Skinfaxi - 01.01.2019, Blaðsíða 8
8 SKINFAXI
H
úsnæðið á Laugarvatni hafði verið autt í nokkurn tíma
þegar UMFÍ bar víurnar í það. Í mars náðist svo sam-
komulag um heilsársleigu hússins til tíu ára. Í leigusamn-
ingi er ákvæði um framlengingu á samningnum eftir ára-
tug auk forkaupsréttar UMFÍ á húsunum ef sveitarfélagið Blá-
skógabyggð hyggst selja þau.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð mun leggja í kringum 20 mill-
jónir króna í viðhald á húsnæðinu og sundlauginni á Laugar-
vatni. Nokkuð viðhald er fram undan á íþróttahúsinu og útiæf-
ingasvæði þarfnast talsverðs viðhalds. Gert er ráð fyrir að leigu-
tekjur vegna Ungmenna- og tómstundabúðanna standi undir
kostnaðinum.
Ungmennabúðirnar voru settar á laggirnar að Laugum í Sæl-
ingsdal árið 2005 og sækja þær yfir skólaárið nemendur í 9.
bekk í grunnskólum landsins. Árlega koma um tvö þúsund nem-
Ungmenna- og tómstundabúðir UMFÍ:
Óformlegt nám og
félagsfærni á nýjum stað
endur í ungmennabúðirnar og dvelja frá mánudegi til föstudags.
Þetta gerir um 60–70% af nemendum í þeim árgangi af öllu
landinu. Hlutfallslega fæstir nemendur koma af Austurlandi en
fleiri úr öðrum landshlutum.
Áherslan hefur ávallt verið á á útivist og félagsfærni og óform-
legt nám nemendanna og verður engin breyting á því. Símar
og nettengjanleg tæki verða auðvitað áfram óheimil í röðum
nemenda.
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, segir alla
sem búðunum tengjast fulla eftirvæntingar. Hún er ekki síður
innan UMFÍ en á Laugarvatni. Utan skólatíma, um helgar og
á sumrin, er gert ráð fyrir því að húsið verði nýtt undir aðra
starfsemi, svo sem til ráðstefnuhalds og sumardvalar hópa og
félagasamtaka. Íþrótta- og ungmennafélög víða um land fá þá
m.a. tækifæri til að nýta sér aðstöðuna í húsinu.
UMFÍ hefur undanfarnar vikur unnið að því að flytja Ungmenna- og tómstunda-
búðir UMFÍ og starfsfólk þeirra frá Laugum í Sælingsdal að Laugarvatni.
60–70%
nemenda í 9. bekk koma í
Ungmennabúðir UMFÍ.
Tölvu- og farsímar eru bannaðir á
Laugarvatni. Óheimilt er að koma
með nesti og hnetur að heiman.
Gera má ráð fyrir heilmiklu
lífi og fjöri í Ungmenna- og
tómstundabúðum UMFÍ á
Laugarvatni. Í þeim eru um
2.100
nemendur á hverju ári.
1 vika
sem nemendurnir dvelja.