Skinfaxi - 01.01.2019, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI
„Rafíþróttir eru alls staðar eins. Þar sam-
einast fjölbreyttur hópur barna og ungs
fólks um eitt áhugamál, einn leik, alveg
eins og í öðrum íþróttum. En rafíþróttir
vantar sömu innviði og aðrar greinar
hafa,“ segir Ólafur Hrafn Steinarsson,
formaður Rafíþróttasamtaka Íslands. Sam-
tökin voru stofnuð á síðasta ári og hafa
vakið mikla athygli.
Markmið samtakanna er að halda utan
um uppgang rafíþrótta hér á landi, gera
rafíþróttasenuna virkari og styðja við þá
sem taka þátt í rafíþróttum. Sambandið
hefur heldur betur látið vita af sér upp á
síðkastið. Það stóð fyrir keppni á Reykja-
víkurleikum ÍBR í janúarlok og var Ólafur
á pallborði um rafíþróttir á UTmessu
Origo í febrúar.
Sjálfur býr Ólafur að mikilli reynslu á
sviði tölvuleikja og framgangi þeirra.
Hann hóf störf í geiranum hjá CCP þar
sem hann sá um mót og beinar útsend-
ingar frá viðburðum fyrirtækisins. Þar fyrir
utan skipulagði hann mót og viðburði
tengda tölvuleiknum League of Legends,
einum stærsta leiks í heimi. Fyrir fimm árum
flutti hann svo út til Írlands og hóf störf hjá
fyrirtækinu Riot Games en það er fram-
leiðandi League of Legends. Hann flutti
heim til Íslandsð í fyrra og hefur frá miðju
ári unnið að því að byggja upp grund-
völl rafíþróttasamfélagsins hér á landi.
Innviðirnir eru hjá
íþróttahreyfingunni
Ólafur segist hafa öðlast mikla reynslu í
starfi sínu hjá Riot Games sem hann nýtir
sér í öllu starfi Rafíþróttasamtakanna í
dag. „Ég fékk að fylgjast með þróun og
uppgangi rafíþrótta í gegnum vinnuna,
ferðaðist um allan heim og mætti á raf-
íþróttaviðburði. Þar fékk ég líka að sjá
rafíþróttir færast í skipulagt starf. Ég hugs-
aði: Við eigum innviði á Íslandi sem passa
fullkomlega við rafíþróttir og við höfum
séð árangurinn í öðrum greinum. Þess
vegna lá beint við að færa þessi gildi sem
liggja á bak við íþróttir yfir á tölvuleiki,“
segir hann og leggur áherslu á mikilvægi
þess að byggja rafíþróttir upp á heil-
brigðan og góðan hátt eða á sama hátt
og tíðkast í flestum íþróttagreinum.
Ekki gott að spila út í eitt
Ímynd tölvuspilara í þjóðfélaginu er sú að
viðkomandi sitji einn heima hjá sér, spili
tölvuleiki (oftast skotleiki) út í eitt, hreyfi sig
lítið og nærist á skyndibitamat og öðru
óheilbrigðu fæði. Ólafur segir þetta auð-
vitað tíðkast. En þeir sem það geri séu
ólíklegir til að ná langt sem rafíþrótta-
menn.
„Þeir einstaklingar eru ekki nógu heil-
steyptir til að verða atvinnumenn. Þótt
þeir séu frábærir spilarar höndla þeir ekki
álagið sem fylgir því að vera atvinnu-
maður og meiri líkur en hjá öðrum að
þeir flosni upp úr atvinnumennskunni.
Þeir einfaldlega höndla ekki álagið sem
Við eigum ekki að vera hrædd við tæknina
Rafíþróttasamtök Íslands voru stofnuð á síðasta ári. Markmið þeirra er að kynna rafíþróttir og bæta
umgjörð um greinina. Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður samtakanna, segir Íslendinga langt
á eftir öðrum þjóðum. Hann sér fyrir sér að börn æfi rafíþróttir eins og annað skipulagt tómstunda- og
æskulýðsstarf og stundi þær með sama hætti og þau æfa fótbolta og aðrar greinar.
Rafíþróttir