Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 42
42 SKINFAXI
HVAÐ ER
AÐ FRÉTTA?
Algjör
sprenging
í Grindavík
„Það er allt ljómandi flott að frétta úr Grindavík. Ljósin loga frá morgni
til kvölds alla daga í knattspyrnuhöllinni því að eldri borgarar nota höll-
ina frá klukkan 6 á morgnana og svo er hún í notkun langt fram eftir
kvöldi,“ segir Hadda Guðfinnsdóttir, starfsmaður Ungmennafélags
Grindavíkur.
Mikið hefur verið að gera hjá ungmennafélögum í Grindavík. Knatt-
spyrnuhöllin er fyrir löngu uppbókuð og er verið að reisa nýtt 2.000
fermetra íþróttahús sem horft er til að muni bæta alla aðstöðu til íþrótta-
iðkunar til muna og koma öllum greinum undir þak.
Íþróttaiðkunin niðurgreidd
Frístundastyrkur er ekki veittur í Grindavík heldur niðurgreiðir bærinn
íþróttastarfið samkvæmt samningi sem ungmennafélagið gerði við bæj-
arstjórnina á sínum tíma. Iðkendur greiða lága upphæð á hverri önn
fyrir íþróttaiðkunina. Það hefur skilað sér í mikilli fjölgun iðkenda.
Hadda bendir á að fjöldi iðkenda sé sami kjarni og áður. Félagið er
með yfir 80% nemenda í grunnskólanum á aldrinum 6–16 ára í hópi
iðkenda.
„Þar að auki eru 60–70 börn frá 18 mánaða til 4-–5 ára í íþrótta-
skólanum. Það er algjör sprengja. Við höfum aldrei upplifað annað
eins!“ segir Hadda. Íþróttaskóli Ungmennafélags Grindavíkur er starf-
ræktur á laugardögum yfir vetrartímann. Hadda segir bæði börn og
foreldra skemmta sér í skólanum. Íþróttakennarar við grunnskólann í
Grindavík aðstoða ungmennafélagið við kennslu barnanna sem er við-
bót við hreyfinámið sem börnin fá í leikskólanum.
Eins og samningur félagsins við bæjarfélagið kveður á um er nám-
skeið í Íþróttaskólanum niðurgreitt af bænum. Önnin kostar aðeins
5.000 krónur. Lágt verðið vekur athygli og ýtir það undir aðsókn í bæði
íþróttir almennt og í Íþróttaskólann, að sögn Höddu sem bætir við að
sömu sögu sé að segja af sunddeildinni. Þar hafi iðkendum fjölgað
mikið.
Margir bætast við í sund
„Góðu fréttirnar eru þær að nú er farið að æfa sund fullt af yngri iðk-
endum, frá sex ára aldri og upp í 16 ára, sem hafa sum hver ekki fund-
ið sig í öðrum íþróttum. Sundlaugin er hreinlega full af krökkum,“ segir
Hadda og skýrir fjölgunina líka af því að sunddeildin hafi fengið nýjan
þjálfara. Þar er á ferðinni engin önnur en Margrét Rut Reynisdóttir, sem
líka þjálfar yngri flokka kvenna í knattspyrnu. Þessi kraftmikli þjálfari er
ung að árum, rúmlega tvítug, en hefur verið í íþróttum frá unga aldri.
Margrét er ekki bara öflugur þjálfari heldur fyrirmynd í íþróttum. Hún
var sem dæmi eini Grindvíkingurinn sem þátt tók í Unglingalandsmóti
UMFÍ þegar það fór fram á Sauðárkróki árið 2009. Þá var hún 12 ára
og keppti í sjö greinum. Margrét vann til fjögurra gullverðlauna, fékk
eitt silfur og brons.
En það eru ekki bara börn og ungmenni sem stunda íþróttir af krafti í
Grindavík. Fólk á miðjum aldri og eldri borgarar láta ekki sitt eftir liggja.
Eldri knattspyrnumenn mæta tvisvar í viku, eldri borgarar stunda boccía
þrisvar í viku og fatlaðir einu sinni í viku.
„Íþróttahúsið okkar er í stöðugri notkun. Það má segja að það sé
orðin hálfgerð félagsmiðstöð, þar mætast kynslóðirnar,“ segir Hadda
hjá Ungmennafélagi Grindavíkur.
Keppendur og verðlaunahafar á páskamóti sem eldri skákmenn tóku
þátt í ásamt þeim yngri.
Hadda Guðfinns segir niðurgreiðslu íþróttagjalda jákvætt skref.