum og reynslu af stofnun og rekstri annarra lýðháskóla á
Íslandi, einkum á Flateyri og Seyðisfirði. Gert er ráð fyrir að
starfshópurinn skili niðurstöðum sínum í síðasta lagi 31. maí
árið 2019.
Jonathan Spejlborg,
stofnandi LungA á
Seyðisfirði:
• Fagnaðarefni er að lögð hefur
verið fram tillaga um lýðháskóla
á Íslandi. Forsvarsfólk LungA hef-
ur síðastliðin fimm ár talað fyrir
nauðsyn þess að setja slík lög.
• Við teljum að lýðháskóli hafi
margþætt áhrif á nemendur, sam-
félagið og héraðið sem viðkom-
andi lýðháskóli er í.
• Lýðháskóli er á Flateyri og svo er LungA á Seyðisfirði. Þeir eru
hvor með sína áhersluna. Lýðhá-
skóli UMFÍ væri með útivist og íþróttir. Það er jákvætt að fjölga lýð-
háskólum þar sem hver þeirra er með sínar eigin áherslur.
UMSAGNIR UM LÝÐHÁSKÓLA UMFÍ: