Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.2018, Page 37

Skinfaxi - 01.04.2018, Page 37
 SKINFAXI 37 Erling Johannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna: • Meira er betra. Fleiri úrræði og fjölbreyttari leiðir fjölga verkfærun- um í kistunni og möguleikum ungs fólks til að finna sér farveg. Í um- hverfi lýðháskóla getur ungt fólk sótt reynslu, menntun og þjálfun sem býðst ekki í hefðbundnu skóla- umhverfi, fengið aðgang að þekk- ingu leiðbeinenda sem hafa marg- ir mikla reynslu á sínum sviðum í oft sérhæfðum störfum. • Varðandi þá stefnu sem virðist vera að þróast, að uppbyggingin sé fyrst og fremst á landsbyggðinni, þá hljómar það eins og tónlist í okkar eyrum. Víða eru byggðir viðkvæmar og atvinnulíf einhæft. Að sá fræjum menntunar og skapandi hugmynda teljum við einhverja bestu leiðina til atvinnu- og samfélagsuppbyggingar. Ásta Stefánsdóttir, sveit- arstjóri Bláskógabyggðar • Sveitarstjórn fagnar framkom- inni þingsályktunartillögu um stofn- un lýðháskóla UMFÍ á Laugar- vatni. Húsakostur í eigu sveitar- félagsins getur hentað vel fyrir starfsemina. • Sú ríka hefð sem er fyrir margs konar menntastarfsemi á öllum skólastigum á Laugarvatni er góður grunnur fyrir starfsemi lýðháskóla. UMSAGNIR UM LÝÐHÁSKÓLA UMFÍ: Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísinda- sviðs Háskóla Íslands: • Ekki er mikil hefð fyrir rekstri lýðháskóla á Íslandi og engin lög- gjöf til um þá þrátt fyrir að lýð- háskólar séu starfræktir á Seyðis- firði og Flateyri. Úr þeim löggjaf- arskorti þarf að bæta því að lýð- háskólar eru góð viðbót í þá skóla- flóru sem fyrir er á Íslandi fyrir ungt fólk á aldrinum 18–25 ára. • Lýðháskóli er spennandi vett- vangur fyrir ungt fólk sem vill taka þátt í reynslumiðuðu óhefðbundnu námi og fyrir ungt fólk sem flosnað hefur upp úr námi og eykur líkur á frekara námi að lýðháskólanámi loknu. • Mikilvægt að ef skólagjöld eru til staðar, séu þau námslánahæf hjá LÍN eins og háskólanám og verknám á framhaldsskólastigi. • Staðurinn Laugarvatn er einstaklega vel til þess fallinn að reka lýðhá- skóla og ungmennabúðir. Þar eru skólahús, íþróttahús, heimavist, mötu- neyti, skrifstofuhúsnæði og íþróttavellir auk mikillar nálægðar við náttúru sem gefur mikla útvistarmöguleika s.s. til fjallgangna, tjaldferðalaga, vatna- mennsku og jöklaferða. Veðursæld er mikil á Laugarvatni og sumrin hlý. ERT ÞÚ Á LEIÐ Í LÝÐHÁSKÓLA? UMFÍ VEITIR UNGU FÓLKI SEM HYGGUR Á NÁM Í LÝÐHÁSKÓLA Í DANMÖRKU STYRK KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á UMFI.IS UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 10. JANÚAR 2019

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.